Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Tómas Arnar Þorláksson skrifar 15. október 2026 22:37 Hrannar missti dóttur sína árið 2002 og hefur síðan þá lifað með missinum. Sorgarferlið sé eilíf barátta. vísir/aðsend „Eftir að dóttir mín lést þá misstum við barnsmóðir mín tvö fóstur snemma á meðgöngu. Á þeim tíma var ég enn að vinna úr dótturmissinum og gerði mér líklega ekki fyllilega grein fyrir þeim missi sem ég hafi orðið fyrir.“ Þetta segir Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson í pistli sem birtist á Vísi í morgun. Þar opnar hann sig um eigin missi til að vekja athygli á tveimur viðburðum í þessari viku og þeirri næstu. Hrannar hefur starfað sem hópstjóri hjá Sorgarmiðstöðinni síðan árið 2010 en hann missti sjálfur dóttur sína, Emblu Rut, árið 2002. Fréttastofa ræddi við Hrannar um sorgina og mikilvægi þess að tala um tilfinningar sínar í ítarlegu viðtali sem má lesa hér fyrir neðan. „Afneitunin við að trúa því að þetta sé raunveruleikinn. Þessar örfáu sekúndur eftir að maður vaknar og heldur að allt sé í lagi verða bestu stundir dagsins. Þessar sekúndur rétt áður en maður áttar sig á því að lífið er ekki eins og það var,“ skrifar Hrannar í pistlinum. „Fyrst um sinn er maður í áfalli“ Í dag fór fram minningarstund á vegum Gleym mér ei í félagsheimili Orkuveitunnar. Dagurinn er tileinkaður þeim sem hafa misst á meðgöngu eða misst nýbura. Hrannar vekur einnig athygli á fyrsta viðburði vetrarins fyrir karla sem ganga í gegnum missi. Hann fer fram þriðjudaginn 20. október. Viljum við í Sorgarmiðstöðinni byrja veturinn á öðru fyrirlesarakvöldi. Að þessu sinni verður viðburðurinn í húsnæði Malbygg, Skútuvogi 1H klukkan 18. Þrír karlmenn munu segja frá sinni vegferð í gegnum missi og leiðinni að góðu lífi að nýju. Hrannar segir mikilvægt að hvetja karlmenn til að tjá sig um áföll og missi enda eigi þeir gjarnan erfitt með það. Hann segir í samtali við fréttastofu að það hafi skipt sköpum fyrir hann sjálfan að ræða málin opinskátt á sínum tíma. Í kjölfar þess að Embla Rut lést árið 2002 leitaði Hrannar sér aðstoðar hjá Nýrri dögun og sótti þar hópnámskeið. Þar hjálpuðu samtöl við jafningja sem gengu einnig í gegnum missi afar mikið. Embla Rut lést árið 2002. „Fyrst um sinn er maður í áfalli. Það er alveg gefið. Fyrstu skrefin eru bara örlítið að hugsa um sjálfan sig, það er að sofa, það er að næra þig og það er að hreyfa þig. Það eru þessir þrír grunnhlutir sem þú þarft til að lifa sem manneskja. Svefninn er sérstaklega mikilvægur því þá er undirmeðvitundin örlítið að vinna í áfallinu.“ Hann tekur fram að besta leiðin til að eiga við missi sé að tala við aðra og horfast í augu við sorgina í stað þess að flýja hana. „Það er svo mikilvægt að grafa þetta ekki niður heldur tala um einstaklinginn sem hefur fallið frá. Það er gott að vera ekki með tabú í kringum þetta og aldrei vera hræddur við að nefna nafn þess sem þú ert að syrgja. Heldur tala um hann eins oft og hægt er. Því oftar sem þú talar um hann því auðveldara verður það. Það er þessi leið að sátt við hlutverkið að hafa misst. Maður sættir sig aldrei við að hafa misst einstakling. Maður verður að finna sátt í hjartanu að þessi hlutskipti séu orðin raunveruleg. Þá fær maður fyrr hlýju í hjartað við það að tala um einstaklinginn í stað þess að upplifa sorg.“ Sorgin vegna frænku og tveggja fósturláta bankaði upp á löngu seinna Hann segist ekki hafa gert sér grein fyrir því hvað það tók á hann á sínum tíma að missa tvö fóstur. Hann var enn að vinna úr dótturmissinum og gerði sér því ekki grein fyrir um hve mikið högg væri að ræða. „Það hvarf svona í skuggann á sorginni að missa Emblu, að hafa misst þessi tvö fóstur. Ég man það eins og það gerðist í gær, þessi andartök þegar við komumst að því að það væri ekki hjartsláttur hjá öðru og byrjað að blæða hjá konunni í seinna skiptið. Þetta grefur sig alveg inn í mann. Ég nefndi það ekki á sínum tíma því mér fannst þetta vera svo lítilvægt, sem er svo furðulegt.“ Hrannar ásamt Emblu Rut.aðsend Hann fann ekki hvað þetta tók á hann fyrr en hann var búinn að vinna í mörg ár úr missinum af Emblu. „Þá fann ég það að þessi tvö áföll, að hafa misst fóstur, voru að hafa áhrif og þá fór ég aftur á hópanámskeiðið sem var að vinna í óuppgerðri sorg. Ég fann að þetta var óuppgert,“ segir hann og heldur áfram: „Ég byrjaði á því að skoða missi frá árinu 1993. Ég missti sem sagt frænku mína. Við vorum eiginlega bara eins og systkini. Við vorum jafnaldrar og systkinabörn. Ég missti hana Áslaugu og ég vann aldrei í þeim missi. Ég var bara sautján ára unglingur og í aðstæðum sem buðu kannski ekki upp á alltof mikið af opnum tilfinningum. Ég fór á námskeiðið út af því en á námskeiðinu áttaði ég mig á því að fósturmissirinn hafði líka áhrif. Þegar ég byrjaði að róta í gamalli sorg þá kom þetta líka upp með því.