Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Atli Ísleifsson skrifar 22. október 2026 11:16 Frá undirrituninni í dag. Landsvirkjun Landsvirkjun og Elkem hafa skrifað undir nýjan samning um raforkukaup kísiljárnverksmiðjunnar á Grundartanga.
Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að fyrri samningur fyrirtækjanna hafi verið til 2029 en sá nýi gildi til 2039. Samningsmagn er sé, 127 MW. „Viðskiptasamband fyrirtækjanna á rætur að rekja allt aftur til 1975 og Elkem er því einn af elstu stórviðskiptavinum Landsvirkjunar. Nýi samningurinn kemur í stað gildandi samnings og gildir til ársins 2039. Hann tekur til 127 MW samningsbundinnar afhendingar og veitir báðum aðilum aukinn sveigjanleika. Frá apríl 2029 felur samningurinn í sér raforkuverð með föstu lágmarksverði og hlutbundinni tengingu við markaðsverð á kísiljárni. Þannig njóta báðir aðilar ávinnings þegar verð á kísiljárni hækkar, jafnframt því sem samkeppnishæfni verksmiðjunnar er tryggð á tímabilum þegar markaðsverð er lægra. Styrkir farsælt samband Kísiljárnverksmiðjan hóf starfsemi ári 1979 og er meginstarfsemi félagsins framleiðsla og sala á kísiljárni, með áherslu á sérhæfðar vörur sem notaðar eru við framleiðslu á hágæða stáli. Einnig framleiðir Elkem kísilryk sem notað er í sement og steypu um allan heim. Verksmiðjan á Grundartanga er með þrjá ofna, með áherslu á framleiðslu verðmætra sérvara, einkum svokallað High Purity Ferrosilicon. Sérvara Elkem er notuð í rafmagnsstál í rafölum, rafmótorum og spennum sem enda t.d. í rafbílum og vindmyllum. Á starfstíma verksmiðjunnar hefur raforkusamningi verið breytt og hann framlengdur nokkrum sinnum,“ segir í tilkynningunni. Styður við framtíðarþróun Haft er eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar, að Landsvirkjun fagni því að hafa náð nýju samkomulagi við Elkem, einum af elstu viðskiptavinum Landsvirkjunar. „Fyrirtækin hafa átt farsælt samstarf í áratugi og styrkir þessi samningur þann grunn enn frekar. Við hlökkum til að halda samstarfinu áfram og styðja við framtíðarþróun starfsemi Elkem á Íslandi.“ Þá er haft eftir Birki Guðmundarsyni, starfandi forstjóra Elkem á Íslandi, að samningurinn undirstriki gildi þess langa og góða samstarfs sem Elkem og Landsvirkjun hafi átt. „Hann eykur fyrirsjáanleika í rekstri og styður við þann sveigjanleika sem við þurfum til að halda áfram að bæta afkomu verksmiðjunnar og meta ný sóknartækifæri til framtíðar.“
Landsvirkjun Orkumál Stóriðja Hvalfjarðarsveit Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira