
Skeiða- og Gnúpverjahreppur

Hætta með Pizzavagninn eftir tuttugu ára rekstur
Petrína og Björgvin Þór hafa ekið Pizzavagninum um uppsveitir Árnessýslu í tuttugu ár en ætla að hætta rekstri í vikunni. Óvissa er um það hvort einhver taki við rekstrinum. Pizzavagninn verður á balli á Flúðum á miðvikudaginn og hættir eftir það.

Svín drekka bjór af bestu lyst
Svínum þykir bjór góður og er hann meðal annars notaður til að örva mjólkurframleiðslu gyltna þegar þær eru með grísi á spena.

Búrfellslundur – fyrir hvern?
Landsvirkjun vinnur hart að undirbúningi á því að byggja Búrfellslund þessa dagana. Svo hart að þrátt fyrir að Búrfellslundur sé ekki kominn í skipulag sveitarfélagsins sem hann á að rísa í og Orkustofnun hafi ekki gefið út virkjanaleyfi, þá er samt búið að bjóða út vindmyllurnar, það liggur svo mikið á!

Segir áætlaðan vindmyllugarð alfarið innan marka Rangárþings ytra
Landsvirkjun segir greinilega einhvern misskilning á ferð hjá sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps um staðsetningu áætlaðrar uppbyggingar vindmyllugarðs. Fyrirhugaður Búrfellslundur sé alfarið innan marka nágrannasveitarfélagsins Rangárþings ytra.

Hella sér yfir Landsvirkjun vegna útboðs á vindmyllum
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps mótmælir harðlega vinnubrögðum Landsvirkjunar við undirbúning útboðs á vindmyllum við Vaðöldu. Sveitarstjórnin segir að uppbyggingu vindmyllugarðs myndi vinna gegn hagsmunum nærsamfélagsins og valda óbætanlegu tjóni til framtíðar.

Þrír kiðlingar fæddir – Vorstemming í sveitinni
Þrír kiðlingar voru að koma í heiminn á bæ á Skeiðunum en einn þeirra fæddist á gos daginn í Grindavík og fékk að sjálfsögðu nafnið Gosa því hún er huðna. Þá eru hinir tveir kiðlingarnir með nöfn handboltastráka í íslenska landsliðinu.

Vill þjálla nafn á hreppinn
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur samþykkt að kjósa um hvort breyta eigi nafni sveitarfélagsins, og hvert nýtt nafn ætti að vera. Sveitarstjóri telur að nýrra nafn verði að vera þjálla.

Hundruð íbúða byggðar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Hundruð íbúða verða byggðar í þéttbýliskjarnanum Árnesi í Skeiða og Gnúpverjahreppi í tengslum við virkjanir í sveitarfélaginu og opnun Fjallabaðanna og Gestastofu í Þjórsárdal. Þá er búið að ákveða að byggja íþróttahús í Árnesi og stækka skólann þar.

Svín með jólasveinahúfu og jólaskraut
Svín á sveitabæ á Suðurlandi hafa notið jólahátíðarinnar ekki síður en mannfólkið, því þau hafa fengið jólaskraut í stíurnar sínar og jólasveinahúfan er á sínum stað á þeim.

Skaftholtsréttum breytt í skautasvell
Skaftholtsréttir í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hafa fengið tímabundið nýtt hlutverk því búið er að útbúa skautasvell í réttunum. Mikil ánægja er á meðal heimamanna, ekki síst barnanna með nýja skautasvellið þó þar séu engar kindur.

Ætla að gefa Hvammsvirkjun grænt ljós
Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um að heimila breytingar á vatnshloti í Þjórsá 1, vegna framkvæmda við 95 megavatta Hvammsvirkjun. Telur stofnunin að sjónarmið um raforkuöryggi vegi þyngra en umhverfissjónarmið vatnshlotsins.

Hópur bænda í Skeiða- og Gnúpverjahreppi mótmæla vindmyllum
Mikil óánægja er á meðal hóps bænda í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem mótmæla harðlega uppsetningu vindmyllugarðs með tuttugu og fimm vindmyllum í landi Skáldabúða í nágrenni við jarðir þeirra. Forsvarsmaður þýsks orkufyrirtækis, sem hyggst reisa garðinn, segir hins vegar að íbúar hafa almennt tekið hugmyndinni mjög vel.

Urriðafoss virkjaður en Héraðsvötn vernduð
Þrír virkjunarkostir færast úr biðflokki yfir í nýtingarflokk en tveir úr biðflokki yfir í verndarflokk, samkvæmt tillögudrögum verkefnisstjórnar að rammaáætlun sem kynnt voru í dag.

Tefjast orkuskiptin vegna 208 króna á mánuði?
Það hefur mikið verið rætt og skrifað um boðuð orkuskipti. Ekki hefur skort á samtalið, samráðið, orkufundi, ráðstefnur, málstofur og vinnuhópana í umræðu um boðuð orkuskipti.

Álftir búnar að éta upp átta hektara af korni hjá Björgvini bónda
Kornbóndi á Suðurlandi hefur orðið fyrir milljóna tjóni í haust vegna álfta, sem hafa étið upp sex til átta hektara af korni hjá honum. Bóndinn segir fuglana sitja um akrana en ekki má fækka þeim þar sem álftin er friðuð. „Alveg glatað“ segir bóndinn.

