Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. október 2026 10:59 Dorrit og Ólafur eru skilin eftir að hafa verið gift í 23 ár. Dorrit ræddi hjónabandið og skilnaðinn í einlægu viðtali við Mörtu Maríu. Listasafn Reykjavíkur Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, segir líf sitt vera á hvolfi eftir skilnað hennar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Upphafið að endalokum hjónabandsins rekur hún til 7. október 2023 þegar Hamas gerðu árás á Ísrael. Þá hafi orðið ljóst að hún og Ólafur gætu ekki veitt hvoru öðru þann stuðning sem hinn þurfti á að halda. Hún syrgi lífið sem þau áttu saman.
Dorrit var gestur Mörtu Maríu Winkel í hlaðvarpinu Marta María býður heim þar sem þær fóru um víðan völl og ræddu um æsku Dorritar, samband hennar og Ólafs Ragnars og skilnaðinn sem þau gengu í gegnum nýverið. Dorrit sagðist í hlaðvarpinu aldrei hafa litið á sig sem forsetafrú, hún hefði ekki bara verið eiginkona hans heldur verið með sitt eigið líf og fyrirtæki. Hún hefði samt sem áður lagt áherslu á að hjálpa Íslandi og Íslendingum á meðan hún var gift Ólafi, ekki síst með fjölbreyttum tengslum sínum. „Hann hafi viljað aðra hluti út úr lífinu en ég“ Dorrit ræddi hjónaband sitt við Ólaf í hlaðvarpinu, fyrstu kynni þeirra og svo hvernig ástin kviknaði á milli þeirra í Aspen. Þá lýsti hún því hvernig hjónaband þeirra komst á endastöð sem hún rekur að einhverju leyti til árásar Hamas á Ísrael þann 7. október 2023 og stríðsins sem fylgdi í kjölfarið. Atburðurinn hafi verið henni mikið áfall. „Ég kenndi ísraelska forsætisráðherranum um þennan harmleik, á báðum hliðum. Líf skipta máli, sama hvers líf það er,“ sagði Dorrit um Benjamín Netanyahu. „Flestallt fólkið á Gasa er mjög gott fólk. Þetta olli svo miklum harmleik á báðum hliðum. Ég gat ekki sætt mig við að Ísrael væri rekið af svona, ég get ekki notað orðin sem ég vil nota, tegund af ríkisstjórn,“ bætti hún við. „Ég var mjög geðvond, mjög skapstygg, í mjög vondu skapi, mjög óþolinmóð,“ segir Dorrit og bætir við að hún hafi þurft mikinn stuðning frá Ólafi. Hann hefði aftur á móti þurft eitthvað annað frá henni. „Hann vildi bara, sem er eðlilegt, að ég væri skilningsrík, góð og styðjandi og þetta var bara ekki tíminn þar sem ég gat gefið honum það. Ég bjóst við því frá honum en það var ekki eitthvað sem hann gat gefið mér,“ sagði Dorrit. Það hafi verið ljóst að þau vildu ekki sömu hlutina. „Ég held að hann hafi viljað aðra hluti út úr lífinu en ég.“ Búi enn í sama húsi þegar hún er á Íslandi „Ég veit það ekki. Líf mitt er algjörlega á hvolfi,“ sagði Dorrit þegar hún varð spurð hvernig líf hennar væri núna eftir skilnað hennar og Ólafs. Hún finni fyrir mikilli sorg og sakni þess lífs sem hún og Ólafur Ragnar áttu saman. Heimurinn hennar hefði verið fullkominn og lýsti hún því hvernig líf hennar hefði verið á Íslandi. Þrátt fyrir sambandsslitin talaði hún vel um árin þeirra saman. „Við áttum svo margar frábærar stundir,“ sagði Dorrit og nefndi sérstaklega komu hundanna þeirra tveggja, Sáms og Samsonar, fæðingu barnabarna Ólafs og ferðir þeirra um Ísland. „Ég þarf að finna mitt eigið heimili,“ sagði Dorrit aðspurð um heimili sitt á Íslandi. Þangað til hún finnur það fái hún að búa á sama stað og Ólafur þegar hún er á Íslandi. Húsið sé stórt, Ólafur oft í burtu og hún þurfi að vera hjá Samsoni sínum til að halda geðheilsunni. Ólafur sýni því skilning. Dorrit ræddi margt fleira í hlaðvarpinu sem er hægt að hlusta á á helstu streymisveitum.
Ólafur Ragnar Grímsson Tímamót Ástin og lífið Tengdar fréttir Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fregnir bárust í vikunni af skilnaði Ólafs Ragnars Grímssonar og Dorritar Moussaieff og rifjaðist þá upp þegar Davíð heitinn Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, gerði athugasemdir við hjónavígslu þeirra í bréfi sumarið 2003. Davíð taldi ágalla á hjónabandinu því gögn vantaði um skilnað Dorritar við fyrrverandi eiginmann hennar. Lögmaður Ólafs taldi Davíð vilja gera hjónin að athlægi og sagnfræðingurinn Guðjón Friðriksson sagði Davíð vega að heiðri Dorritar. Lektor í stjórnsýslurétti taldi Davíð ekki endilega hafa farið út fyrir verksvið sitt. 9. ágúst 2026 10:02 Mest lesið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Áskorun Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Lífið samstarf Fleiri fréttir Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Sjá meira
Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fregnir bárust í vikunni af skilnaði Ólafs Ragnars Grímssonar og Dorritar Moussaieff og rifjaðist þá upp þegar Davíð heitinn Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, gerði athugasemdir við hjónavígslu þeirra í bréfi sumarið 2003. Davíð taldi ágalla á hjónabandinu því gögn vantaði um skilnað Dorritar við fyrrverandi eiginmann hennar. Lögmaður Ólafs taldi Davíð vilja gera hjónin að athlægi og sagnfræðingurinn Guðjón Friðriksson sagði Davíð vega að heiðri Dorritar. Lektor í stjórnsýslurétti taldi Davíð ekki endilega hafa farið út fyrir verksvið sitt. 9. ágúst 2026 10:02