Átök í Ísrael og Palestínu

Fyrstu mannslátin vegna árása Húta á Rauðahafi
Tveir áhafnarmeðlimir flutningaskipsins True Confidence létu lífið í eldflaugaárás Húta undan ströndum Jemen í dag. Um ræðir fyrstu mannslátin frá því að hersveitir Húta hófu að gera árásir á flutningaskip sem sigla um Rauðahafið.

Þitt er valið
Nú eru liðnir þrír mánuðir síðan ljóðskáldið Refaat Alareer, höfundur ljóðsins "If I must die", var myrtur ásamt fjölskyldu sinni á heimili þeirra á Gaza.

Nokkrir tugir sem hafa dvalarleyfi á Íslandi enn fastir á Gasa
Stofnandi Solaris hjálparsamtakanna gerir athugasemd við íslensk stjórnvöld hafi bara sótt sjötíu og tvo Gasabúa út af svæðinu en ekki alla sem hafa dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameingar. Nokkrir tugir Palestínumanna sem hafa dvalarleyfi á Íslandi eru enn fastir á Gasa. Sjálfboðaliðar hyggjast bjarga þeim ef stjórnvöld gera það ekki.

Þarf lítil þúfa alltaf að velta þungu hlassi?
Varðandi málefni Palestínu eru okkur iðulega færð þau rök að lítið ríki eins og Ísland hafi svo lítil áhrif þannig að afhverju ættum við að gera eitthvað? Í sambandi við þátttöku RÚV í Eurovision, þrátt fyrir að Ísraelar taki þátt, er gjarnan vísað í það að Ísland ætti aðeins að segja sig úr keppni með hinum Norðurlöndunum eða ef við vitum að önnur ríki fylgja eftir. Hvers vegna er það?

Fengu ekki að koma hjálpargögnum inn á norðurhluta Gasa
Alþjóðamatvælastofnunin segir að Ísraelsher hafi komið í veg fyrir að hægt yrði að senda hjálpargögn inn á norðurhluta Gasa svæðisins.

Táraðist þegar hann heyrði fréttirnar frá Kaíró
Félagsmálaráðherra táraðist þegar hann frétti af því að utanríkisráðherra og sendinefnd ráðuneytisins hefði tekist að bjarga sjötíu og tveimur dvalarleyfishöfum út af Gasasvæðinu. Hópurinn er væntanlegur til landsins á næstu dögum og það er að mörgu að hyggja.

Er stríðið á Gaza, stríð gegn konum?
Átökin á Gaza hafa nú staðið yfir í nærri fimm mánuði. Frá upphafi átakanna hafa meira en 30.500 einstaklingar verið drepnir og 71.900 særst – meirihluti þeirra eru konur og börn. Þá hefur fjöldi barna látist vegna vannæringar.

Náðu 72 yfir landamærin en 13 á upphaflegum lista stjórnvalda enn fastir á Gasa
Sjötíu og tveimur Palestínumönnum, sem eru með dvalarleyfi á Íslandi, var bjargað út af Gasasvæðinu í kjölfar símafundar utanríkisráðherra við ísraelskan kollega sinn síðastliðinn þriðjudag. Utanríkisráðherra segir að drjúgur meirihluti dvalarleyfishafa á Gasa hafi fengið samþykki fyrir því að fara yfir landamærin, en þó ekki allir því þrettán sem eru á upphaflegum lista stjórnvalda eru eftir á Gasa samkvæmt upplýsingum fá utanríkisráðuneytinu. Íslenskir sjálfboðaliðar eru staðráðnir í að sækja þá sem eftir eru.

Fengu grænt ljós á flutning 72 dvalarleyfishafa frá Gasa
Sjötíu og tveir einstaklingar frá Gasa, sem eru með dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar, komu til Kaíró í Egyptalandi seint í gærkvöldi og halda í kjölfarið til Íslands. Þetta gerist eftir að ísraelsk stjórnvöld afgreiddu fyrirliggjandi nafnalista íslenskra stjórnvalda um helgina.