Yfirgangur Landsvirkjunar gegn íbúum við Þjórsá og gagnvart lífríki og umhverfi árinnar
Ég er einn þeirra íbúa Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem kominn er með nóg af yfirgangi og virðingarleysi ákveðinna afla, gagnvart náttúrunni, lýðræðinu og faglegum vinnubrögðum. Þar ber hæst Landsvirkjun sem haldið hefur íbúum í gíslingu með yfirvofandi virkjunum í neðri hluta Þjórsár, árum saman.

Vindorka í ósnortinni náttúru eða í byggð?
Orkuskiptin eru fram undan og nokkuð ljóst er að vindorkuver munu rísa á Íslandi áður en langt um líður. Hingað til höfum við beislað vatnsaflið og jarðvarmann sem eru staðbundnir virkjanakostir. Þar beislum við orkuna þar sem hún er í iðrum jarðar eða rennur frá hálendinu út í sjó.

Ákváðu að kæra eftir að bent var á fleiri myndskeið
Umhverfisstofnun mun skila kæru til Lögreglunnar á Suðurlandi vegna utanvegaaksturs Þjóðverjans Petes Ruppert í fyrramálið.

Holan hugsanlega ólögleg en ekki endilega aksturinn
Glæfralegur akstur þýsks ferðamanns á fjórtán tonna jeppa er kominn inn á borð Umhverfisstofnunar. Forstjóri hennar segir að atvikið skeri sig úr en ekki sé öruggt að aksturinn hafi verið ólögmætur.

Trukkar flækist ítrekað um hálendið eftirlitslaust
Formaður vina Þjórsárvera segir ljóst að hræðilegt slys hafi orðið á slóðanum sem þýskur hertrukkur festist á fyrr í mánuðinum. Hún segist ítrekað hafa kallað eftir úrbótum en talað fyrir lokuðum eyrum.

Vegurinn illa farinn eftir fjórtán tonna hertrukk
Land í Þjórsárverum er illa farið eftir að þýskur ferðamaður ók fjórtán tonna hertrukk þar yfir og festist. Myndbönd sem ferðamaðurinn birti á netinu hafa vakið athygli.

Matvælaframleiðsla eigi undir högg að sækja á Íslandi
Íslensk matvælaframleiðsla á undir högg að sækja að sögn ungs kúabónda. Síðustu ár hafi stjórnvöld markvisst grafið undan framleiðslunni.

Sigurveig úr Íslandsbanka í Landstólpa
Sigurveig Sigurðardóttir hefur verið ráðin sem nýr fjármálastjóri Landstólpa og mun hefja störf þar um næstu mánaðarmót. Sigurveig fer í Landstólpa úr Íslandsbanka þar sem hún starfaði sem viðskiptastjóri á Selfossi.

Erlendu ferðamennirnir við Kerlingafjöll fundnir
Erlendir ferðamenn sem leitað var að í Kerlingafjöllum í gærkvöld fundust heilir á húfi eftir miðnætti í nótt.

Orkuvinnsla og samfélög
Samfélög verða til í kringum atvinnu og verðmætasköpun. Með verðmætasköpun fyrirtækja verða til störf og þar sem mikil verðmætasköpun á sér stað vilja oft verða til verðmætustu störfin.

Nautin Bubbi Morthens, Helgi Björns, Aron Can, Stebbi Jak og Páll Óskar
Bubbi Morthens, KK, Aron Can, Helgi Björn, Stebbi Jak, Páll Óskar og Herra Hnetusmjör láta fara vel um sig á grösugum túnum á sveitabæ á Suðurlandi. Hér erum við reyndar að tala um naut, sem öll bera nöfn þekktra tónlistarmanni.

Ný Þjórsárbrú við Árnes sett í salt eins og Hvammsvirkjun
Ný brú yfir Þjórsá á móts við Árnes, sem til stóð að bjóða út í haust, frestast um óákveðinn tíma eftir að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi. Oddvitar sveitarfélaganna beggja vegna Þjórsár vonast til að brúarsmíðin tefjist ekki of mikið og segja brúna hafa mikla þýðingu fyrir uppsveitir Suðurlands.

Kassabílar við vígslu nýrrar brúar yfir Stóru-Laxá
Börn og kassabílar voru í aðalhlutverki í dag þegar ný tvíbreið brú var formlega opnuð yfir Stóru – Laxá, sem liggur á mörkum Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Hrunamannahrepps.

Hrasaði við Háafoss
Björgunarsveitir voru boðaðar út síðdegis í dag vegna ferðamanns sem talið var að hefði hrasað og sennilega ökklabrotnað við Háafoss.

Segir taka mánuði að skoða nýtt virkjunarleyfi í Þjórsá
Orkustofnun og Umhverfisstofnun vinna núna að því að bæta úr þeim ágöllum sem urðu til þess að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar í Þjórsá var fellt úr gildi. Forstjóri Umhverfisstofnunar segir skipta miklu máli að vanda til verka.