Viðskipti innlent

„Ef ein­hver mis­tök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leið­rétta það“

Eiður Þór Árnason skrifar
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru og fyrrverandi forstjóri Ölgerðarinnar, segir fyrirtækið átta sig á stöðu sinni og vilja koma fram með auðmýkt.
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru og fyrrverandi forstjóri Ölgerðarinnar, segir fyrirtækið átta sig á stöðu sinni og vilja koma fram með auðmýkt. Vísir/Egill

Stjórnarformaður móðurfélags Ölgerðarinnar segist ekki vita til þess að einkasöluákvæði hafi verið sett í samninga fyrirtækisins við bari, skemmtistaði og veitingahús sem geri þeim óheimilt að versla drykki af öðrum framleiðendum eða birgjum.

Slíkt hafi einungis verið til staðar í samningum sem hafi til að mynda verið gerðir við nemendafélög og skipuleggjendur útihátíða. Hyggst félagið endurskoða samningagerð við nemendafélög í háskólum.

Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Ölgerðinni og móðurfélaginu Beru á föstudag í tengslum við rannsókn á því hvort Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu á drykkjarvörumörkuðum og jafnframt hvort fyrirtækið hafi virt bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu.

Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru og fyrrverandi forstjóri Ölgerðarinnar, segir að félagið hafi um árabil starfað samkvæmt því að það gæti talist vera í markaðsráðandi stöðu og forðast aðgerðir sem væru óheimilar fyrirtækjum í slíkri stöðu. Þeirra á meðal séu einkasöluákvæði við rekstraraðila öldurhúsa og veitingastaða.

Taki umfjöllun Kveiks alvarlega

Ítarlega var fjallað um samkeppnisstöðu Ölgerðarinnar og umkvartanir samkeppnisaðila í þættinum Kveik á RÚV í gær. Þar greindu forsvarsmenn lítilla brugghúsa frá því að staðir hafi neitað að hefja sölu á vörum eða jafnvel tekið þær úr sölu og vísað til núgildandi samninga þeirra við Ölgerðina. Fyrirtækið er stærsti aðilinn á áfengismarkaði hér á landi.

Þrátt fyrir þetta hafnar Andri því að svokölluð einkasöluákvæði séu sett í slíka samninga

„Staðreyndin er sú að við höfum undanfarin tíu ár eða meira hegðað okkur eins og við kunnum að vera markaðsráðandi og þar af leiðandi gerum við ekki einkasölusamninga. Við stjórnum ekki vöruvali, hilluplássi eða neinu slíku hjá okkar viðskiptavinum. Við höfum lagt okkur fram um þetta og að fylgja samkeppnislögum.“

Honum þyki leitt að heyra af þessari „upplifun samkeppnisaðila“ af framgöngu Ölgerðarinnar.

Þið gerið sem sagt ekki samninga við bari þar sem þeir skuldbinda sig til þess að versla ekki drykkjarvöru af öðrum aðilum á markaði?

„Nei, það gerum við ekki og mér vitandi er ekki einn einasti samningur sem er með slíku ákvæði. Nú er Samkeppniseftirlitið auðvitað með alla þessa samninga til skoðunar og þá mun hið sanna koma í ljós í þessum efnum. Ef einhver frávik eru þar þá öxlum við að sjálfsögðu ábyrgð en þá hafa verið gerð mistök. En mér að vitandi er ekki einn einasti samningur með einkasöluákvæðum.“

Hvaða skýringar hefur þú þá á því að rekstraraðilar veitingahúsa og bara veigri sér við að taka inn vörur frá öðrum aðilum og séu að vísa í viðskiptasamband við ykkur? Hvernig gengur það heim og saman?

„Ég get auðvitað ekki lagt veitingaaðilum orð í munn en margir þeirra kjósa að eiga viðskipti við fáa og stóra aðila einfaldlega til þess að auðvelda sér innkaup og utanumhald. Við stjórnum ekki þeirra vöruvali, það eru þeir sjálfir sem gera það.“

Í umfjöllun Kveiks var vísað til samskipta minni brugghúsa við rekstraraðila veitingastaða og bara þar sem staðhæft er að samningur við Ölgerðina banni þeim að taka inn vörur frá öðrum. 

Andri segist taka því alvarlega að samkeppnisaðilar Ölgerðarinnar fái þessi svör og upplifi stöðu Ölgerðarinnar með þessum hætti.

Veita fjárhagslega styrki

Samningar Ölgerðarinnar við öldur- og veitingahús fela oft í sér einhvers konar markaðsstyrki og afslætti.

