Lífið

Galliano slaufað og ó­vissa með Met Gala næsta árs

Forsvarsmenn Metropolitan-listasafnsins og Met Gala-kvöldsins hafa hætt við að heiðra breska hönnuðinn John Galliano. Met Gala næsta árs átti að vera tileinkað ævistarfi hönnuðarins en hann hefur í gegnum tíðina valdið hneykslan vegna rasískra og andgyðinglegra yfirlýsinga. Ekki liggur fyrir hvert þema kvöldsins verður í staðinn.

Lífið

Sam­bönd héldu þrátt fyrir harðan kosninga­slag

Margir, þeirra á meðal Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins, sögðu að nýafstaðin þjóðaratkvæðagreiðsla yrði til þess að reka flein í heilu fjölskyldurnar. Vísir hefur heyrt af nokkrum hjónaböndum sem fóru í gegnum þennan hreinsunareld og tók púlsinn á tveimur þeirra – og ekki er annað að heyra en að samböndin hafi staðið þennan slag af sér.

Lífið

Skip­stjóri selur heils­árs­hús á 190 milljónir

Skipstjórinn Hinrik Hringsson hefur sett á sölu 228 fermetra heilsárshús að Tröllahrauni 8 í Miðengi í Grímsnes- og Grafningshreppi. Húsið samanstendur af alrými, þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, bílskúr og stórum palli með heitum potti og er ásett verð 190 milljónir króna.

Lífið

Ris, fall og óútskýrð auð­æfi Jeffrey Epstein

Jeffrey Epstein var ákærður árið 2007 fyrir kynferðisbrot gegn tugum kvenna og hefði hæglega getað fengið lífstíðarfangelsi. Lögmenn hans gerðu leynilegan samning við yfirvöld sem endaði með því að hann hlaut átján mánaða dóm og afplánaði þrettán þeirra í fangelsi. Haustið 2008 var Epstein sóttur í fangelsi í Flórída á hverjum morgni, sex daga vikunnar, af einkabílstjóra sem skutlaði honum á skrifstofu góðgerðarstofnunar og svo aftur í fangelsið að kvöldi.

Lífið

Sonurinn fékk nafnið Skógur

Rithöfundarnir Fríða Ísberg og Tómas Ævar Ólafsson eignuðust sitt annað barn 1. ágúst síðastliðinn þegar lítill drengur kom í heiminn. Hann hefur fengið hið frumlega nafn Skógur og er sá fyrsti sem ber nafnið hérlendis.

Lífið

Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glæ­nýju hlut­verki

Þau Finneas O´Connell og Claudia Sulewski gengu í það heilaga á dögunum en sá fyrrnefndi er bróðir söngkonunnar Billie Eilish, sem gaf hjónin einmitt saman. Herlegheitin, sem fóru fram á búgarði í Kaliforníu, voru vel sótt og meðal gesta voru þau Justin og Hailey Bieber, Jason Sudeikis, Kristen Bell og fleiri. 

Lífið

Ás­laug Arna mætti með nýja kærastann

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, er farin að slá sér upp með Jónasi A. Aðalsteinssyni húðlækni. Þau mættu saman í brúðkaup Margrétar Bjarnadóttur og Ísaks Ernis Kristinssonar sem gengu í það heilaga í Skálholti í gær.

Lífið

„Hræði­legt að sjá of­beldið sem ég beitti mig“

„Ég hef svo lengi verið að fela mig og þykjast vera einhver sem ég er ekki. Þetta er í fyrsta skipti sem ég næ að losa um það. Eina sem ég sýndi á samfélagsmiðlum var bara ég í ræktinni og að borða einhverjar geggjaðar máltíðir. Fólk sér ekki þegar ég er andvaka á næturnar og langar ekki að lifa,“ segir hinn þrítugi Anton Ísak Óskarsson sem hefur ýmsa fjöruna sopið. Hann missti föður sinn fyrir fimm árum og við tók gríðarlega erfitt uppgjörstímabil, sem er enn í gangi.

Lífið

Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu

Stemmningin hjá jáfólki sem kom saman í Hafnarhúsinu í kvöld til að fylgjast með niðurstöðum úr þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið var róleg til að byrja með en sprakk út þegar fleiri tölur duttu í hús.

Lífið

Kjós­endur á loka­sprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“

Bjarki Sigurðsson var staddur í bæði Ráðhúsinu í Reykjavík og fyrir utan Hagaskóla í Vesturbæ rétt upp úr klukkan níu og ræddi við kjósendur á lokasprettinum en síðustu kjörstöðum var lokað klukkan tíu í kvöld. Sumir gleymdu sér en aðrir nutu veðurblíðu dagsins. Flestir kjósendur voru sammála um að það hefði ekki tekið þá langan tíma að gera upp hug sinn.

