Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Leikkonan Olga Sonja Thorarensen eignaðist fyrir nokkrum árum sitt fyrsta barn og missti um svipað leyti ömmu sína. Hún erfði eftir ömmuna safn af tvö hundruð púðluhundastyttum úr postúlíni og ákvað með systur sinni, dansaranum Salóme Sól Norðkvist, að vinna upp úr safninu leikritið Púðlusafnið. Þar takast þær á við fjölskylduarfinn og umbreytingarnar sem fylgja móðurhlutverkinu. Menning 21.10.2026 11:03
Tímamót hjá Árna Má „Ég fór að þreifa fyrir mér af góðu fólki sem væri til í að stökkva á þetta með mér og nú er þetta að verða myndarlegur hópur fólks sem er með starfsemi þarna,“ segir myndlistarmaðurinn Árni Már sem er að opna nýja vinnustofu í rými í miðbænum sem verður vægast sagt fullt af lífi. Menning 21.10.2026 10:15
Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Hjónin Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir og Markús Bjarnason hafa síðustu vikur unnið að því að breyta 122 ára gömlu stigahúsi við Holtsgötu í gallerý sem verður formlega opnað á fimmtudaginn. Gallerýið er á tveimur hæðum en er óvenjulegt að því leyti að það telur einungis sjö fermetra. Menning 20.10.2026 10:35
Ástfangin pör á Djöflum Sótsvarta kómedían Djöflar var frumsýnd á nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu á föstudaginn og mætti fjöldi fólks til að sýna sig og sjá aðra. Þar mátti sjá Mörtu Maríu og Pál Winkel, rapparana Birni og Jóhann Kristófer og ýmsar öflugar sprautur úr leiklistarsenunni. Menning 12.10.2026 13:30
Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Stjörnutríóið Björk Jakobsdóttir, Salka Sól Eyfeld og Selma Björnsdóttir snýr aftur á svið í Gaflaraleikhúsinu í framhaldssýningu þar sem þær opna sig á gátt um áskoranir lífsins. Björk segir ýmislegt hafa breyst á milli sýninga, aðallega það að nú sé Selma á breytingaskeiði, Salka að drukkna úr uppeldiskvíða og hún sjálf sé komin með annan fótinn í gröfina. Þá fái elskhugar þeirra útreið í sýningunni, maklega þó. Menning 8.10.2026 13:01
Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár en hún býr að hluta til á Íslandi og hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022. Carson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í klassískum fræðum og er þekkt fyrir að blanda saman ljóðum, prósa og goðafræði í verkum sínum. Menning 8.10.2026 11:02
Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels. Menning 8.10.2026 10:30
Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Fjöldi fólks lagði leið sína á Listasafn Íslands síðastliðið föstudagskvöld þar sem menningarvitar, listamenn og unnendur komu saman að taka púlsinn á nýjustu sýningum safnsins. Þar mætast Sigurður Guðjónsson og Kjarval með ólík verk sem taka yfir safnið. Menning 7.10.2026 11:31
Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi „Ég lagðist á koddann, full af kærleika og barasta svolítið feimin eftir hátíðahöld kvöldsins,“ segir leikstjórinn, leikkonan og lífskúnstnerinn Brynhildur Guðjónsdóttir sem fagnaði 54 ára afmæli sínu á hundruðustu sýningu Moulin Rouge síðastliðinn laugardag. Menning 29.9.2026 11:01
Málverk af Danakonungi vekur athygli „Kannski hefði konungurinn átt að velja annan listamann,“ skrifar listagagnrýnandi Politiken um nýafhjúpað portrettmálverk af Friðriki Danakonungi. Skiptar skoðanir eru á verkinu. Menning 26.9.2026 11:33
Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Grafíska hönnuðinum Þuru Stínu Kristleifsdóttur er margt til lista lagt. Samhliða hönnunarstarfinu er hún framleiðandi og listrænn stjórnandi og var um árabil einn vinsælasti plötusnúður landsins. Nú hefur hún tekið við starfi stjórnanda HönnunarMars. Menning 22.9.2026 09:01
Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Stjörnur landsins komu saman í Borgarleikhúsinu um helgina í sínu fínasta pússi þegar fyrsta frumsýning leikársins fór fram á nýja íslenska verkinu Svikasögum eftir Maríu Reyndal. Menning 21.9.2026 20:01
