„Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 6. febrúar 2026 22:15 Sólveig Anna starfaði sjálf um árabil á leikskóla og hefur hún miklar áhyggjur af ástandinu. Vísir/Einar Ástandið á leikskólum borgarinnar hefur aldrei verið verra að mati formanns Eflingar. Leikskólakerfið eins og það sé nú gangi ekki upp og ástandið bitni á andlegri og líkamlegri heilsu starfsfólksins. Hún hvetur stjórnvöld til að lengja fæðingarorlofið til að létta á kerfinu.
Leikskólastjórar á öllum borgarreknu leikskólunum lýstu í vikunni í bréfi til borgarstjóra yfir verulegum áhyggjum af stöðu skólanna og gagnrýndu borgaryfirvöld. Þeir krefjast aðgerða og lýsa yfir vonbrigðum með að ákveðið hafi verið að fresta gildistöku svokallaðrar Reykjavíkurleiðar en í henni felast meðal annars hvatar til að börn dvelji ekki meira en í þrjátíu og átta tíma á viku í leikskólanum. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar fagnar samstöðunni hjá leikskólastjórum og segir félagsmenn sína, sem starfa á leikskólunum, lýsa mjög erfiðu ástandi þar. Klippa: Ástandið aldrei verið verra „Ástandið hefur bara versnað síðustu ár og það hefur í raun aldrei verið verra. Þetta sáum við líka með skýrum hætti í könnuninni sem við létum gera fyrir Eflingarfólk þar sem fólk var spurt einmitt: „Styðjið þið þessar breytingartillögur eða ekki?“ Þá bárust okkur fjölmörg opin svör, öll snerust þau meira og minna um mönnun eða álag og konur með margra áratuga starfsreynslu voru að segja að ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt og það er núna.“ Þannig séu undirmönnun, mikil veikindi starfsfólks, töluverð starfsmannavelta og mikið álag að buga starfsfólkið. „Þetta er ekki eins og þetta sé eitthvert eitt vandamál eða tvö vandamál heldur eru vandamálin alls staðar. Vegna þess að kerfið, eins og það er sett upp núna með styttingu vinnuvikunnar niður í þrjátíu og sex stundir fyrir starfsfólk en óbreyttan fjölda tíma fyrir börnin, er bara þannig að það eru ekki nægilega margir á staðnum til þess að geta látið þetta ganga upp. Það bitnar auðvitað á faglegu starfi en það bitnar auðvitað fyrst og síðast á andlegri og líkamlegri heilsu þeirra sem vinna þarna og það sjáum við bara allt í kringum okkur.“ Hún hvetur stjórnvöld til að taka þátt í að leysa málin. „Það sem gæti hjálpað mjög mikið er að lengja fæðingarorlof mögulega upp í átján mánuði en í það minnsta upp í sextán mánuði. Það myndi létta á kerfinu og það myndi gefa kerfinu þetta mikilvæga svigrúm sem að leikskólakennarar, leikskólastjórar og starfsfólkið er að kalla eftir.“
Leikskólar Reykjavík Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Tengdar fréttir Manneklan mest hjá skólum og frístundaheimilum sem tilheyra Austurmiðstöð Enn á eftir að ráða í 30,7 stöðugildi í grunnskólum í Reykjavík, 45,8 grunnstöðugildi í leikskólum og 16,9 stöðugildi í frístundaheimilum og sértækum félagsmiðstöðvum í Reykjavík. Flest þeirra stöðugilda sem á eftir að ráða í tilheyra Austurmiðstöð í leik- og grunnskólum og frístundaheimilum. 16. janúar 2026 07:32 Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Leikskólastjórar á öllum borgarreknum leikskólunum lýsa yfir verulegum áhyggjum af stöðu skólanna og gagnrýna borgaryfirvöld. Þeir krefjast aðgerða og lýsa yfir vonbrigðum með að ákveðið hafi verið að fresta gildistöku svokallaðar Reykjavíkurleiðar. Þolinmæðin sé á þrotum og skólastjórnendur treysti sér að óbreyttu ekki til að bera ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er innan skólanna. 4. febrúar 2026 15:27 Leikskólastjórnendur afar gagnrýnir á skóla- og frístundasvið „Samfélagið, stjórnmálafólk verður núna, árið 2022, að skilja mikilvægi þess að hlúa að yngsta fólkinu sem byrjar rúmlega eins árs í leikskóla og dvelur þar að jafnaði 8,5 klukkustundir fimm daga vikunnar.“ 2. desember 2022 09:35 Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira
Manneklan mest hjá skólum og frístundaheimilum sem tilheyra Austurmiðstöð Enn á eftir að ráða í 30,7 stöðugildi í grunnskólum í Reykjavík, 45,8 grunnstöðugildi í leikskólum og 16,9 stöðugildi í frístundaheimilum og sértækum félagsmiðstöðvum í Reykjavík. Flest þeirra stöðugilda sem á eftir að ráða í tilheyra Austurmiðstöð í leik- og grunnskólum og frístundaheimilum. 16. janúar 2026 07:32
Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Leikskólastjórar á öllum borgarreknum leikskólunum lýsa yfir verulegum áhyggjum af stöðu skólanna og gagnrýna borgaryfirvöld. Þeir krefjast aðgerða og lýsa yfir vonbrigðum með að ákveðið hafi verið að fresta gildistöku svokallaðar Reykjavíkurleiðar. Þolinmæðin sé á þrotum og skólastjórnendur treysti sér að óbreyttu ekki til að bera ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er innan skólanna. 4. febrúar 2026 15:27
Leikskólastjórnendur afar gagnrýnir á skóla- og frístundasvið „Samfélagið, stjórnmálafólk verður núna, árið 2022, að skilja mikilvægi þess að hlúa að yngsta fólkinu sem byrjar rúmlega eins árs í leikskóla og dvelur þar að jafnaði 8,5 klukkustundir fimm daga vikunnar.“ 2. desember 2022 09:35