Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Jón Ísak Ragnarsson skrifar 6. maí 2025 23:50 Þorsteinn Sæmundsson varaþingmaður Miðflokksins er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Vísir/Vilhelm Nokkrir þingmenn Miðflokksins hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Lagt er til að starfslokaaldur verði 73 ára í stað 70 ára.
Flutningsmenn frumvarpsins eru Þorsteinn Sæmundsson, Bergþór Ólason, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þorgrímur Sigmundsson. Þetta er í áttunda skiptið sem frumvarpið er lagt fram, en það var síðast lagt fram í óbreyttri mynd á síðasta þingvetri og er það nú lagt fram óbreytt á nýjan leik. Í greinargerð frumvarpsins segir að lífaldur Íslendinga hafi hækkað frá setningu laganna árið 1996 og auk þess hafi heilsufar þjóðarinnar batnað þannig að menn séu hraustir lengur fram eftir ævi. Sú breyting hafi verið gerð á lögum um almannatryggingar árið 2007 að nú sé hægt að hefja lífeyristöku á bilinu 65 ára til 80 ára aldurs. „Breytingin gagnast ríkisstarfsmönnum ekki, hvort sem um er að ræða skipaða embættismenn eða ráðna starfsmenn, því að báðum hópum er gert að láta af störfum þegar 70 ára aldri er náð samkvæmt gildandi lögum.“ „Alkunna er að mikill auður liggur í reynslu og þekkingu starfsmanna sem unnið hafa sem sérfræðingar og embættismenn um langa hríð. Það er því bæði þeim og ríkiskerfinu til hagsbóta að almennir starfsmenn og embættismenn eigi kost á því að starfa lengur en til 70 ára aldurs ef þeir kjósa.“ Þorsteinn Sæmundsson var til viðtals um málið í Reykjavík síðdegis í dag.
Alþingi Miðflokkurinn Mest lesið Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Erlent Indland gerir árás á Pakistan Erlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Innlent Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Erlent „Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Innlent Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt Innlent Fleiri fréttir Stútur á 106 þar sem hámarkshraði var sextíu Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Moskítóflugur muni koma til Íslands Áberandi ráðamenn „keppist við að hnykla vöðva sína, beita hótunum og þvingunum“ Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt Fékk rætin skilaboð vegna veðmála eftir að hafa klikkað á vítum Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Álfurinn í landsliðsbúningi í ár Líflátshótanir í kjölfar veðmála og óttaslegin eftir útburð Þrír fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys við Smáralind Ekki talin yfirvofandi hætta en maðurinn geti orðið hættulegur Núverandi fyrirkomulag „virðist hylma yfir ábyrgð og gagnsæi“ Ítarleg skýrsla á borði ráðherra Inga skipar konu í stað karls í stjórn HMS Óboðlegt að vera „friðardúfur“ í kosningabaráttu og horfa síðan þögul á „hryllingsmynd í beinni“ Líkur á nýju gosi munu aukast þegar líða fer á haustið „Því miður er þetta þrautalending“ Reikningum Flokks fólksins lokað um stund „Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Konan í Bríetartúni komin á götuna Hækkandi matarverð hringir bjöllum hjá ráðherra Viðvörunarbjöllur óma vegna verðhækkana Lítur það grafalvarlegum augum ef ráðherra fari ekki að lögum Treystir Ingu til að leggja mat á hæfi stjórnarmanna og að lögum sé fylgt Konungshjónin tóku á móti Höllu og Birni Hasar við Bríetartún 20: Verið að bera konuna út „Þetta er salami-leiðin“ Gunnlaugur Claessen er látinn Sjá meira