

Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir að Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, sé undir mikilli pressu að vinna titil, eða titla, í sumar.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Val 1. sæti Bestu deildar karla í sumar.
Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir að Íslandsmeistarar Víkings geti bætt enn frekar í og segir að spennandi tímabil sé í vændum í Fossvoginum.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Víkingi 2. sæti Bestu deildar karla í sumar.
Halldór Smári Sigurðsson, fyrirliði Víkings, verður á hliðarlínunni þegar hans menn opna Bestu deild karla gegn Stjörnunni í Víkinni í kvöld. Hann kvíðir því að þurfa að horfa á leikinn úr stúkunni.
Ísak Snær Þorvaldsson hefur verið lánaður til Bestu deildar liðs Breiðabliks frá norska úrvalsdeildarfélaginu Rosenborg út komandi leiktíð í Bestu deild karla. Þetta staðfestir Breiðablik í færslu á samfélagsmiðlum.
Stjörnumenn hafa bætt við sig ungum leikmanni nú þegar keppnistímabilið í Bestu deild karla í fótbolta er að bresta á.
Besta deild karla í knattspyrnu fer af stað á morgun, laugardag. Þar verður Ingvar Jónsson, besti markvörður deildarinnar undanfarin ár, í sviðsljósinu og þá reiknar Vísir með að Árni Snær Ólafsson standi vaktina í marki Stjörnunnar líkt og á síðasta tímabili.
Valsmenn boðuðu til blaðamannafundar á Hlíðarenda í dag, vegna upphafs Bestu deildar karla í fótbolta. Fundurinn var í beinni útsendingu og á honum sátu fulltrúar Vals og ÍA fyrir svörum.
Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir forsendur fyrir góðu gengi hjá Breiðabliki í Bestu deild karla í sumar.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Breiðabliki 3. sæti Bestu deildar karla í sumar.
Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir Stjörnuna vera spurningarmerki skömmu áður en keppni í Bestu deild karla hefst.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Stjörnunni 4. sæti Bestu deildar karla í sumar.
Fótboltamaðurinn Hallgrímur Mar Steingrímsson verður frá um hríð vegna svæsinna veikinda sem herjuðu á hann á dögunum. Síðustu dagar hafa verið honum þungbærir.
Íslenskur toppfótbolti (ÍTF) og Deloitte hafa gengið frá undirritun samstarfssamnings sem gildir til ársloka 2026.
Orri Hrafn Kjartansson mun leika með Fylki á komandi tímabili í Bestu deildinni. Hann kemur á láni til félagsins frá Valsmönnum út tímabilið.
Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir aukin umsvif KR á félagaskiptamarkaðnum minna á gamla tíma.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir KR 5. sæti Bestu deildar karla í sumar.
Sérfræðingar Stúkunnar velta fyrir sér hverju koma Viðars Arnar Kjartanssonar muni breyta fyrir KA.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir KA 6. sæti Bestu deildar karla í sumar.
Hallgrímur Mar Steingrímsson verður ekki með KA þegar leikar hefjast í Bestu deild karla í knattspyrnu nú um helgina. Hann hefur verið að glíma við veikindi og verður ekki klár í fyrsta leik.
ÍTF, hagsmunasamtök félaganna í efstu deildum Íslands í fótbolta, hafa opnað fyrir skráningu í draumadeildarleik sem tengist Bestu deild karla í fótbolta.
FH hefur gengið frá samningum við Ísak Óla Ólafsson út leiktíðina 2027. Hann kemur frá Esbjerg í Danmörku.
Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, veit ekki alveg hvar hann hefur FH skömmu áður en keppni í Bestu deild karla hefst.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir FH 7. sæti Bestu deildar karla í sumar.
Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur Stúkunnar, finnst teikn á lofti um að ÍA falli ekki í sama pytt og áður, þegar liðið hefur komið upp úr næstefstu deild.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir ÍA 8. sæti Bestu deildar karla í sumar.
Fótboltasumarið er handan við hornið og Stúkan er í loftinu í kvöld með sinn árlega upphitunarþátt.
Kynningarfundur Bestu-deildar karla stendur nú yfir og á fundinum var opinberuð spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna liðanna um það hvernig deildin færi.
Á kynningarfundi Bestu-deildar karla í dag var hulunni svipt af áhugaverðri könnun sem gerð var meðal leikmanna deildarinnar.