Lífið

Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Edda Pétursdóttir sigraði keppnina en eins og sést á myndunum var samkeppnin hörð.
Edda Pétursdóttir sigraði keppnina en eins og sést á myndunum var samkeppnin hörð. hlín guðmundsdóttir

Edda Pétursdóttir sigraði keppni um skelfilegasta graskerið sem fram fór í dag. 

Keppnin var á vegum Krónunnar og var metþátttaka í ár. Edda sem bar sigur úr býtum var í öðru sæti fyrir tveimur árum og hefur því ákveðna reynslu á bakinu.

Þrenn verðlaun voru veitt fyrir frumlegasta graskerið en meðal sigurvegara í þeim flokki var hinn 13 ára Axel Freyr Hafsteinsson. 

Graskerin verða til sýnis í Krónunni Lindum um helgina. Hér að neðan má skoða myndir af listaverkunum.

Graskerin eiga það öll sameiginlegt að vera skelfileg.hlín guðmundsdóttir
Sanja Líf með frumlegasta graskerið.hlín guðmundsdóttir
Mikil hugsun í þessu.hlín guðmundsdóttir
Hér er sigurvegarinn.hlín guðmundsdóttir
Þessi er svolítið súr á svip.hlín guðmundsdóttir
Óhætt að segja að þetta sé frumlegt.hlín guðmundsdóttir
Þarna sjáum við vísun í ónefnda hryllingsmynd.hlín guðmundsdóttir
Lesendur geta skoðað graskerin í Krónunni Lindum.hlín guðmundsdóttir
Hér eru sigurvegarar.hlín guðmundsdóttir
Draugar í búri?hlín guðmundsdóttir
Edda með listaverkið.hlín guðmundsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.