“ Hrannar ásamt frænku sinni Áslaugu sem lést þegar að Hrannar var sautján ára.aðsend Eitthvað töfrandi við að sjá aðra karla tala um tilfinningar Mikilvægt sé að fleiri karlmenn sæki sér hjálpar. Það geti hreinlega bjargað mannslífi. „Það sem er að drífa mig núna áfram. Í gegnum þetta starf hef ég hitt fjölmarga hópa og einstaklingarnir skipta örugglega hundruðum. Af því eru kannski tíu til fimmtán prósent karlar. Það hefur alltaf vantað starf sem að laðar karla að. Ég er karl sjálfur sem hefur gengið í gegnum missi og ég veit það að við þurfum aðstoð eins og aðrir.“ „Þótt að ég sé búinn að vinna í þessu í tuttugu til þrjátíú ár og búin að öskra í vindinn, ef ég fæ að bjarga einu mannslífi, þá er það alveg nóg fyrir mig.“ Hann segir of mikla tregðu vera til staðar hjá karlmönnum við að leita sér hjálpar. Hann lítur þó bjartari augum á komandi kynslóðir. „Þetta starf sem er í gangi núna, þetta hópastarf eða samkomur, er ekki að trekkja karlmenn að. Í vor fékk ég stuðning frá stjórn Sorgarmiðstöðvarinnar til að skoða hvað við gætum gert til að þjónusta karlmenn. Þetta byrjaði á fundi í vor og við erum með annan fund núna. Við erum að reyna að koma karlmönnum saman og síðan munum við halda áfram næstu tólf mánuði í að vera með mismunandi viðburði og finna út hvað við viljum.“ Hann segir það skipta höfuðmáli að karlmenn geti speglað sig hvor í öðrum. Þeir þurfi að upplifa það að það sé eðlilegt og sjálfsagt að sýna tilfinningar. „Ég er í öðrum samtökum þar sem ég er að vinna í sjálfum mér. Þar er ég í blönduðum hópi þar sem öll kyn tala saman en síðan er ég líka á karlafundum. Það er bara öðruvísi orka sem myndast þegar það eru bara karlar, karlar að tala við karla. Maður fær meira samþykki fyrir því að vera meyr. Stundum er maður svekktur. Það að hlusta á aðra karla tala um tilfinningarnar sínar, það er eitthvað töfrandi við það. “ „Að horfa á karlmenn tala um tilfinningar sínar, það er bara eitt það fallegasta sem ég hef séð.“ Ótrúleg losun við að spegla sig í öðrum Hrannar segir það bæði hjálpa sér og öðrum að sinna ráðgjafarstörfum hjá Sorgarmiðstöðinni. „Síðan þá hef ég verið að vinna í þessu. Ég stofnaði starf fyrir þá sem hafa misst vegna fíknar fyrir um tíu árum. Ég þjálfaði upp sjálfboðaliða til að sjá um það starf og það er enn þá í gangi. Ég kom að stofnun Sorgarmiðstöðvarinnar á sínum tíma. Ég hef unnið hjá Erninum líka sem aðstoðar börn og unglinga sem hafa misst. Það er æðislegt starf.“ Hann segir það einstaklega mikilvægt að nánustu vinir og fjölskylda standi sérstaklega þétt við bakið á þeim sem ganga í gegnum áfall. „Áfallið getur varað frá nokkrum dögum eða upp í marga mánuði. Það er svo mikilvægt að nærfjölskyldan sjái til þess að einstaklingurinn sé með eitthvað að borða eða að fjölskyldan sé með eitthvað að borða. Koma óspurð heim til þeirra og þrífa, taka börnin, fylla ísskápinn og sjá örlítið um fjölskylduna. Það er rosalega mikilvægt til að létta á fólki.“ Hrannar kom til að mynda að því ásamt öðrum að innleiða svokallað sorgarorlof fyrir foreldra. Það er fyrir fólk sem missir barn sem er undir átján ára aldri. Það á þá rétt á sömu aðstoð og fólk á úr fæðingarorlofssjóði. „Þegar maður er búinn að byrgja eitthvað lengi inni, þá er það að koma á viðburð eins og er á þriðjudaginn hjá okkur í Sorgarmiðstöðinni og sitja á staðnum og heyra einhvern tala um hvernig þér líður þá færðu speglun á þínar tilfinningar. Það er eitthvað sem að losnar hjá manni. Bara að heyra að maður sé ekki einn með einhverjar hugsanir eða tilfinningar sem maður er búinn að vera með í farteskinu í mörg ár. Það er svo ofboðslega góð heilun sem felst í því.“ Sorg Andlát Mest lesið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ólétt 52 ára Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Fleiri fréttir Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Sjá meira
Viljum við í Sorgarmiðstöðinni byrja veturinn á öðru fyrirlesarakvöldi. Að þessu sinni verður viðburðurinn í húsnæði Malbygg, Skútuvogi 1H klukkan 18. Þrír karlmenn munu segja frá sinni vegferð í gegnum missi og leiðinni að góðu lífi að nýju.
Sorg Andlát Mest lesið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ólétt 52 ára Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Fleiri fréttir Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Sjá meira