Körfubolti

Njarð­víkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Okeke treður boltanum í körfuna sem leikmaður Álftanesliðsins.
David Okeke treður boltanum í körfuna sem leikmaður Álftanesliðsins. Vísir / Anton Brink

Njarðvíkingar hafa yngt aðeins upp í leikmannahópnum sínum í Bónusdeild karla í körfubolta með því að skipta Grikkjanum Fotios Lampropoulos út fyrir Ítalann David Okeke.

Miðherjinn David Okeke er íslensku körfuknattleiksfólki vel kunnugur eftir að hafa leikið með Keflavík, Haukum og Álftanesi hér á landi.

Okeke er 208 sentimetrar á hæð og mun þétta og styrkja teiginn hjá Njarðvíkurliðinu fyrir komandi átök. Hann var með 17,9 stig og 8,9 fráköst að meðaltali með Álftanesi á síðustu leiktíð en hefur alls skorað 16,5 stig að meðaltali í 94 úrvalsdeildarleikjum á Íslandi.

Með komu Okeke munu Njarðvíkingar hins vegar kveðja Fotios Lampropoulos sem kom og hjálpaði sínu gamla félagi vegna meiðslavandræða og spilaði alls þrjá leiki í ár eftir að hafa leikið með Njarðvík áður árin 2021 til 2022.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×