Utan vallar: Hvað mega heilindin kosta?
Þeir sem valdið hafa hjá Knattspyrnusambandi Íslands eru ekki í öfundsverðri stöðu vegna andstæðings karlalandsliðsins í komandi umspili fyrir Evrópumótið. Ekki stendur til að sniðganga leikinn við Ísrael og það hefur ekki einu sinni komið til umræðu hjá sambandinu.

Skýr merki um að Hamas hafi beitt konur og börn kynferðisofbeldi
Sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í málefnum er varða kynferðisofbeldi í átökum segir skýr merki um að konum og börnum í haldi Hamas-samtakanna hafi verið nauðgað og þau beitt kynferðislegum pyntingum.

Ísrael
Það orð vildi hann helst ekki taka sér í munn lengur;

Ríkisstjórn Íslands og Palestína: Rangar ákvarðanir, röng skilaboð
Við Íslendingar stigum mikilvægt skref þann 29. nóvember 2011 þegar við urðum fyrst vestrænna þjóða til að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki.

„Fólk er algerlega að fella rasistagrímuna“
Harðar deilur hafa skapast meðal Eurovision-aðdáenda vegna sigurs Heru Bjarkar í söngvakeppni Ríkisútvarpsins og meints klúðurs í framkvæmd símakosninga. Eurovision-aðdáandi segir ógnvekjandi að sjá hversu hatrömm umræða hafi skapast.

Bubbi óttast púðurtunnu rasismans
Bubbi Morthens er þungt hugsi yfir þeim gífuryrðum sem fallið hafa á samfélagsmiðlum um helgina í tengslum við Söngvakeppni Ríkisútvarpsins. Hera Björk stóð uppi sem sigurvegari eftir baráttu við Bashar Murad. Lokatölur eru óbirtar og sitt sýnist hverjum um niðurstöðuna.

„Ef ekki væri fyrir sjálfboðaliðana gæti ég ekki faðmað fjölskylduna mína“
Fjölskyldufaðir frá Palestínu er fullur þakklætis í garð íslenskra sjálfboðaliða sem björguðu fjölskyldu hans frá Gasa. Hann segist bæði stoltur og glaður yfir að fá að búa hér.

Texta Október-regns breytt að kröfu forseta Ísrael
Ísraelar hafa samþykkt að breyta texta lagsins „October Rain“ sem þykir líklegast til að verða framlag landsins í Eurovision í ár. Um er að ræða ballöðu sem sungin er af Eden Golan og virðist fjalla um árás Hamas á byggðir Ísraelsmanna 7. október síðastliðinn.

Ísraelsmenn sniðgengu samningaviðræðurnar í gær
Ísraelsmenn eru sagðir hafa sniðgengið samningaviðræður um vopnahlé sem fram fóru í Kaíró í gær sökum þess að Hamas-samtökin neita að afhenda lista yfir þá gísla sem enn eru á lífi og í haldi samtakanna.

Vonir bundnar við vopnahlésviðræður í dag
Búist er við að sáttasemjarar frá bæði Ísrael og Hamas gangi til vopnahlésviðræðna í Kaíró í dag. Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að Bandaríkin hygðust henda neyðarbirgðum úr lofti yfir Gasa.

Rasískar íslenskar ömmur tilefni til að hafa áhyggjur
Dagur Hjartarson rithöfundur og kennari segir ekkert nýtt að sjá fúla afa tjá sig með rasískum hætti á vefmiðlum. En þegar hann sé farinn að verða jafn var við rasískar ömmur, sömu ömmur og samélagið hangir að stóru leyti saman á, er hann orðinn áhyggjufullur. Það slær hann.

