Lífið

Erna Mist og Þor­leifur selja

Agnar Már Másson skrifar
Listaparið Þorleifur Örn Arnarsson og Erna Mist Yamagata.
Listaparið Þorleifur Örn Arnarsson og Erna Mist Yamagata. Sunna Ben

Þorleifur Örn Arnarsson og Erna Mist Yamagata hafa auglýst útsýnisíbúð sína að Sörlaskjóli í Vesturbænum til sölu. Þau keyptu eignina fyrir um tveimur árum.

Um er að ræða 134 fermetra miðhæð í þriggja íbúða húsi sem var byggt árið 1951, ásamt bílskúr. Íbúðin telur forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, svalir, geymslu og sameiginlegt þvottahús í kjallara.

Greint var frá því á Vísi í nóvember 2024 þegar parið festi kaup á eigninni fyrir 126,9 milljónir króna. 

Þau verðsetja nú íbúðina á 144,9 milljónir. Eignin er auglýst til sölu á fasteignavef Vísis.

Rúmgóð stofa.

Erna Mist og Þorleifur Örn hafa verið saman síðan í upphafi árs 2024. Erna Mist, fædd 1998, er myndlistarkona og hefur vakið mikla athygli fyrir málverk sín undanfarin ár.

Þorleifur Örn, fæddur 1978, hefur verið einn fremsti leikstjóri Íslands undanfarinn áratug og hlotið mikið lof fyrir sýningar sínar hérlendis, í Þýskalandi og víðar.

Saman eiga þau tvö börn, son og dóttur.

Listaparið hefur hreiðrað vel um sig í Sörlaskjóli í Vesturbæ Reykjavíkur.

Tengdar fréttir

Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son

Erna Mist Yamagata myndlistarkona og Þorleifur Örn Arnarsson eignuðust son þann 27. júní síðastliðinn, sex dögum eftir frumsýningu þeirra á óperunni Tannhäuser. Fyrir eiga þau dótturina Þórhildi Nótt sem fæddist í janúar 2025.

Þorleifur Örn og Erna Mist nýtt par

Þor­leif­ur Örn Arn­ars­son, leik­stjóri og Erna Mist Yama­gata, myndlistar­kona og pistla­höf­und­ur, eru nýtt par.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.