
Mannréttindi

Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít
Kristrún Frostadóttir segir eðlilegt að ágreiningur eigi sér stað innan breiðfylkingar og stórs flokks líkt og Samfylkingarinnar. Þannig svarar hún gagnrýni innan flokksins sem snýr að hjásetu flokksins við afgreiðslu nýrra útlendingalaga.

Segir Miðflokkinn vilja skreyta sig stolnum fjöðrum
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lætur Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins ekki eiga neitt inni hjá sér en í kröftugri svargrein um Mannréttindastofu segir hún Sigmund og þá Miðflokksmenn innilega ósamkvæma sjálfum sér.

Sigmundur Davíð þvær hendur sínar af Mannréttindastofnun Íslands
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hefur lítinn sem engan áhuga á því að Hildi Sverrisdóttur, þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, takist að gera Miðflokkinn ábyrgan fyrir nýrri Mannréttastofnun Íslands.

Segir Sigmund og Bergþór bera sína ábyrgð á Mannréttindastofnun Íslands
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, skynjar falskan tón í óbilgjarnri gagnrýni þeirra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins og Bergþórs Ólasonar þingmanns en þeir hafa fundið Mannréttindastofnun Íslands, sem samþykkt var við þinglok, flest til foráttu.

Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki
„Vissulega nær reglugerðin aðeins til stærri fyrirtækja, með 250 manns eða fleiri og smærri félög tengd almannahagsmunum. Hugmyndafræðin nær hins vegar til allra fyrirtækja, sem þýðir að fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki munu breyttar leikreglur líka hafa áhrif,“ segir Ketill Berg Magnússon, mannauðsstjóri hjá Marel í Norður Evrópu og einn af gestgjöfum Sjálfbærniskólans sem hefst í Opna Háskólanum, Háskóla Reykjavík í haust.

Vandar um við Sigmund Davíð
Henry Alexander Henrysson heimspekingur hefur áhyggjur af því að ný Mannréttindastofnun Íslands, verði flokkspólitískum deilum og glósum að bráð.

Kvöldstund á öldrunarspítalanum
Það er að koma kvöldmatur. Gamla fólkið hugsar sér til hreyfings, flestir þurfa a.m.k. að styðjast við göngugrind, en sumir þurfa að auki aðstoð starfsfólks.

Sigmundur Davíð furðu lostinn yfir nýrri mannréttindastofnun
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er furðu lostinn vegna mannréttindastofnunar sem samþykkt var í dag á þinginu að koma á koppinn.

Loks eignast Ísland mannréttindastofnun
Nú hillir undir samþykkt Alþingis á frumvarpi okkar Vinstri grænna um að setja á fót Mannréttindastofnun Íslands. Um er að ræða nýja stofnun sem heyrir undir Alþingi sem verður sjálfstæð og óháð stofnun með sambærilegum hætti og umboðsmaður Alþingis og ríkisendurskoðandi. Ísland er eitt örfárra ríkja í Evrópu sem ekki hefur sjálfstæða mannréttindastofnun. Nú breytist það sem er mikið fagnaðarefni.

Yngra fólk á hjúkrunarheimilum upplifir öryggi en saknar félagslífs
Leggja þarf áherslu á rétt einstaklingsins til að velja sjálfur hvar hann býr og með hvaða hætti þjónusta við hann er veitt, segir í nýrri skýrslu um yngra fólk á hjúkrunarheimilum.

Loksins Mannréttindastofnun
Mannréttindi eru hornsteinn frelsis, friðar, þróunar og réttlætis og þau ber að heiðra og hlú að þeim. Mannréttindi koma ekki að sjálfu sér heldur eru ákvörðun sem þarf að festa í lög, koma inn í kerfi, venja stofnanir við og viðhalda.

Nöfnum þéttbýliskjarna breytt til að þurrka út menningu Úígúra
Yfirvöld í Kína hafa breytt heitum hundruð þorpa og bæja Úígúra og fjarlægt úr þeim tilvísanir í sögu, menningu og trú minnihlutahópsins. Breytingarnar eru taldar ná til 630 þéttbýliskjarna og áttu flestar sér stað á árunum 2017-2019.

Þjófar fagna
Í dag eru 109 ár liðin frá því að konur fengu kosningarétt í alþingiskosningum á Íslandi. Að konur hafi ekki haft kosningarétt er í tómarúmi rökleysa en rökrétt ef skoðað út frá ríkjandi valdastrúktúrum síðastliðinna árþúsunda, það er feðraveldinu. Konur eiga nefnilega samkvæmt feðraveldinu ekki að sækjast eftir áhrifum eða völdum, ekki einu sinni yfir eigin líkama.

Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“
Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður Samfylkingarinnar segir flokkinn búa sig undir að taka við landsstjórninni. Í því felist að taka afstöðu til allra mála á þeim forsendum að „iðka það sem við segjum og ekki bara vera með upphrópanir og andstöðu verandi í minnihluta“.

Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum
Bæjarfulltrúi í Garðabæ segist hafa sagt sig úr Samfylkingunni vegna áherslna flokksins í útlendingamálum. Hann treystir flokknum ekki lengur í mannréttindamálum.

Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir
Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna segir að gjörðir bæði Ísraelshers og Hamas-samtakanna þegar Ísraelar frelsuðu fjóra gísla úr haldi um helgina gætu talist stríðsglæpir. Á þriðja hundrað manna féll í hernaðaraðgerðinni.

Efndi til þrælauppboðs í kennslustund
Skólayfirvöld í Massachusetts í Bandaríkjunum hafa sent grunnskólakennara í tímabundið launað leyfi eftir að hann efndi til „þrælauppboðs“ í kennslustund.

„Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“
Ingvar Örn Arngeirsson segir að betur megi huga að fólki sem glími við áskoranir þegar komi að kosningum. Einhverfur vinur hans treysti sér ekki til að fara inn í kjörklefa og gat af þeim sökum ekki kosið í dag.

„Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“
Ofbeldi gegn konum verður ekki stöðvað með því að ýta undir kynþáttafordóma. Þetta segir palestínsk kona sem óttast að umræða um alvarleg ofbeldisbrot gegn löndu sinni á Íslandi ali á fordómum, frekar en að styðja þolendur og berjast gegn kynbundnu ofbeldi.

Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt
Þrír svartir karlmenn hafa höfðað mál á hendur American Airlines en þeir voru látnir ganga frá borði eftir að kvartað var undan líkamslykt í einni af vélum félagsins.

Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn
Stjórnarflokkur Georgíu nýtti aukinn meirihluta sinn á þingi til þess að ógilda neitunarvald sem forseti landsins beitti á umdeild fjölmiðlalög í dag. Tugir þúsunda manna hafa mótmælt lögunum undanfarnar vikur.

„Ég einfaldlega spurði kennarann: Ertu ekki að djóka?!“
Þann 11.maí síðastliðinn, hélt París Anna Bergmann, sextán ára nemandi við Menntaskólann á Akureyri erindi á ráðstefnu félagi Ungra athafnakvenna, UAK.

Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah
Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði í dag að Ísraelsher ætti að láta af öllum hernaðarðageðrum í Rafah í suðurhluta Gasaborgar. Í úrskurðinum er ekki kveðið á um vopnahlé eins og óskað hafði verið eftir af Suður-Afríku sem kom með máli til dómstólsins.

Hafa níu mánuði til að svara dómi MDE í talningamálinu
Íslensk stjórnvöld hafa níu mánuði til að skila áætlun til fullnustudeildar Evrópuráðsins um þær ráðstafanir sem gripið verður til vegna dóms Mannréttindadómstóls Evrópu um talningamálið svokallaða. Það kemur fram í svari ráðuneytisins til fréttastofu.

„Oft sömu aðilar og verða öskureiðir ef þú rangkynjar köttinn þeirra eða hundinn“
„Þetta er ekkert svo flókið og snýst ekkert um það að fólk þurfi að passa sig á því hvort það eigi að segja hún, hann eða hán. Þetta snýst meira um þá sem rangkynja meðvitað, sem oft eru sömu aðilar og verða öskureiðir ef þú rangkynjar köttinn þeirra eða hundinn,“ útskýrir Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns.

Varfærnisleg fagnaðarlæti
Ísland náði þeim mikilvæga áfanga á dögunum að lenda í öðru sæti á Regnbogakorti ILGA Europe, sem metur lagalega réttindastöðu hinsegin fólks í 49 löndum Evrópu. Þetta er árangur sem við megum vera stolt af og sýnir vilja okkar til að tryggja jöfn réttindi og vernd fyrir öll í okkar samfélagi, óháð kynhneigð eða kynvitund.

Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu
Íslandsdeild Amnesty International fordæmir brottvísanir íslenskra stjórnvalda á umsækjendum um alþjóðlega vernd sem eru mansalsþolendur og hvetur stjórnvöld til að endurskoða stefnu sína er varðar umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru þolendur mansals. Vinna er hafin í dómsmálaráðuneytinu við nýja aðgerðaráætlun um mansal.

Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu
Utanríkisráðherra telur ekki óeðlilegt að sýna georgískum mótmælendum umdeildra laga samstöðu. Hann furðar sig á misvísandi yfirlýsingum forseta georgíska þingsins eftir fund sendinefndar ráðherrans með honum.

Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur
Þórey Einarsdóttir hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024 fyrir störf sín í þágu jaðarsettra einstaklinga. Þórey hefur starfað í Konukoti, fyrsta og eina athvarfinu fyrir heimilislausar konur á Íslandi, frá opnun þess.

Ísland hástökkvari í málefnum hinsegin fólks
Þær gleðifréttir bárust í gær að Ísland hefur tekið stökk upp í 2. sæti á nýuppfærðu Regnbogakorti Evrópusamtaka hinsegin fólks (ILGA Europe) og er áfram í efsta sæti á réttindakorti trans fólks í Evrópu. Frá 2018 hefur Ísland því farið upp um 16 sæti á Regnbogakortinu en það ár var Ísland í 18. sæti.