Körfubolti

Haukar völtuðu yfir KR og Ár­mann hrekkti meistarana

Sindri Sverrisson skrifar
Tinna Guðrún Alexandersdóttir fór á kostum gegn KR í kvöld.
Tinna Guðrún Alexandersdóttir fór á kostum gegn KR í kvöld. vísir/Diego

Íslandsmeistarar Njarðvíkur unnu ansi nauman sigur gegn Ármanni í Laugardalshöll í kvöld í 5. umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta. Spennan var hins vegar engin á Ásvöllum þar sem Haukar unnu stórsigur gegn KR, 96-67.

Mikil spenna var undir lokin í Laugardalshöll en þar vann Njarðvík þó að lokum sex stiga sigur, 87-81.

Jónína Þórdís Karlsdóttir hafði minnkað muninn í 84-81 þegar enn var rúm mínúta eftir en Ármenningar töpuðu boltanum í tvígang afar klaufalega á lokamínútunni áður en Helena Rafnsdóttir gerði svo gott sem út um leikinn með fallegum þristi.

Helena endaði með 22 stig og sex stoðsendingar en stigahæst hjá Njarðvík var Brittany Dinkins með 27 stig. Diamond Battles var stigahæst hjá Ármanni með 24 stig og Jónína Þórdís skoraði 21 auk þess að taka sjö fráköst.

Á Ásvöllum komust Haukar í 27-18 í fyrsta leikhluta og höfðu náð ellefu stiga forskoti í hálfleik, 52-41. Heimakonur unnu svo þriðja leihlutann 21-8 og gerðu út um leikinn en niðurstaðan varð 29 stiga sigur þeirra.

Jadakiss Guinn og Tinna Guðrún Alexandersdóttir voru í aðalhlutverkum í kvöld en sú fyrrnefnda skoraði 28 stig auk þess aðt aka 13 fráköst og gefa 10 stoðsendingar. Tinna var litlu síðri með 27 stig, sjö fráköst og fimm stoðsendingar.

Sara Rún Hinriksdóttir, Dazia Lawrence og Aaliyah Pittsova skoruðu flest stig fyrir KR í kvöld eða 15 hver.

Njarðvík náði með sigrinum í kvöld að jafna Grindavík að stigum á toppnum, með átta stig, en Grindavík á leik til góða við Fjölni á morgun. Haukar og KR eru nú jöfn að stigum með sex stig en Ármann er enn án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×