Viðskipti innlent

Aukin skatt­heimta og aukin sam­keppni í boði ríkisins

Bjarki Sigurðsson skrifar
Björn Ragnarsson er forstjóri Icelandia.
Björn Ragnarsson er forstjóri Icelandia. Icelandia

Forstjóri Icelandia, sem rekur Flugrútuna, gagnrýnir að ríkið greiði rúma milljón króna á viku fyrir að taka við farþegum á nýrri stoppustöð við Keflavíkurflugvöll. Hann segir það auka samkeppni ríkisins við einkarekin ferðaþjónustufyrirtæki.

Fyrir tæpri viku hóf landsbyggðarstrætó, sem rekinn er af Vegagerðinni, að aka með farþega alla leið að flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli og sækja farþega á nýrri stöð. Nýja stöðin er á fjarstæði fyrir hópferðabíla.

Rútufyrirtæki sem nota stæðið til að sækja farþega þurfa að greiða fyrir það þrettán þúsund og fimm hundruð krónur hvert skipti. Strætó mætir tólf sinnum á sólarhring sem þýðir að á einni viku er kostnaðurinn rúm milljón króna.

Björn Ragnarsson, forstjóri Icelandia, gagnrýnir þetta.

„Þarna er Vegagerðin að eyða peningum skattgreiðenda í að greiða Isavia fyrir að færa sig nær flugstöðinni og markmiðið virðist vera að ná í ferðamenn. Það finnst okkur sérstakt, að ríkið sé að keppa við okkur einkaaðilana,“ segir Björn. 

Á sama tíma sé verið að skera niður þjónustu landsbyggðarstrætós annars staðar á landinu. Hann segist hafa áhyggjur af stöðunni.

„Ég held að ríkið sé að niðurgreiða þessa leið fyrir á annað hundrað milljónir. Manni finnst sérstakt að ríkið sé að fara í það að niðurgreiða þetta enn frekar á sama tíma og verið er að boða aukna skattheimtu á ferðaþjónustuna,“ segir Björn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×