Lífið

Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Jay-Z fylgist með sínum mönnum að störfum á Ofurskálinni 2024.
Jay-Z fylgist með sínum mönnum að störfum á Ofurskálinni 2024. EPA/JOHN MABANGLO

Bandaríski rapparinn Jay-Z ætlar að stíga upp árið 2027 og vera sjálfur með hálfleikssýningu Ofurskálarinnar. Hann hefur um árabil haft umsjón með sýningunni og verið aðalframleiðandi.

Bandaríski rapparinn staðfestir þetta í yfirlýsingu en orðrómur þessa efnis hefur verið á kreiki í nokkra daga. Ofurskálin fer fram 14. febrúar næstkomandi á SoFi leikvellinum í Inglewood í Kaliforníu. Hinn 56 ára gamli rappari segir að eftir þrjátíu ára feril sé draumur að rætast. Bad Bunny sá um síðustu Ofurskál.

Fyrirtækið Roc Nation, sem er í eigu Jay-Z, gerði samning við NFL-deildina árið 2019 um að sjá um og pródúsera hálfleikssýningu Ofurskálarinnar og fær rapparinn greiddar fimm milljónir dala (um 600 milljónir króna) árlega fyrir verkið. Samningurinn var endurnýjaður árið 2024 og verður sýningin áfram á snærum rapparans til 2029.

Erlendir miðlar hafa eftir Roger Goodell yfirmanni NFL bandarísku ruðningsdeildarinnar að hann hafi viljað fá rapparann á svið allar götur síðan samningurinn var gerður. „Þegar við náðum samningum við Roc Nation um framleiðslu þá var ég bara með eina ósk: Að Jay-Z myndi sjálfur stíga á svið einn daginn, hvenær svo sem honum finndist vera rétti tíminn til þess. Ég gæti ekki verið spenntari fyrir hönd aðdáenda út um allan heim.“

Breska blaðið Guardian lætur þess getið að spekúlantar hafi velt því fyrir sér hvort réttur tímapunktur væri fyrir Jay-Z að vera með Ofurskálina að svo stöddu. Hann hafi ekki gefið út ný lög um árabil. Síðasta plata þar sem rapparinn var einn að verki hét 4:44 og kom út árið 2017 en hann gerði einnig plötu með eiginkonu sinni Beyoncé árið 2018.

Hann hefur hinsvegar nýlokið tónleikaferðalagi sínu um Bandaríkin og lauk ferðalaginu einmitt á SoFi leikvellinum. Rapparinn sem ber nafnið Shawn Carter er með 25 Grammy verðlaun á bakinu og verið tilnefndur 89 sinnum. Einungis eiginkona hans er með fleiri verðlaun en hún hefur jafnframt komið fram tvisvar á Ofurskálinni.


Tengdar fréttir

Svona var hálfleiksatriði Bad Bunny: „Guð blessi Ameríku“

Það ríkti mikil eftirvænting fyrir hálfleikssýningu Ofurskálarinnar þar sem stórstjarnan Bad Bunny frá Púertó Ríkó var aðalnúmerið. Venju samkvæmt var öllu tjaldað til en Lady Gaga og Ricky Martin komu meðal annars einnig við sögu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.