
Flóttafólk á Íslandi

Hælisleitendur munu ekki yfirgefa Austurvöll fyrr en stjórnvöld taka kröfur þeirra til greina
Samstöðufundur fór fram á Austurvelli í dag

Köld nótt að baki hjá mótmælendum sem gistu á Austurvelli
Elínborg Harpa Önundardóttir aktívisti hjá No Borders Iceland segir að nóttin hafi verið köld en mótmælendur vinna nú að því að sækja um leyfi fyrir uppsetningu á tjöldum á Austurvelli.

Mótmæla brottvísun Zainab Safari og fjölskyldu hennar
Réttindaráð Hagaskóla mótmælir því harðlega að til standi að vísa Zainab Safari og fjölskyldu hennar úr landi..

Piparúða beitt á mótmælendur á Austurvelli og tveir handteknir
Harka hefur færst í mótmælin við Austurvöll.

Mál tveggja kvenna sem reyndu að stöðva brottvísun tekið fyrir í dag
Aðalmeðferð í máli gegn tveimur konum sem reyndu að koma í veg fyrir að brottvísun hælisleitanda með því að reyna að stöðva brottför flugvélar Icelandair þann 26. maí 2016 hefst í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Lögregla vaktaði mótmæli hælisleitenda við Útlendingastofnun
Boðað var til mótmælanna á Facebook-síðunni Refugees in Iceland.

Fluttur á sjúkrahús eftir sjálfsvígstilraun á Ásbrú
Hælisleitandi sem dvalist hefur á Ásbrú á Reykjanesi var fluttur á sjúkrahús í gær eftir sjálfsvígstilraun.

Heimtur úr helju og á leið til Súðavíkur
Í vikunni varð óvenjuleg fjölskyldusameining í Leifsstöð þegar Murtada Al-Saedi frá Írak fékk að sjá eiginkonu sína og fimm börn í fyrsta sinn í þrjú ár. Þau héldu öll að hann væri látinn. Móðir og börn fengu hæli hér á landi fyrir ári og varð verulega brugðið þegar þau fengu óvænt myndsímtal og á skjánum birtist fjölskyldufaðirinn.

Allt flóttafólk fær sömu móttökur við komuna til Íslands
Félagsmálaráðuneytið mun strax hefja undirbúning að innleiðingu samræmdrar móttöku flóttafólks. Meðal annars verður auglýst eftir sveitarfélögum sem vilja taka að sér móttöku flóttafólks og gera við þau samninga þar að lútandi.

Ánægðir Sýrlendingar á Selfossi
Átta manna fjölskylda frá Sýrlandi sem hefur búið á Selfoss í tvö ár er alsæl með lífið og tilveruna í bæjarfélaginu.

Flóttakonur fá mismunandi aðstoð eftir búsetu
Flóttakonur eiga erfitt með að fóta sig hér á landi og fá mismunandi aðstoð eftir því hvaða sveitarfélagi þær búa í.

„Ég er afgönsk í hjartanu mínu og ég er líka íslensk“
Zahra Mesbah Sayed Ali, 26 ára afgönsk kona sem fékk íslenskan ríkisborgararétt í gær, segir það vera skrítna en góða tilfinningu að vera í fyrsta sinn á ævinni með ríkisfang. Hún hefur búið á Íslandi í sex ár og segist afar sjaldan hafa mætt fordómum hér á landi.

Umræðan um samþykktir Sameinuðu þjóðanna stormur í vatnsglasi
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir formaður utanríkismálanefndar Alþingis leiðrétti þær rangfærslur sem hafa verið uppi í umræðunni um samþykktir Sameinuðu þjóðanna sem varða flóttamenn og innflytjendur.

Taka á móti 75 flóttamönnum á næsta ári
Ríkisstjórnin ákvað í dag að taka á móti allt að 75 flóttamönnum á næsta ári. Þeir eru að stærstum hluta Sýrlendingar sem staddir eru í Líbanon en einnig verður tekið á móti hinsegin flóttamönnum og fjölskyldum þeirra sem eru nú í Kenýa.

Framlög til þróunarsamvinnu hækka um 233 milljónir
Miðað er við að 0,28 prósent af vergum þjóðartekjum ársins 2019 verði varið til opinberrar þróunaraðstoðar.

Segir þvingunarúrræði lögreglu ómannúðleg og niðurlægjandi
Mahad Mahamud bíður þess að vera fluttur til Noregs eftir synjun um hæli. Kom að lokuðum dyrum á lögreglustöðinni þar sem hann á að mæta til skráningar á hverjum degi. Mál hans halda áfram í réttarkerfum bæði Íslands og Noregs.

Pia Kjærsgaard ekki móðguð en skýtur á Samfylkinguna
"Ég hef verið í stjórnmálum í þrjátíu og fimm ár og er því ýmsu vön.“