Viðskipti innlent

Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Guðmundur segir breytingarnar fela í sér mikinn ófyrirsjáanleika.
Guðmundur segir breytingarnar fela í sér mikinn ófyrirsjáanleika. Vísir/Einar

Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims segir veiðigjöld hafa lækkað í ár frá því í fyrra. Hann segir þetta sýna ófyrirsjáanleika kerfisins, það sé líkt og alþingismenn viti ekkert hvað það sé sem þeir samþykkja. Hann segir enga þora að fjárfesta lengur í sjávarútvegi vegna óvissu í kringum kerfið sem feli ýmist í sér hækkanir eða lækkanir miðað við flókna reikniformúlu. 

Rætt er við Guðmund um málið í Reykjavík síðdegis í Bylgjunni. Tilefnið er viðtal Stefnis tímarits Ungra sjálfstæðismanna við Guðmund þar sem hann ræðir málið.  Mikil og löng umræða fór fram um hækkun veiðigjalda síðasta sumar á Alþingi. Guðmundur segir á Bylgjunni að tölur yfir veiðigjöld sé nú að finna á vef Fiskistofu fyrir fyrstu átta mánuði ársins.

„En það sem ég benti alltaf á í fyrra þegar þetta var til umræðu á Alþingi var að ég skildi aldrei hvernig alþingismenn gátu sagt að gjaldið væri að hækka, því að reikniformúlan reiknar út veiðigjaldið á hverja fisktegund. Af því sumar fisktegundir hækkuðu...mig minnir reyndar að makríllinn hafi hækkað um 150 prósent í veiðigjaldi milli ára en síldin lækkar um sextíu prósent. Þannig fyrirsjánleikinn er enginn. Allir sem eru áhugamenn sem eru að hlusta á okkur geta farið á heimasíðu Fiskistofu og séð veiðigjöldin á milli ára. Þetta er það sem er að gerast svo mikið hjá okkur núna á Alþingi, það eru samþykkt lög og ég held að alþingismenn viti ekkert hvað þeir eru að samþykkja, því miður.“

Guðmundur segir veiðigjaldið sé ekki lagt á sjávarútveginn, ekki á útgerðina, heldur á hverja fisktegund. Krónugjaldið sé misjafnt á hverja fisktegund.

„Og hvernig finnur ríkisskattstjóri gjald á hverja fisktegund? Það er gríðarlega flókin formúla þar sem margar breytur eru settar inn með gögnum eftir ársreikningum okkar 2025, hvernig fiskverð þróast í Noregi og á fiskmörkuðum á Íslandi og það veit enginn fyrr en skatturinn er búinn að setja þetta sennilega í október eða nóvember, núna í nóvember á þessu ári, þá er skatturinn búinn að setja inn í formúluna allar breyturnar sínar og í byrjun desember kemur þá gjaldið fyrir hverja fisktegund 2027.“

Hann segir að sig reki minni í það að veiðigjöldin hafi í fyrra verið einhverjir fjórtán, fimmtán milljarðar en verði þrettán, fjórtán milljarðar í ár. Hann segist ekki muna nákvæmlega tölurnar hjá Brim.

„Ég nenni ekki lengur að muna allar þessar tölur en ef ég væri fyrir framan tölvu myndi ég fletta þessu upp eins og skot. Ástæðan fyrir þessu er að það er svo mikið lýðskrum. Það eru notuð orð sem við skiljum ekki venjulegir borgarar og svo er enginn fyrirsjáanleiki fyrir okkur núna. Þannig að kannski á næsta ári þá getur veiðigjaldið orðið fimmtíu prósent hærra.“

Guðmundur nefnir dæmi um rekstur Brims. Fyrirtækið geri út þrjá fiskiskipaflokka, það er uppsjávarveiðiskip, ísfiskstogara og frystitogara.

„Núna tók Alþingi sig til í fyrra og tók bara frystitogarana út úr veiðigjaldsformúlunni, þannig að þeir eru ekkert með þegar verið er að reikna út gjald á hverja fisktegund. Ég er búinn að alast upp í þessu alla ævi, ég skil ekki hvernig þetta er hægt og hvernig þetta er leyfilegt. Það er eins og skatturinn minn velji bara eitthvað sem hann langar til.“

Þú talar um að þetta lækki á milli ára, er það þá bara bundið við það hversu mikið er veitt, er þá ekki verið að veiða miklu minna en áður? Er það bara partur af formúlunni eða er það af því að síldin lækkaði svo mikið, hvað er þarna á bakvið lækkunina?

„Nei, sumar fisktegundir lækkuðu. Loðnan til dæmis var með núll veiðigjald af því það var engin loðnuveiði 2025. Og vitiði það strákar, svona formúla af því að við erum alltaf að bera okkur saman við heiminn, hún er ekki til nokkurs annars staðar í heiminum.“

Við eyddum dágóðum tíma í að rífast um þetta í fyrra, voru áætlanir stjórnvalda rangar eða voru viðvaranir ykkar í sjávarútveginum um miklar hækkanir alltof dramatískar?