Lífið

Dorrit missti að­gang á for­rit

Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú Íslands, segist hafa orðið fyrir því óláni að vera hökkuð. Á síma hennar bíða nú skilaboð um að síminn sé læstur.

Lífið

Frétta­tía vikunnar: Dolly, ESB og malaría

Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem leið? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Í Fréttatíu vikunnar beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis.

Lífið

Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman

Nadía Atladóttir, knattspyrnukona hjá Val, og Arnar Freyr Ársælsson, markaðsstjóri Core og fyrrverandi handboltamaður, eru hætt saman og hafa sett á sölu einbýlishús sitt að Virkisási 17 í Hafnarfirði. Heimildir Vísis herma að slitnað hafi upp úr sambandinu í vor.

Lífið

Stór­glæsi­legt ein­býlis­hús á Arnar­nesi til sölu

Stórglæsilegt einbýlishús frumbyggjanna Ragnhildar Björnsson og Arnbjörns Kristinssonar að Mávanesi 9 á Arnarnesi í Garðabæ hefur verið sett á sölu. Húsið var teiknað af Helga Hjálmarssyni arkitekt, reist árið 1970 og er 316,4 fermetrar að stærð. Eigendur óska eftir tilboði.

Lífið

Afmælispartý Bylgjunnar í beinni

Útvarpsstöðin Bylgjan fagnar 40 ára afmæli í dag og verður tímamótunum fagnað í allan dag með sérstakri afmælisdagskrá. Gamalkunnir þáttastjórnendur snúa aftur í hljóðverið og fjölmargir gestir úr sögu stöðvarinnar líta við.

Lífið

Hvað kýs fræga fólkið?

Kosið verður á morgun um það hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Fjöldi fólks hefur gefið upp afstöðu sína í málinu og hefur Vísir tekið saman tuttugu fræga einstaklinga sem ætla ýmist að kjósa já eða nei, af ýmsum ástæðum. Við sögu koma athafnamenn, listafólk, fólk úr íþróttaheiminum og fleiri góðir.

Lífið

Bylgjan heiðraði goð­sögnina Þor­geir

Útvarps- og tónlistarmaðurinn Þorgeir Ástvaldsson var heiðraður í vikunni fyrir framlag sitt til íslensks útvarps og einstakan þátt í sögu Bylgjunnar. Útvarpsstöðin fagnar fjörutíu ára afmæli sínu á morgun.

Lífið

Hvað veistu um… Dolly Parton?

Dolly Parton, ein ástsælasta og þekktasta söngkona Bandaríkjanna, lést fyrr í vikunni, áttatíu ára að aldri. Dolly var afburðalagasmiður og skilur eftir sig ótrúlegt lagasafn, Jolene, 9 to 5 og I Will Always Love You þeirra á meðal.

Lífið

Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman

Hlaðvarpsstjórnandinn og áhrifavaldurinn Birta Líf Ólafsdóttir og fasteignasalinn Gunnar Patrik Sigurðsson eru hætt saman eftir tólf ára samband. Birta og Gunnar eiga tvö börn saman og hafa sett íbúð sína á Kársnesi á sölu.

Lífið

Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin

Ein þekktasta samtímalistakona Japans, Yayoi Kusama, er látin 97 ára að aldri. Myndlist Kusama einkenndist af doppum, skynörvandi munstrum og endalausum speglum og bar listakonan jafnan eldrauða hárkollu og klæddist litríkum flíkum í stíl við listina.

Lífið

Neðanjarðarlestin enda­laus upp­spretta skrítinna at­vika

„Það er svo ótrúlega margt í boði í New York. Borgin iðar af lífi og alls konar list. Ég hef fundið ótrúlega gott samfélag í gegnum salsað og fer mikið út með vinum mínum að dansa,“ segir hin 31 árs gamla Sara Magnúsdóttir sem hefur verið búsett í New York í sjö ár. Hún starfar sem tónlistarkona, píanó-og orgelleikari, tónskáld og útsetjari, elskar salsa-dans og þrífst vel í lifandi umhverfi stórborgarinnar.

Lífið

Camilla Rut og Val­geir hafa slitið trú­lofuninni

Athafnafólkið Camilla Rut Arnarsdóttir, markaðsstjóri Hopp, og unnusti hennar, Valgeir Gunnlaugsson, pítsabakari og eigandi Pizza 107, hafa slitið trúlofuninni. Þau byrjuðu að stinga saman nefjum sumarið 2022 en höfðu þekkst nokkuð lengi fyrir það. Þau trúlofuðu sig svo í febrúar 2024.

Lífið