
Akureyri

Dæmdur fyrir hatursorðræðu gegn Samtökunum '78
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir hatursorðræðu gagnvart Samtökunum '78 og félagsmönnum þeirra. „HENGJUM OG AFHAUSUM ALLA SEM STYÐJA SAMTÖKIN 78 OG LGBQT,“ er meðal þess sem hann sagði.

„Óásættanlegt að fyrrverandi starfsfólki sé haldið í spennitreyju“
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir nýja umfjöllun Heimildarinnar um Namibíumálið svokallaða engu nýju ljósi varpa á málsatvik. „Mér þykir mjög miður og algjörlega óásættanlegt að fyrrverandi starfsfólki fyrirtækisins sé haldið í spennitreyju með réttarstöðu sakbornings í fimm ár án tilefnis.“

„Þetta mál er lögregluembættinu til ævarandi skammar“
Lögreglan á Norðurlandi eystra var harðlega gagnrýnd í Pallborði Vísis í gær en gestir voru þau Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kveiks og Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður Heimildarinnar. Þau voru sakborningar í máli sem varðar meinta byrlun og svo símastuld af Páli skipstjóra Steingrímssonar.

Alvarleg bilun í farsíma- og netþjónustu á Akureyri
Alvarleg bilun varð á Akureyri sem hafði áhrif á farsíma á Eyjafjarðarsvæðinu og heimanettengingu á Norðurlandi. Þá urðu einnig fyrirtækjatengingar fyrir áhrifum af þessari bilun. Bilun kom upp í varaaflsbúnaði. Búið er að leysa málið.

Hver á að mennta barnið mitt?
Ég fagna allri málefnalegri umræðu um menntamál og ég vil bestu hugsanlegu menntun fyrir börnin mín, þar á meðal fyrir son minn sem gengur í Lundarskóla á Akureyri. Sem kennari og núverandi skólastjóri Hrafnagilsskóla vil ég einnig að skólinn minn sé framúrskarandi skóli og að nemendur okkar fái gæða menntun.

Vilja losna við bækur með grófu kynferðisofbeldi
Tveir nemendur við Menntaskólann á Akureyri berjast fyrir því að nemendur þurfi ekki að lesa ítarlegar og grófar lýsingar á kynferðisofbeldi í námsefni í skólanum. Þeim berst stuðningur úr mörgum áttum en kveikjan að málinu er bókin Blóðberg sem fjallar um unga stúlku sem verður fyrir nauðgun.

Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar
Gabríel Ingimarsson hefur tekið við stöðu rekstrarstjóra Hríseyjarbúðarinnar og hefur hann því aftur snúið heim til Hríseyjar eftir nokkurra ára fjarveru með viðkomu í Reykjavík, Laugum í Reykjadal og Brussel.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands tíu ára í dag
Heilbrigðisstofnun Norðurlands, HSN á 10 ára starfsafmæli í dag, en stofnunin varð til við sameiningu Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, Heilsugæslunnar á Akureyri, Heilsugæslustöðvarinnar á Dalvík, Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar, Heilbrigðisstofnunar Sauðárkróks og Heilbrigðisstofnunar Blönduóss, þann 1. október 2014.

Halda styrktartónleika fyrir fjölskyldu Kolfinnu Eldeyjar
Stór hópur listamanna á Akureyri heldur styrktartónleika fyrir aðstandendur Kolfinnu Eldeyjar Sigurðardóttur. Tónleikarnir eru haldnir næsta miðvikudag, 2. október, klukkan 20. Hildur Eir Bolladóttir verður kynnir á tónleikunum.

Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi
Fransisco Snær Hugason náði myndbandi af tilkomumiklu sjónarspili þegar stór hópur grágæsa flaug yfir Hrafnagil í kvöld. Hann segist aldrei hafa séð svona áður.

Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf
Langamma á Akureyri segir vini sína hlæja að nýju skrauti á handlegg hennar sem þeim finnst öllum hræðilegt. Langömmubarnið kom á óvart með óvæntri afmælisgjöf sem ekki var hægt að hafna. Þær stöllur fengu sér samstæð húðflúr á upphandlegginn.

Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið
Skipstjóri hjá Samherja segir að síðasta orðið hafi ekki verið sagt í máli sem varðar byrlun og stuldi á síma hans þrátt fyrir að lögreglan hafi fellt rannsókn á því niður. Hann sakar blaðamenn um blekkingar og að afvegaleiða rannsóknina.

Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás
Móðir um fjögurra ára drengs hefur verið ákærð fyrir stórfellda líkamsárás og heimilisofbeldi fyrir að láta umskera son sinn í heimahúsi sinn fyrir tveimur árum. Þá var drengurinn um 17 mánaða gamall. Héraðssaksóknari staðfestir að ákæra hafi verið gefin út. Hann segir líklegt að þinghald verði lokað í málinu.

Norðlenskur útsýnisdraumur
Við Oddeyrargötu á Akureyri er finna einstaklega sjarmerandi einbýlishús. Húsið var byggt árið 1927 og hefur verið mikið endurnýjað síðastliðin ár á gerðarlegan máta með tilliti til sögu hússins. Ásett verð er 94,1 milljónir.

Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar
Svalbarðsstrandarhreppur í austanverðum Eyjafirði hefur ákveðið að loka almenningbókasafninu í þorpinu en efla jafnframt skólabókasafnið. Þá verða teknar upp viðræður við Akureyrarbæ um sérstakan þjónustusamning fyrir íbúa.

Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan
Bæjarstjórinn á Akureyri segir það mikla viðurkenningu fyrir bæinn að höfuðstöðvar nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar verði á Akureyri og til marks um þá miklu þekkingu sem sé til staðar í bæjarfélaginu. Hún er sannfærð um að þetta muni hafa mjög jákvæð áhrif á samfélagið fyrir norðan.

Áherslur ráðherra skipta máli
Ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um að höfuðstöðvar nýrrar umhverfis- og orkustofnunar verði staðsettar á Akureyri felur í sér mikil tækifæri ekki aðeins fyrir okkur íbúa Norðurlands heldur einnig fyrir landsbyggðina alla og íslenskt samfélag.

Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri
Landsréttur staðfesti í dag sýknudóm Héraðsdóms Norðurlands eystra á hendur manni sem var ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Manninum var gefið að sök að aka bíl á gangandi vegfaranda. Sá sem varð fyrir bílnum var maður á áttræðisaldri, sem lést sólarhring eftir áreksturinn.

Akureyrarbær greiðir götu kvennaathvarfs á Akureyri eins og kostur er
Frá því undirbúningur að opnun kvennaathvarfs á Akureyri hófst sumarið 2020 hefur Akureyrarbær greitt götu þess eftir mætti, enda er okkur fyllilega ljóst mikilvægi þess góða starfs sem Samtök um kvennaathvarf vinna.

Arnar með stöðu sakbornings og boðaður í skýrslutöku
„Ég veit ekki alveg hvað hún vildi vita. Hún náttúrulega bara heldur áfram með það að reyna að fá okkur blaðamenn til að brjóta lög, því eins og þú veist þá gefum við ekki upp heimildarmenn.“

Fjöldi fyrirtækja á skiltum mótmælenda
Svokölluð sniðganga var gengin í Reykjavík og á Akureyri í dag. Um er að ræða viðburð á vegum félagsins Ísland-Palestína með þann tilgang að hvetja til sniðgöngu á vörum frá Ísrael til stuðnings Palestínu.

„Þá hefði ég aldrei aftur flutt í bæinn“
Þær Arna Eiríksdóttir úr FH og Ísfold Marý Sigtryggsdóttir úr Þór/KA voru gestir Bestu upphitunarinnar fyrir 2. umferð uppskiptrar deildar. Þær eru nýbúnar að mætast á vellinum fyrir þátt dagsins.

Flúðu heimili sitt eftir líkamsárás og umsátur
Nýbakaðir foreldrar þurftu í vikunni að flýja heimili sitt á Akureyri í kjölfar líkamsárásar og umsáturs um helgina. Þau leita vitna að árásinni sem átti sér stað á föstudagskvöld við Íþróttahöllina á Akureyri. Þau hyggjast leggja fram kæru vegna árásarinnar og umsátursins í dag.

Svalasta sumarið í þrjátíu ár
Ágústmánuður var sá kaldasti sem mælst hefur í Reykjavík og á Akureyri á þessari öld. Hann var kaldur og úrkomusamur líkt og sumarið í heild. Sumarið í Reykjavík var það svalasta í rúm þrjátíu ár.

Akureyringar segja vöggu flugsins vera fyrir norðan
Flugáhugamenn sunnan og norðan heiða hafa löngum togast á um það hvort vagga íslensks flugs eigi að teljast vera í Reykjavík eða á Akureyri. Þótt fyrsta flugvélin á Íslandi hafið tekið flugið í Reykjavík halda Akureyringar því gjarnan fram að vagga flugsins sé í raun fyrir norðan.

„Þrjú börn tekin með hnífa hér á Akureyri“
Lögreglan á Akureyri hafði afskipti af þremur undir lögaldri sem báru hnífa um helgina. Foreldrar og lögregluyfirvöld hafa þungar áhyggjur af stöðunni.

Samstarfi um milljarðauppbyggingu slitið
Íslandshótel og Skógarböðin hafa slitið samstarfi um uppbyggingu og rekstur hótels við Skógarböðin í Eyjafirði sem áætlað var að opna á vormánuðum 2026. Viljayfirlýsing um samstarf var undirrituð í ársbyrjun en reiknað var með fjárfestingu upp á um fimm milljarða króna.

Hraðminnkandi mengun frá skemmtiferðaskipum á Akureyri
Hafnarvörður á Akureyri segir að skemmtiferðaskip mengi miklu minna en þau gerðu áður vegna betri vélbúnaðar og mengunarvarnabúnaðar í skipunum. Hvít slikja hefur oft legið yfir Akureyri í sumar og standa bæjarbúar í þeirri trú að um mengun sé að ræða frá skipunum en hafnarvörðurinn segir það ekki rétt.

Breytt upplifun farþega á leið um Akureyrarflugvöll
Farþegar á leið um Akureyrarflugvöll voru í fyrsta sinn í dag innritaðir í flug í gegnum nýjan innritunarsal í flugstöðinni, bæði innanlands- og millilandafarþegar. Þetta er einn áfanginn í breytingum sem fylgja nýrri viðbyggingu fyrir millilandaflugið.

200 skemmtiferðaskip á Akureyri
Um 160 skemmtiferðaskip hafa komið á Akureyri það sem af er sumri og eiga 40 skip eftir að koma. Alls verða þetta því um 254 þúsund farþegar, sem koma með skipunum og munar um minna þegar verslun og þjónusta á svæðinu er annars vegar.