

Ljósleiðari Mílu á milli Akraness og Borgarness slitnaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mílu.
Feðgarnir Jón Gunnlaugsson og Stefán Jónsson hafa undanfarna áratugi staðið í ströngu við að safna saman og gera skil merkum heimildum um sögu fótboltans á Akranesi. Útkoman þeirrar vinnu er einkar glæsileg vefsíða, Á sigurslóð, sem nú er komin í loftið.
Íþróttahúsinu á Vesturgötu á Akranesi, við Brekkubæjarskóla, hefur verið lokað að hluta. Ástæðan er ófullnægjandi loftgæði, sem kom í ljós við úttekt Verkís á húsnæðinu sem var framkvæmd í þessum mánuði.
Óbragð sem fannst í drykkjarvatni á Akranesi skýrist að öllum líkindum af grænþörungum sem uxu í lóni í nágrenni bæjarins. Lónið hefur nú verið hreinsað og ætti óbragðið því að heyra sögunni til.
Engar skaðlegar örverur fundust í sýnum sem voru tekin úr drykkjarvatni á Akranesi í gær eftir að íbúar kvörtuðu undan óbragði af því. Forstöðumaður hjá Veitum segir leit standa yfir að orsökum óbragðsins í lóni í nágrenni bæjarins.
Jóna Björk Sigurjónsdóttir 42 ára hjúkrunarfræðingur hefur undanfarin ár hlaupið Laugaveginn, orðið Landvættur og skráð sig í krefjandi nám. Allt eftir að hún ákvað að fara í magaermisaðgerð og byrja að hreyfa sig. Hún segir fitufordóma víða í samfélaginu þótt ljóst sé að það sé ekki hollt að vera í ofþyngd.
Lengsta regnbogagata landsins var máluð í miðbæ Akraness í gær. Forseti hinsegin Vesturlands segir mikilvægt sem aldrei fyrr að fagna fjölbreytileikanum.
Formaður Verkalýðsfélags Akraness íhugar að stefna Hvali hf. vegna launataps starfsmanna ef ekkert verði af vertíðinni í ár. Hann gagnrýnir þingmenn Norðvesturkjördæmis harðlega fyrir aðgerðarleysi eftir að matvælaráðherra setti tímabundið bann á veiðarnar.
Lögreglan á Vesturlandi handtók mann sem vopnaður var hníf og hamri á Akranesi í nótt. Töluvert var um mál á borði lögreglunnar í gærkvöldi og í nótt en bæjarhátíðin Írskir dagar fer fram um helgina.
Pálmar Vígmundsson var krýndur rauðhærðasti Íslendingurinn árið 2023. Þetta er í annað sinn sem hann hlýtur titilinn, þrettán árum eftir fyrra skiptið.
Óprúttinn aðili spreyjaði piparúða yfir gesti á dansgólfinu í Gamla kaupfélaginu á Akranesi. Yfirlögregluþjónn segir Írska daga hafa farið vel fram en lögreglan væri þó með aukið fíkniefnaeftirlit þar sem um fjölskylduhátíð væri að ræða.
Veðrið leikur við gesti á Írskum dögum á Akranesi sem settir voru í tuttugasta og fjórða sinn á fimmtudaginn og nær hápunkti í kvöld. Formaður bæjarráðs segir hátíðarhöld hafa gengið vel, bærinn sé fullur af fólki og tjaldsvæðið fullt.
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, segir að lægðin sem hefur hringsólað yfir landinu sé úr sögunni. Yfir helgina má suðvesturhornið eiga von á sólarglætu og mikilli hlýju. Mánudagurinn gæti síðan orðið einn besti dagur sumarsins.
„Við eigum bara frábæra kennara og svo erum við búnir að æfa mikið í sumar,“ sögðu vaskir Eyjapeyjar eftir stórsigur í leik á Norðurálsmótinu á Akranesi, hressir og kátir líkt og aðrir af þeim tæplega 2.000 krökkum sem spiluðu á mótinu um síðustu helgi.