Frægir í fjöri yfir framtíðinni Það var líf og fjör í Grósku í gærmorgun þegar alls konar fólk úr ólíkum áttum samfélagsins kom saman í morgunbolla og ýmsar skemmtilegar hugleiðingar um framtíðina yfir morgunbollanum. Bergur Ebbi fór meðal annars á kostum og vinur hans, uppistandarinn Dóri DNA, lét sig ekki vanta. Menning 17.9.2026 13:32
Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Margrét Bjarnadóttir gaf út Varkára, sína fyrstu skáldsögu, á dögunum og hélt útgáfuhóf af því tilefni í Tjarnarbíói síðastliðinn föstudag. Fjöldi góðra gesta úr dans- og bókmenntaheiminum litu við, fögnuðu með Margréti og fylltu Tjarnarbíó. Menning 15.9.2026 13:57
Kanónur komu saman í Hveragerði Það var líf og fjör á fjögurra sýninga opnun á Listasafni Árnesinga um helgina og margt um manninn. Meðal gesta voru kanónurnar og myndlistarkonurnar Kristín Gunnlaugsdóttir og Steina Vasulka, rithöfundurinn og skáldið Elísabet Jökulsdóttir og Kristín Á. Árnadóttir, fyrrum sendiherra í Vínarborg. Menning 14.9.2026 16:00
Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Eva Rún Þorgeirsdóttir og Blær Guðmundsdóttir hlutu Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í ár fyrir handritið að bókinni Bestu vinir. Verðlaunin voru veitt í sjöunda sinn við Höfða í dag en á sjöunda tug handrita bárust í samkeppnina. Menning 10.9.2026 17:06
Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Tónlistarmaðurinn og þúsundþjalasmiðurinn Halldór Eldjárn réðist í það verkefni að grafa upp íslenska textann á fyrstu sjö seríunum af Simpson-fjölskyldunni og taka hann saman í bók. Hann segir þýðingu texta vera listform og að mikil verðmæti tapist ef þýðendum verði skipt út fyrir gervigreind. Menning 8.9.2026 11:03
Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson opnaði sýninguna Heimsljós í Fantasíu á Vinnustofu Kjarval í Austurstrætinu þriðjudaginn 1. september síðastliðinn. Fjöldi góðra gesta leit við á sýningaropnuninni, þar á meðal glæpasagnahöfundurinn Ragnar Jónasson, popparinn Herbert Guðmundsson og búningahönnuðurinn Dóra Einarsdóttir. Menning 4.9.2026 14:27
„Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Fjórum árum eftir andlát Eiríks Guðmundssonar, útvarpsmanns og rithöfundar, kemur óvænt út skáldsaga sem lá lengi fullunnin í skúffu hans. Jón Kalman, vinur Eiríks til áratuga, rifjar upp hvernig maður Eiríkur var, skæður sóknarmaður sem gat oft verið ófyrirleitinn og ekki tilbúinn að veita neinn afslátt. Menning 3.9.2026 07:03
Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Fullt var út úr dyrum þegar listakonan Þórdís Erla Zoëga opnaði sýninguna Samrými í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn 27. ágúst síðastliðinn. Sýningin fjallar um hvernig við skilgreinum okkur sjálf í gegnum rými, landamæri og tengsl við aðra. Menning 31.8.2026 13:03
Svandís í ritstjórastól Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vinstri grænna og ráðherra í ýmsum ráðuneytum, sagði skilið við stjórnmálin fyrr á árinu og hefur nýlega tekið að sér nýtt hlutverk. Svandís er nýr ritstjóri tímaritsins Breiðfirðings sem er gefið út árlega af Breiðfirðingafélaginu. Menning 26.8.2026 10:18
Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er handan við hornið og hefur tekið yfir alla umræðu í landinu. Nóg hefur verið rætt og ritað um málið og margir farið óhefðbundnar leiðir í nálgun sinni. Vísir hefur tekið saman kjánalegustu augnablikin úr umræðunni síðustu vikurnar. Menning 26.8.2026 07:02
Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Það var líf og fjör á Menningarnótt þegar fatahönnuðurinn Hildur Yeoman bauð í árlegt götudanspartý fyrir utan verslun sína á Laugavegi 7. Plötusnúðurinn Dóra Júlía hélt uppi stuðinu á meðan gestir og gangandi virkan þátt í gleðinni og lét fólk rigninguna ekki stoppa stemminguna. Menning 25.8.2026 20:02
Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Fyrir tæpum þrjátíu árum tók Grensáskirkja nýtt orgel í notkun og hefur gamla orgelið síðan þá nýst í kennslu. Söfnuður kirkjunnar ákvað svo í vetur að færa Hallgrímskirkju í Saurbæ gamla orgelið. Um páskana var orgelið tekið í notkun í Saurbæ og síðasta sunnudag var haldin sameiginleg mess safnaðanna þar sem gjöfinni var formlega fylgt úr hlaði. Menning 19.8.2026 12:01