

Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.
Michael Owen, fyrrum leikmaður Liverpool, Real Madrid og Manchester United, fékk óvænt og óvenjuleg viðbrögð þegar hann óskaði syni sínum til hamingju með átján ára afmælið í vikunni.
Bodö/Glimt er það norska fótboltafélag sem hefur selt leikmenn fyrir langmestan pening á síðustu árum.
Yfirmaður knattspyrnusviðs KSÍ gagnrýnir úthlutun úr Afrekssjóði ÍSÍ. KSÍ hefur ekki fengið úthlutað úr sjóðnum á sjöunda ár.
Ítalska stórliðið Juventus hefur áhuga á Alberti Guðmundssyni sem hefur leikið svo vel með Genoa í vetur.
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar lætur kveinstafi Samúels Samúelssonar, stjórnarmanns knattspyrnudeildar Vestra, sem vind um eyru þjóta. Hún segir bæjaryfirvöld styðja stolt við knattspyrnustarfið fyrir vestan.
ÍA varð Íslandsmeistari fjórða árið í röð og jafnaði stigamet liðsins frá því tveimur árum áður. Skagamenn unnu fyrstu tólf leiki sína og unnu deildina með fjórtán stiga mun. Ólafur Þórðarson var í aðalhlutverki fyrri hluta tímabilsins en seinni hlutann stal Arnar Gunnlaugsson fyrirsögnunum og hirti gullskóinn þrátt fyrir að spila bara sjö deildarleiki.
Markahæsti leikmaður egypska landsliðsins frá upphafi er tekinn við sem þjálfari landsliðsins eftir ófarir liðsins í Afríkukeppninni á dögunum.
Bandaríski landsliðsmaðurinn Duncan McGuire var á leiðinni til enska B-deildarfélagsins Blackburn Rovers áður en glugginn lokaði en enska félagið hefur nú gefið það út að mistök komu í veg fyrir að félagsskiptin gengu í gegn.
Baksíður ensku blaðanna í morgun slá því flestar upp að sá nýjasti í eigendahópi Manchester United hafi mjög metnaðarfull markmið þegar kemur að því að endurbyggja Old Trafford.
Áhugasamir geta nú eignast áritaða Genoa treyju íslenska framherjans Alberts Guðmundssonar og um leið styrkt gott málefni.
Knattspyrnumaðurinn Eggert Gunnþór Jónsson verður spilandi aðstoðarþjálfari KFA í sumar, næstum tveimur áratugum frá því að hann lék síðast fyrir austan.
Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Chelsea, segist hafa fengið jákvæð skilaboð frá eigendum og stjórnarmeðlimum félagsins þrátt fyrir dræmt gengi liðsins undanfarið.
Þrír leikir fóru fram í fjóru umferð ensku bikarkeppninnar, FA-bikarsins, í kvöld. Um var að ræða endurtekna leiki eftir að liðin gerðu jafntefli í fyrri viðureignum.
Jonathan Tah reyndist hetja Bayer Leverkusen er liðið vann dramatískan 3-2 sigur gegn Stuttgart í átta liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld.
KR vann dramatískan 2-3 sigur er liðið heimsótti HK í fyrstu umferð Lengjubikar karla í knattspyrnu í kvöld.
Gísli Eyjólfsson er genginn í raðir sænska úrvalsdeildarfélagið Halmstad frá Breiðabliki.
Guðný Árnadóttir lagði upp annað mark AC Milan er liðið vann 3-0 sigur gegn Sassuolo í átta liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í dag.
Jórdanía tryggði sér í dag sæti í úrslitum Asíumótsins í knattspyrnu í fyrsta sinn í sögunni er liðið vann óvæntan 2-0 sigur gegn Suður-Kóreu.
Alexandra Jóhannsdóttir og stöllur hennar í Fiorentina eru komnar áfram í undanúrslit ítalska bikarsins í fótbolta eftir maraþoneinvígi við Inter.
Það gæti reynst Chelsea dýrt að reka knattspyrnustjórann Mauricio Pochettino, ekki bara í milljónum talið heldur gæti liðið einnig tapað stigum á því.
Spænski miðjumaðurinn Rodri gat fagnað merkum áfanga um leið og hann fagnaði 3-1 sigri Manchester City gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöld.
Willum Þór Willumsson, landsliðsmaður í fótbolta, er kominn í tveggja leikja bann í hollensku úrvalsdeildinni eftir brot sem þjálfari hans kallaði „heimskulegt“. Hann missir meðal annars af slag við erkifjendur um næstu helgi.
Ísafjarðarbær þarf að þjónusta og styðja við fótboltastarfið í bænum með mun betri hætti en nú er. Þetta segir Samúel Sigurjón Samúelsson, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Vestra.
Ársþing Knattspyrnusambands Íslands fer fram seinna í þessum mánuði og sambandið telur ástæðu til þess að hvetja félög sína til að huga að kynjaskiptingu við val sitt á þingfulltrúum.
Leiðin að úrslitaleiknum í Bilbao, í Meistaradeild kvenna í fótbolta, er nú orðin ljós fyrir liðin átta sem eftir standa í keppninni. Þar á meðal er eitt Íslendingalið.
Ronald Koeman, fyrrum leikmaður og þjálfari Barcelona, skilur vel kvartanir Xavi um hversu erfitt sé að vinna í kringum alla pólitíkina í spænska félaginu.
Nígeríumenn hafa miklar áhyggjur af aðalstjörnu liðsins þegar liðið er aðeins einum leik frá því að komast í úrslitaleik Afríkukeppninnar í knattspyrnu.
Þór/KA hefur styrkt sig fyrir átökin i Bestu deild kvenna í fótbolta í sumar en félagið hefur samið við tvo nýja erlenda leikmenn.
Fram varð Íslandsmeistari 1988, í annað sinn á þremur árum, með fáheyrðum yfirburðum og setti stigamet sem stendur enn í tíu liða deild með þriggja stiga reglunni. Fram-vörnin óvinnandi vígi og Birkir Kristinsson hélt tólf sinnum hreinu í átján leikjum. Framar á vellinum voru Pétur Ormslev og Guðmundur Steinsson aðalmennirnir.
Samuel Eto'o ætlaði að segja af sér sem forseti kamerúnska knattspyrnusambandsins í gær en framkvæmdastjórn sambandsins tók hana ekki gilda.