16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Valur Páll Eiríksson skrifar 8. október 2026 22:25 Atli Freyr átti ótrúlega frumraun í efstu deild. KKÍ Hinn 16 ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson átti sögulega frumraun fyrir Val í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld. Hann var bestur á vellinum í öruggum sigri á Stjörnunni.
Atli Freyr var fyrstur á vellinum til að ná tvöfaldri tvennu í kvöld en Dwayne Lautier, stjörnuleikmaður Vals, rétt náði því sama með tíunda frákasti sínu í fjórða leikhluta. Atli var þá með 100 prósent skotnýtingu langt framan af leik en endaði stigahæstur Valsmanna með 18 stig, frákastahæstur á vellinum með 12 fráköst og með skotnýtingu upp á heil 77 prósent. Óhætt er að segja að hann hafi ekki búist við þessu þegar hann mætti á Hlíðarenda fyrr í dag. „Nei, ég var bara að búast við að ég myndi eiga mjög venjulegan leik, verandi í meistaraflokki sem 16 ára drengur. Ég var ekki að búast við þessu, svo hélt leikurinn áfram og ég nýtti skotin og við unnum,“ segir Atli Freyr við Sýn Sport eftir leik. „Ég elska þetta. Ég elska að spila í þessu umhverfi, ég elska allt við Bónus-deildina og að vera í meistaraflokknum,“ segir kampakátur Atli Freyr. Valsmenn mættu nokkuð vel í stúkuna í kvöld en stuðningsmenn þeirra eru ekki þekktir fyrir að láta mikið í sér heyra í deildarkeppninni. Nánast hver einasti maður var hins vegar farinn að standa upp og fagna Atla eftir því sem körfum þessa uppalda leikmanns rigndi niður. „Hún er bara ein besta tilfinning sem ég hef upplifað á ferlinum hingað til,“ segir Atli. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, sagði í viðtali eftir leik að Valsmenn hafi tekið meðvitaða ákvörðun um að spila Atla ekki í fyrra og láta hann taka eitt ár enn í yngri flokkum. Atli Freyr kom svo á fullt inn á æfingar aðalliðsins í sumar. „Mér fannst þetta rétti tíminn. Ég var ekki nægilega tilbúinn fyrir ári. Núna er ég bara all in með meistaraflokknum og það er besta ákvörðun sem ég gat tekið,“ segir Atli og óhætt er að segja að honum leiðist ekki að æfa með frábæru Valsliði. „Þetta er geggjað umhverfi, ég elska alla sem ég er að æfa með. Frábær andi og þetta er bara geðveikt,“ segir Atli sem er á fyrsta ári í menntaskóla og var á leið heim á koddann. „Núna er bara endurhæfing. Svo bara að sofa vel og fara í skólann á morgun.“
Valur Bónus-deild karla Körfubolti Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Fleiri fréttir Tindastóll - Álftanes | Stórliðið mætir á Sauðárkrók Stjarnan - ÍR | Fá heimamenn langþráðan sigur? KR - Sindri | Heldur sigurganga KR-inga áfram? Keflavík - Höttur | Hörð barátta um miðja deild „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu Sjá meira