Mikil umferð hefur legið í gegnum Hvalfjarðargöngin á síðustu klukkustundum og náði löng bílaröð um tíma frá göngunum að Grundartanga.
Andrúmsloftið var þrúgandi á fundi Verkalýðsfélags Akraness um tímabundið hvalveiðibann. Baulað var á ræðuhaldara og klappað fyrir öðrum. Matvælaráðherra, þingmenn og formaður Verkalýðsfélags Akraness héldu ræður og sátu fyrir svörum á fundinum.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar segist furða sig á vinnubrögðum matvælaráðherra í tengslum við skyndilegt bann á hvalveiðum út sumarið. Stjórnin segir atvinnu- og tekjumissi fjölda heimila ein afleiðinga þess.
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, lokaði í dag rannsókn á meintri ríkisaðstoð Orkuveitu Reykjavíkur til dótturfélags síns, Gagnaveitu Reykjavíkur, sem nú heitir Ljósleiðarinn. Því var haldið fram að fjármögnun og lánveitingar OR til dótturfélags síns hafi leitt til ósanngjarns forskots og væri brot á EES-reglum um ríkisaðstoð. ESA heldur nú ekki.
Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi segist ekki vilja vera gífuryrtur en svo fyrirvaralaust hvalveiðibann og það sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynnti í morgun væri reiðarslag fyrir samfélagið.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, hefur haft samband við lögmann til að kanna réttarstöðu hvalveiðimanna. Hann segir ákvörðun um að stöðva vertíðina glórulausan pópúlisma.
Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á sunnudaginn og verða af því tilefni mikil dagskrá víða um land og sums staðar alla helgina.
Einbýlishús að Bjarkargrund 26 á Akranesi sem nú er á sölu hefur að sögn fasteignasala vakið gríðarlega athygli. Innréttingar, ljós og gólfefni eru upprunalegar frá því að húsið var byggt árið 1968 og er líkt og stigið sé inn í tímavél. Fasteignasalinn segir fólk mikið spyrja um innbúið.
Miðað við gögn úr ársreikningum Hvals hf. hafa hluthafar félagsins ekki riðið feitum hesti frá umdeildum hvalveiðum. Á árunum 2012 til 2020 var tap félagsins af hvalveiðum þrír milljarðar króna. Félagið hagnast á sama tíma verulega á fjárfestingum ótengdum útgerð.
Innviðaráðherra vill ekkert segja um það hvenær hægt verður að bjóða út næstu jarðgöng á Íslandi né hvort hann leggi til í nýrri samgönguáætlun að Fjarðarheiðargöng verði næst í röðinni. Óvissa ríkir um fjármögnun.
„Ég gæti ekki ímyndað mér að lifa án hans,“ segir dóttir konu sem tók að sér hund systur sinnar sem lést úr krabbameini. Nágrannar eru ósáttir við veru hundsins í húsinu þrátt fyrir að þeir búi ekki á sama stigagangi. Enginn hefur borið fyrir sig ofnæmi né ónæði.
Engar eignir fundust í þrotabúi Engilberts Runólfssonar athafnamanns og verktaka á Akranesi. Lýstar kröfur í þrotabúið námu 245 milljónum króna að því er fram kemur í Lögbirtingablaðinu.
Þrjú sveitarfélög sem eru eigendur Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og endanlegir eigendur Ljósleiðarans ehf., hafa samþykkt að auka hlutafé félagsins. Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð bjóða því nýjum hluthöfum það til kaups.
Lögreglan á Vesturlandi hefur fest kaup á tveimur Teslu-bifreiðum sem notaðar verða við almenna löggæslu framvegis. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir bifreiðakaupin hluta af kolefnisjöfnun embættisins.
Vesturlandsvegi var lokað í norðurátt nú síðdegis. Vegurinn hefur verið opnaður á ný en töluverðar umferðartafir hafa orðið vegna slyssins.
Teitur Björn Einarsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, mun taka sæti Haraldar Benediktssonar á Alþingi eftir að sá síðarnefndi tekur við stöðu bæjarstjóra Akraness á næstu vikum. Teitur Björn segist spenntur fyrir verkefninu.