Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Jakob Bjarnar skrifar 24. október 2026 13:01 Tolli Morthens fer á kostum Í bóli Bjarnars sem verður til dagskrár á morgun. vísir/anton brink Tolli Morthens myndlistarmaður er næsti gestur Í bóli Bjarnars sem verður frumflutt á morgun klukkan níu á Bylgjunni en má þá nálgast á Vísi, Sýn plús og öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Í viðtalinu fer Tolli á kostum, hann fer yfir víðan völl og stiklar á stóru varðandi sinn litríka feril. Hann hætti öllum afskiptum af tónlist eftir að hljómsveit hans Íkarus kom fram á sögufrægum tónleikum í Laugardalshöll. Platan The Boys from Chicago var útskriftarverkefni hans úr Myndlistar- og handíðaskólanum. Þar dró hann Megas á flot en hann hafði þá verið í löngu hléi. Framlag Megasar til plötunnar var ríkulegt, eiginlega of mikið því það kom niður á skurði plötunnar. Tolli kennir sjálfum sér um, hann hafi ekki getað sett Megasi mörk. Tolli dró Megas á flot þegar hann stofnaði Íkarus og Megas mætti klár í slaginn með bing af lögum.vísir/vilhelm „En þetta var mjög skemmtilegt. Megas var á þessum tíma edrú eða svona semi-edrú, hann hefur kannski fengið sér jónu og jónu en hann var mjög skemmtilegur í samskiptum. Það var húmor og ekkert vesen á honum. Hann var þá í sambúð með ágætri konu, var með börn, fjölskyldumaður á þessum tíma og mjög frjór. Þannig að það var auðvelt að hafa gaman af honum. En ótrúlega sérvitur maður.“ Hvernig þá? „Ég bjó með honum um tíma í kommúnu hérna í bænum og þá var hann ekki á eins góðum stað. Þetta er áður en Megasardæmið kemur til og var þegar hann var að vinna að plötunni Drög að sjálfsmorði með tónleikunum þarna í Hamrahlíð. Og þá var óreglan mikil, hann gerði á sig og lá bara í stigagöngum alveg ósjálfbjarga. Bara svakaleg verkun á honum. Og inni í herbergi sem hann var í var hann ekki næs. En skrifborðið, þar sem hann skrifar nóturnar og færir til bókar texta sem hann er að vinna, var eins og skrifborð hjá skurðlækni. Það var svoleiðis 100 prósent allt upp á tíu. Alveg sama hvaða ástand var á honum. Hann var alltaf alveg skýr þarna.“ Megas lést á þessu ári en hann skilur eftir sig geypilegt magn texta og tónlistar.
Í bóli Bjarnars Tónlist Tengdar fréttir Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Magnús Þór Jónsson (1945–2026) eða Megas var jarðsunginn í fallegri og áhrifaríkri athöfn í Hallgrímskirkju í gær. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir jarðsöng en fjöldi listamanna kom fram við athöfnina. 31. júlí 2026 10:05 Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Fleiri fréttir Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Sjá meira
Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Magnús Þór Jónsson (1945–2026) eða Megas var jarðsunginn í fallegri og áhrifaríkri athöfn í Hallgrímskirkju í gær. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir jarðsöng en fjöldi listamanna kom fram við athöfnina. 31. júlí 2026 10:05