Skip sökk eftir loftárás Húta
Flutningaskipið Rubymar sökk í Rauðahafinu í gærkvöldi eftir loftárás Húta í Jemen. Skipið er það fyrsta til þess að sökkva vegna aðgerða Húta í tengslum við stríðið á Gasa.

Hver mun stöðva blóðbaðið sem flæðir um Palestínu?
Í meira en sjö og hálfan áratug hefur palestínska þjóðin grátið. Á hverjum degi eykst neyð hennar. Hún grét eftir fyrstu hörmungarnar árið 1948, eftir áfallið árið 1967, og hún hefur grátið vegna landflótta og þjáninga sem hafa fylgt henni fram að hörmungunum nú í október á síðasta ári. Myndir af eyðileggingu og ógæfu birtast af borgum, þorpum og flóttabúðum í Palestínu. Og ekki aðeins frá Gaza-svæðinu.

Kvikusöfnun sársaukans
Í dag sá ég að kollegi minn á Instagram, skáldið og bókavörðurinn Mosab Abu-Toha, var að segja frá því að 150 manns sem hefðu verið að bíða komu nauðsynja; hveitis, vatns, lyfja o.s.frv. hefðu verið skotnir af Ísraelsher. Myrtir.

Bandaríkin henda hjálpargögnum úr lofti yfir Gasa
Bandaríkin hyggjast henda hjálpargögnum úr lofti yfir Gasa svæðið á næstu dögum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Joe Biden Bandaríkjaforseta. Erfiðlega hefur gengið að koma hjálpargögnum til Gasa undanfarna daga, vikur og mánuði en gagnrýnendur segja aðferðina lélega og ónákvæma.

Lýsir yfir stuðningi við Bashar: „Ætlum við aldrei að læra neitt?“
Þröstur Leó Gunnarsson leikari fór hörðum orðum um þátttöku Íslands í Eurovision í ljósi átakanna á Gasa í stuðningsyfirlýsingu við Palestínumanninn Bashar Murad, sem hann birti á TikTok reikningi dóttur sinnar í gærkvöldi.

Hikandi við að mæta Ísrael „vegna þess sem þeir hafa gert við saklausa borgara“
Åge Hareide, landsliðsþjálfari í fótbolta, segir að Ísland ætti ekki að þurfa að spila á móti Ísrael, vegna voðaverkanna á Gasa-svæðinu síðustu mánuði. Íslendingar neyðist hins vegar til að spila leikinn, í umspili um sæti á EM.

Aldrei Rapyd, aldrei aftur
Í gær skaut ísraelski herinn á Gaza á fólk sem stóð í röð og beið eftir að fá matargjöf. 112 voru drepin og 760 særð. Karlar, konur og börn. Þessi mikli fjöldi segir okkur að þetta var ekki slysaskot heldur skipulögð aftaka á vopnlausu fólki sem búið er að svelta. Nokkur börn hafa þegar dáið úr hungri og vannæringu.

Fólk er fólk
Eða það hélt ég. Ég hélt líka að öll myndum við setjast við hliðina á Rosu Parks, fremst í rútuna. Ekkert okkar myndi fangelsa Nelson Mandela og að öll myndum við hýsa Önnu Frank.

„Of margir Palestínumenn dóu í dag“
Talið er að minnsta kosti 112 hafi dáið og hundruð hafi slasast og eða særst á Gasaströndinni síðustu nótt þegar verið var að flytja matvæli og neyðarbirgðir á svæðið. Palestínumenn segja ísraelska hermenn hafa skotið á þvögu fólks sem stöðvaði vörubílanna með birgðirnar.

Tala látinna komin yfir þrjátíu þúsund
Ríflega þrjátíu þúsund hafa látist frá upphafi stríðs Ísraels og Hamas-samtakanna þann 7. október síðastliðinn. Ríflega hundrað eru sagðir hafa látist í árás Ísraelshers á hóp fólks sem beið eftir hjálpargögnum í nótt.