Körfubolti

„Kær­kominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindvíkinga.
Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindvíkinga. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

„Tilfinningin er góð og kærkomið að fá góðan sigur,“ sagði Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, eftir sex stiga sigur liðsins gegn Stjörnunni í Bónus-deild karla í kvöld.

Þetta var fyrsti sigur Grindvíkinga á tímabilinu, en fyrr í vikunni mátti liðið þola heldur niðurlægjandi tap gegn 1. deildarliði Breiðabliks í bikarnum.

„Heilt yfir var þetta bara þokkalega stöðug og góð frammistaða. Þetta var bara mjög gott,“ bætti Jóhann við.

Grindvíkingar þurftu að elta Stjörnuna fyrstu mínútur leiksins, en eftir miðbik 1. leikhluta náði liðið forystunni og lét hana aldrei af hendi.

„Við fáum góðar körfur og fín stopp og náum að skora svolítið í transition. Náum að byggja upp forystuna þannig og erum að setja opin skot þegar þeir eru að pakka teiginn. Þetta var bara svona sitt lítið af hverju. Við tökum tvö stig og það var lífsnauðsynlegt og það er það sem við tökum úr þessu,“ sagði Jóhann.

Hann vonar að sigur kvöldsins sé byrjunin á eihverju góðu og að liðið sé að spyrna sér frá botninum eftir erfiða byrjun.

„Vonandi er þetta bara byrjunin á einhverju góðu. Þetta er náttúrulega bara einn leikur, en ef við tökum næsta og einhverja fleiri leiki þá verður þessi umræða fljót að gleymast. Þetta er bara undir okkur komið. Það eru að klárast núna þrír leikir á sex dögum þannig að við tökum okkur bara tveggja daga hvíld núna og svo byrjar undirbúningur fyrir leikinn á móti Njarðvík í næstu viku,“ sagði Jóhann að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×