„Nei, það sem ég er að reyna að segja við ykkur: Við höfum ekki hugmynd um hvert gjaldið verður á næsta ári, það getur vel verið að það verði rosalega hátt á næsta ári. Aðferðafræðin, þetta er ekki nokkurs staðar í heiminum. Og af því að þú spurðir, þú heldur að þú fáir peninginn, peningurinn fer allur í ríkissjóð. Ríkissjóður er ekki það sama og almenningur. Þegar Daði Már seldi Íslandsbanka í fyrra þá vantaði honum pening í ríkissjóð. Hann sagði við þjóðina: „Þið fáið forkaupsrétt. Þetta er lágt, ég er að selja þetta ódýrt. Kaupið þið þetta?“ Þannig að þjóðin keypti hlutabréfin, peningurinn fór í ríkissjóð, það er ekki það sama og til þjóðarinnar.“

Guðmundur segir útgerðirnar skila inn til skattsins upplýsingum um afkomu hvers einasta fiskiskips á Íslandi, með skipaskránúmeri. Þar séu kostnaðarliðir teknir út, Skatturinn setji það í stóru ríkistölvuna. Næst fái Skatturinn aflatölur frá Fiskistofu yfir hvert einasta fiskiskips og sjái þannig hvaða fisktegundir hvert fiskiskip veiddi og beri það saman við afkomuna. Næst fari Skatturinn og fái verð í Noregi á ákveðnar fisktegundir og taki verðið frá útgerðunum út og setji það verð inn í formúluna og þá hækki tekjurnar frá ákveðnum fiskiskipum.

„Svo fer hann á fiskmarkaðinn á Íslandi og tekur eitthvað meðalverð á fiskmörkuðum. Tekur þær fisktegundir þá út úr ríkistölvunni og setur þetta nýja verð inn. Og þá kemur ný afkoma fyrir hvert einasta fiskiskip. Svo keyrir hann öll fiskiskipin saman. Svo deilir hann í þetta með aflamagni á hverri einustu fisktegund og finnur þannig eitthvert hlutfallslegt gjald á hverja fisktegund.“

En það er verið að skoða tvö ár aftur í tímann, er þá mögulegt að árið 2027, ef það verður lélegt ár í sjávarútvegi, en fyrirtækið þarf að greiða hátt veiðigjald vegna þess að afkoman var góð tveimur árum áður?

„Já, já, já. Það getur alveg gerst og líka með fisktegundir. Þú sérð bara eins og okkur í loðnunni, nú kannski getur verið rosalega gott ár hjá okkur, svo eftir tvö ár þá kemur bara mjög lítill loðnukvóti en þá er gjaldið mjög hátt á loðnuna. Svo kemur loðnulaust ár hjá okkur og eftir tvö ár er gríðarlega stór loðnukvóti, þá getur gjaldið verið núll.“

Þannig þetta er eins og skattlagning aftur í tímann?

„Já og það er engin heilbrigð skynsemi í þessu og þetta er ekki nokkurs staðar í heiminum og það er enginn fyrirsjáanleiki. Enda eru engin skip í smíðum hjá okkur, það er enginn að fjárfesta af því að við erum allir logandi hræddir.“

Er það út af veiðigjaldinu, er það bara veiðigjaldið sem skiptir þar máli?

„Nei, ég er alltaf að segja við þig, veiðigjaldið er per fisktegund. Af því að sum fiskiskip veiða ákveðnar fisktegundir, önnur veiða aðrar. Kannski kaupir þú nýjan bát og eftir tvö ár kemur rosalega hátt gjald á fisktegundir sem þú ert að veiða af því verðin voru svo rosalega há í Noregi fyrir tveimur árum.“

En getið þið ekki tekið á ykkur svona óvissu um veiðigjöld? Er þetta ekki bara eitthvað sem fyrirtæki af ykkar stærðargráðu ætti að geta tekist á við?

„Bíddu af hverju gerirðu þetta þá ekki við aðrar greinar, af hverju er þetta ekki gert um allan heim fyrst þetta er svona frábært? Og af hverju á ríkissjóður að skemma fyrirtæki landsmanna þannig að við fjárfestum ekkert? Af hverju heldurðu að við séum ekki að fjárfesta? Við erum ekki vont fólk.“

En hvernig ætti þá gott veiðigjaldskerfi að líta út?

„Af hverju spyrðu ekki fólk út í heimi? Hvar er veiðigjald lagt á út í heimi? Þetta er ekki nokkurs staðar. Þetta er aðeins í Grænlandi af því þar er ríkisfyrirtæki langstærsta fyrirtækið. Þetta er ekki neitt í Evrópusambandinu, Noregi, Japan, Kína, Suður-Ameríku.“

Þetta var alltaf kynnt sem sanngjörn leið, sanngjörn hlutdeild þjóðarinnar í sameiginlegri auðlind?

„Ég er alltaf svo ánægður með þá Íslendinga sem vita hvað er sanngjarnt fyrir náungann. Ég hélt það væri alltaf best að hafa bara einfaldar reglur fyrir alla íbúana og vandamálið er það að Íslendingar rugla ríkissjóði við þjóðina. Núna gengur allt út á það á Íslandi að finna tekjur í ríkissjóð, ekki finna tekjur hvernig best fyrir íbúana að búa. Íbúarnir, það skiptir máli að okkur líði vel á Íslandi en það er ekkert gagn í því að ríkissjóði líði vel en það eru allir atvinnulausir á Íslandi og það er engin fjárfesting og það er bara eymd út um allt land. Mér finnst það ekki skynsamlegt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×