„Oft og tíðum erum við að greiða fyrir sýnileika, við erum að greiða fyrir útiskilti eða merkingar í gluggum eða merkingar á vínseðlum eða annað slíkt. Þannig að það tíðkast. Hins vegar eru að mér vitandi engir tryggðarafslættir í gangi en það er okkar skilningur að slík ákvæði gætu verið á skjön við samkeppnislög og það hefur ekki verið í okkar samningum,“ segir Andri.

„En að sjálfsögðu taka afsláttarkjör mið af því hvað viðskiptavinurinn er stór og hversu mikið kostnaðarlegt hagræði er fólgið í því að eiga svona magnviðskipti. En það eru ekki tryggðarafslættir, þeir eru ekki í gangi hjá okkur.“

Svo afslátturinn byggir á magninu sem er verið að kaupa inn en ekki hvort það sé verið að halda tryggð við ykkur fram yfir aðra?

„Nei, það er akkúrat þannig. Við höfum lagt okkur fram um að slíkt ákvæði sé ekki.“

Hafi verið minni aðilinn

Í umfjöllun Kveiks er vísað í kynningu sem fulltrúar Ölgerðarinnar voru með fyrir rekstraraðila veitingastaðar en þar eru viðskiptakjör Ölgerðarinnar tíunduð. 

Þar kemur fram að við undirritun samnings fái staðurinn 3,5 milljónir króna í markaðsstyrk fyrir uppsetningu á nýjum bar. Þá fái hann tvær milljónir síðar sem nýtist í markaðsmál og ókeypis vörur fyrir rúma milljón á ári. Framlag Ölgerðarinnar er alls metið á tæpar átta milljónir króna á samningstímanum en til viðbótar býðst veitingastaðnum margvísleg afsláttarkjör.

Getur þú séð að í tilvikum þar sem þið eruð að styrkja staði með markaðsstyrkjum og bjóða afslætti að þeir einhvern veginn veigri sér við að eiga viðskipti við aðra aðila? Að það sé viss hvati til staðar til að halda sig við ykkur?

„Nei, það er í sjálfu sér ekki hvati í neinum okkar samningum til þess að eiga eingöngu viðskipti við okkur eða meiri viðskipti við okkur. En ég heyri hvernig samkeppnisaðilar eru að upplifa þessa samkeppni og ég hef fullan skilning á þeirra stöðu. Það er erfitt fyrir minni samkeppnisaðila að hasla sér völl á mörkuðum,“ segir Andri. 

Þetta þekki Ölgerðin á eigin skinni þar sem fyrirtækið hafi verið minni aðili á markaði en svo sótt í sig veðrið á síðustu tuttugu árum.

Hörð barátta um Red Bull

Í Kveiksþættinum sem sýndur var í gær var rætt við Friðjón Hólmbertsson sem starfaði í hátt í tvo áratugi hjá Ölgerðinni og var um tíma háttsettur en hann rekur nú heildsöluna Steindal. Ölgerðin var lengi með umboð fyrir Red Bull-orkudrykkina en missti það fyrir nokkrum árum. Steindal er með það í dag og gagnrýndi Friðjón framgöngu Ölgerðarinnar eftir að hann tók við umboðinu.

Hvernig var viðskilnaður Ölgerðarinnar við viðkomandi starfsmann?

„Ég ætla ekki að tjá mig um það,“ segir Andri. Það hafi verið ákvörðun framleiðanda Red Bull að slíta samstarfinu við Ölgerðina.

„Okkur þótti leitt að sjá á eftir þessu góða vörumerki sem er gríðarlega verðmætt. Þetta er með sterkustu vörumerkjum í heimi og við könnumst ágætlega við það að eiga í samkeppni við Red Bull, til dæmis í Austurríki þar sem við erum að selja Collab. Þar hefur framganga sölumanna Red Bull verið okkur heldur óhagstæð, svo ég kveði nú ekki fastar að orði.“

Friðjón segir í samtali við fréttamann Kveiks að Ölgerðin hafi kynnt orkudrykkinn Eilífa orku til leiks eftir að fyrirtækið missti umboðið og að bragð nýja drykkjarins svipi mjög til Red Bull. Í kjölfarið hafi erlenda drykknum verið skipt út á börum og skemmtistöðum sem áður buðu upp á hinn vinsæla drykk vodka í Red Bull. Einnig hafi Ölgerðin náð til sín samningum við nemendafélög háskóla sem áður sömdu við Steindal heildsölu.

Andri segir að Ölgerðin sé með öfluga vöruþróun og leggi metnað í að framleiða vörur á Íslandi.

„Það er ekkert leyndarmál að Red Bull er eftirsótt vara og Eilíf orka er að sjálfsögðu hönnuð inn í þennan markhóp sem sækist eftir þessum bragðeiginleikum og ekkert leyndarmál við það. Sambærilegar vörur í samkeppni við Red Bull eru þekktar í mörgum löndum í kringum okkur.“

„Svona bragð eða drykkir eru þekktir um allan heim og þetta er ekki einhver nýjung hér á Íslandi í sjálfu sér. Þetta er eftirsótt vara á börum og veitingamenn eru auðvitað að sækjast eftir lægra verði. Red Bull er dýr vara og veitingamenn hafa auðvitað, eins og við þekkjum, margir hverjir verið að berjast í bökkum og þurfa að horfa í hverja krónu í sínum rekstri. Þannig að við erum einfaldlega að bjóða hagkvæmari kost.“

Drykkurinn hafi komið á markað í júní og þróun á honum byrjað eftir að Ölgerðin missti umboðið fyrir Red Bull.

„Við erum einfaldlega að bregðast við eftirspurn hjá okkar viðskiptavinum.“

Mögulega prjónað yfir sig ef svo er

Friðjón lýsir því einnig í Kveiksþættinum að hann hafi upplifað það að Red Bull hafi verið fært til í verslunum eftir að hann tók við umboðinu frá Ölgerðinni og sakar sölumenn Ölgerðarinnar um að eiga hlut að máli. Eftir að hann hafi kvartað undan þessu við verslanir hafi verið tekið á þessu.

„Ég kannast nú ekki við þetta en ef svo er þá þykir mér það auðvitað leiðinlegt ef það er upplifunin. Það sem ég kannast við er að við höfum tekið niður markaðsefni sem við áttum þegar við misstum umboðið sem er ósköp eðlilegt. En það er ekki í okkar anda, getum við sagt, að stunda einhver bolabrögð á markaði og ef svo er þá höfum við mögulega prjónað yfir okkur.“

Einkasöluákvæði í samningum við félög og útihátíðir

Andri gerir greinarmun á samningum við veitingaaðila annars vegar og nemendafélög í háskólum og skipuleggjendur útihátíða hins vegar en í þætti Kveiks var sýndur samningur Ölgerðarinnar við nemendafélag þar sem skýrt kom fram að félagið mætti einungis bera fram drykki frá Ölgerðinni.

„Við erum að gera fjöldann allan af svona kostunar- eða styrktarsamningum. Þeir geta verið við félagasamtök, nemendafélög, íþróttafélög eða tónlistarhátíðir eða annað slíkt og svoleiðis samningar eru gjarnan með stöðluðum ákvæðum af hálfu viðsemjenda og ekki gert ráð fyrir að beinir samkeppnisaðilar geti þannig verið líka bakhjarlar. Þetta er auðvitað alþekkt um allan heim og engin nýlunda hérna. En ég ítreka það að ef þessir samningar orka tvímælis þá munum við að sjálfsögðu endurskoða það og breyta þá því verklagi og ekki gera slíka samninga.“

„Við höfum lagt okkur fram öll þessi ár að vinna að heiðarleika og auðmýkt á markaðnum. Við vitum að við erum stórir og stærð fylgir ábyrgð og við höfum reynt að axla þá ábyrgð. Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það og auðvitað gangast við því ef svo kynni að vera,“ segir Andri.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Taka umdeilda samninga til skoðunar

Ölgerðin hyggst taka styrktarsamninga við nemendafélög í háskólum til skoðunar eftir umfjöllun Kveiks í kvöld um viðskiptahætti félagsins.

Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn

Stjórnendur Beru segjast engar upplýsingar hafa um að brot á samkeppnislögum hafi átt sér stað í starfsemi félagsins. Rík áhersla sé lögð á fylgni við samkeppnisreglur í rekstri þess og það sé hluti af þjálfun starfsfólks Ölgerðarinnar að fá fræðslu um það hvernig stór aðili á markaði þurfi að haga sér í samkeppni.

Húsleit hjá Ölgerðinni

Samkeppniseftirlitið hefur hafið húsleit hjá Beru hf., móðurfélagi Ölgerðarinnar, vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar á samkeppnislögum. Embætti héraðssaksóknara aðstoðaði við húsleitina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×