Ástin og lífið

Fréttamynd

Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu

Útvarpsstjarnan, fararstjórinn og þjálfarinn Svali Kaldalóns og einkaþjálfarinn og kennarinn Birna Baldursdóttir eru nýtt og glæsilegt par. Þau opinberuðu ástina á Instagram þar sem Birna deildi einlægri og fallegri afmæliskveðju til síns heittelskaða.

Lífið
Fréttamynd

Sjóðandi ein­hleypar sumarskvísur

Sumarið er komið og sólin hækkar stöðugt á lofti. Af því tilefni hefur Lífið á Vísi tekið saman lista yfir glæsilegar einhleypar og eftirsóttar konur sem gott er að hafa auga með næstu mánuði.

Lífið
Fréttamynd

Kol­féllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu

„Undirbúningurinn gerði veturinn mikið skemmtilegri og þetta var ákveðin gulrót, að heimsækja bestu borgina og undirbúa okkur í leiðinni,“ segir Katrín Eyjólfsdóttir en hún og eiginmaður hennar Davíð Steinn Sigurðarson skelltu sér í ógleymanlega hjónaferð til New York þar sem þau hlupu saman hálfmaraþon. Blaðamaður tók púlsinn á þeim og fékk að heyra nánar frá undirbúningnum og upplifuninni.

Lífið
Fréttamynd

Adam fór á skeljarnar í Kerlingar­fjöllum

Áhrifavaldaparið Ástrós Traustadóttir og Adam Karl Helgason eru trúlofuð. Hjúin hafa verið saman í nokkur ár og eiga von á öðru barni en Adam fór á skeljarnar síðastliðna helgi í Kerlingarfjöllum.

Lífið
Fréttamynd

Týndi strax 120 þúsund króna sokkum

Tónlistarmaðurinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Flóni, hefur mikinn áhuga á klæðaburði og tísku og hefur fjárfest í ýmsum hátískuflíkum undanfarin ár. Sum kaup hafa verið góð en önnur ekki eins farsæl.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“

Tónlistarfólkið Kolfreyja Sól Bogadóttir og Friðrik Róbertsson, betur þekkt sem Alaska 1867 og Flóni, eru ekki lengur „bara vinir“ heldur par. Sögusagnir hafa gengið um að þau væru að slá sér upp síðustu mánuði en þau ekki staðfest það fyrr en nú.

Tónlist
Fréttamynd

Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði

Fyrirsætan Kendall Jenner og leikarinn Jacob Elordi hafa verið að hittast undanfarna mánuði án þess að láta mikið fyrir því fara. Orðrómur um vaxandi rómans þeirra hefur orðið sífellt háværarri síðustu vikur. 

Lífið
Fréttamynd

Ein­hleypir og eftir­sóttir sumarstrákar

Vorið er komið, sveitarstjórnarkosningar á næsta leiti og sumarið handan við hornið. Af því tilefni hefur Lífið á Vísi tekið saman lista yfir glæsilega einhleypa og eftirsótta menn sem gott er að hafa auga með.

Lífið
Fréttamynd

Fagnaði sigri með bumbukossi

Körfuboltastjarnan Kristófer Acox fagnaði sigri Valsmanna á Keflavík í átta liða úrslitum Bónus-deildarinnar í körfubolta með því að kyssa bumbuna á óléttri kærustu sinni, Guðrúnu Elísabetu Björgvinsdóttur.

Lífið
Fréttamynd

Gurrý um svuntu­að­gerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“

Þjálfarinn Guðríður Erla Torfadóttir, sem alla jafna einbeitir sér að því að halda viðskiptavinum sínum í góðu líkamlegu formi, beindi kastljósinu að sjálfri sér í ársbyrjun og fór í langþráða svuntuaðgerð. Ákvörðunina um aðgerð tók Gurrý þegar hún var 28 ára en ákvað að bíða þar til hún væri búin að koma þremur sonum sínum til manns. Nú, 46 ára og í toppformi, er Gurrý stolt, sátt og spennt fyrir framhaldinu.

Lífið
Fréttamynd

Ó­vænt öku­ferð að ógleyman­legu augna­bliki

„Við Manuel erum ótrú­lega þakk­lát fyrir að pabbi hans hafi náð að vera viðstaddur fæðingu hans,“ segir Sidoni­e Schmitt sem vissi ekki hvaðan á hana stóð veðrið þegar hún var í miðri fæðingu, fyrir tæpum fjórtán árum, þegar fjórir ungir menn dúkkuðu óvænt upp með barns­föður hennar rétt áður en drengurinn kom í heiminn.

Lífið
Fréttamynd

Sigurður Sæ­var og Guð­björg í sundur

Sigurður Sævar Magnússon, einn öflugasti myndlistarmaður landsins, er kominn aftur á markaðinn eftir að það slitnaði upp úr sambandi hans og sjúkraliðans Guðbjargar Ægisdóttur.

Lífið
Fréttamynd

Reynir og Sól­veig giftu sig í rauðu

Reynir Bergmann Reynisson, athafnamaður og snappari, og Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir Saithong, naglafræðingur og hárgreiðslukona, giftu sig á föstudaginn í rauðum Liverpool-treyjum.

Lífið
Fréttamynd

Allir og amma þeirra í bókaklúbb

Bóksali og útgefandi merkir ákveðna sprengingu í stofnun bókaklúbba upp á síðkastið. Það sé hennar tilfinning að fólk lesi meira og sækir ungt fólk í meira mæli en áður í bókabúðina.

Lífið
Fréttamynd

Jökull og Telma hvort í sína áttina

Jökull Júlíusson söngvari Kaleo og Telma Fanney Magnúsdóttir sálfræðingur hafa slitið sambandi sínu. Þau byrjuðu saman fyrir tæpum tíu árum og trúlofuðust árið 2022. 

Lífið
Fréttamynd

„Að vera ætt­leidd er ein stærsta gjöf sem ég og fjöl­skyldan mín höfum fengið“

Í rúma tvo áratugi lá uppruni Helenu Óskar Padmavati Hilmarsdóttur að mestu í skjölum, ljósmyndum og frásögnum annarra. Hún var ættleidd til Íslands frá Indlandi árið 2001 og ólst upp á Akureyri. Með árunum jókst áhugi hennar á uppruna sínum og á seinasta ári fór hún í fyrsta sinn til Indlands ásamt fjölskyldu sinni, þar sem þau heimsóttu meðal annars barnaheimilið þar sem Helena dvaldi fyrstu mánuði ævi sinnar. Ferðin átti eftir að hafa djúpstæð áhrif á Helenu.

Lífið
Fréttamynd

Barns­móðir og dætur Eyjólfs fluttar til Ís­lands

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mætti með barnsmóður sinni, Suzanne, og dætrum þeirra tveimur á Skrúfu­dag­inn, árlegan kynn­ing­ar­dag nem­enda í Vél­tækni- og Skip­stjórn­ar­skóla Tækni­skólans, um helgina. Þær hafa búið í Noregi síðustu ár.

Lífið
Fréttamynd

Siggi og Alma orðin for­eldrar

Leikarinn Sigurður Ingvarsson og viðskiptafræðingurinn Alma Finnbogadóttir eru orðin foreldrar eftir að þeirra fyrsta barn, lítil stúlka, kom í heiminn í byrjun febrúar.

Lífið
Fréttamynd

Lily Allen orðin að lista­verki

Breska poppstjarnan Lily Allen átti sögulega endurkomu inn í tónlistina þegar hún gaf út hráu og opinskáu plötuna West End Girl í fyrra. Þar skefur hún ekkert af hlutunum og syngur um átakanlegt samband og sambandsslit sín og leikarans David Harbour. 

Lífið
Fréttamynd

Skálm­öld gæddi sér á hrá­efni sögu­legs „ógeðs­drykkjar“

Skálmaldar­mönnunum Snæbirni Ragnars­syni og þó helst Þráni Árna Baldurs­syni leiðist ekki að borða mat sem fólki býður oftar en ekki við. Þeir komust því heldur betur í feitt þegar þeim var boðið til al­vöru „súr­strömming-veislu“ á Akur­eyri. Þar sporðrenndu þeir glaðir aðal­hráefninu í sögu­legasta ógeðs­drykk 70 mínútna.

Lífið