Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. október 2026 11:34 Bergdís Sveinsdóttir og Óskar Borgþórsson í nýju góðgerðartreyjunni sem er skreytt Íslandsmeistaraliði Víkings frá 1921 og fyrstu keppnisferð liðsins til Ísafjarðar. Sigríður Margrét Ágústsdóttir Íslandsmeistarar Víkings spila síðasta leik tímabilsins næstkomandi laugardag í góðgerðartreyju sem er hönnuð af 66°Norður. Takmarkað magn af treyjum er til sölu og mun allur ágóði af sölunni renna óskiptur til markvarðarins Ingvars Jónssonar og fjölskyldu hans en hann greindist með krabbamein fyrr á árinu og háir nú baráttu við það.
Góðgerðartreyjan er afrakstur samstarfs á milli Víkings og 66°Norður sem hófst í byrjun árs og nær nú hápunkti þessa viku þegar treyjan, sem er framleidd af Macron, fer í sölu. „Eftir vel heppnaða góðgerðartreyju árið 2023 höfum við viljað flýta okkur hægt hvað varðar að leggja af stað í annað slíkt verkefni. Við höfum alltaf hugsað stórt í þessum efnum og samstarfsaðilarnir gerast ekki stærri í okkar huga á Íslandi, og þó víðar væri leitað, heldur en 66°Norður,“ segir Halldór Smári Sigurðsson, leikjahæsti leikmaður Víkings, sem hannaði treyjuna með Bergi Guðnasyni hjá 66°Norður. Óskar Borgþórsson í treyjunni.Sigríður Margrét Ágústsdóttir Á treyjunni er frásögn af fyrsta Íslandsmeistaraliði Víkings og fyrstu keppnisferð félagsins árið 1921 í undirbúningi fyrir Íslandsmótið þegar liðið sigldi til Vestfjarða og keppti þar æfingaleiki við Ísfirðinga. Á svipuðum tíma og á sömu slóðum fæddist hugmyndin að því sem átti síðar eftir að verða 66°Norður. Liturinn á treyjunni er innblásinn af Sepia-ljósmyndun sem var mikið notuð á þeim tíma sem myndin er tekin. Appelsínugulur hefur fylgt 66°Norður frá upphafi sem litur á fyrstu flík fyrirtækisins, sjóstakknum, en liturinn gegndi, og gegnir enn, því hlutverki að gera þá sýnilegri sem falla útbyrðis á sjó. „Hjá 66°Norður þarf hver flík að hafa skýran tilgang, hvort sem hann felst í tæknilegum eiginleikum, vatnsheldni eða hugmyndafræði. Þá eru sögur sem við viljum segja jafnframt stór hluti af því sem við gerum hjá 66°Norður,“ segir Bergur Guðnason, hönnuður og stjórnandi samstarfa hjá 66°Norður. „Í þessu verkefni var kafað í sögu Víkings og leitað leiða til að tengja hana við arfleið og sjónræna nálgun 66°Norður. Markmiðið var að skapa flík sem hefði ekki aðeins skýran tilgang, heldur segði einnig sögu og endurspeglaði tengsl fortíðar og nútíðar,“ bætir hann við. Liðsmyndin af Íslandsmeistaraliði Víkings Reykjavíkur árið 1921. Þar sem bæði grafíkin og ljósmyndin á treyjunni voru tæknilega flókin í útfærslu fóru hönnuðurnir í höfuðstöðvar Macron í Bologna á Ítalíu til að tryggja að útkoman yrði sem best. Liðsmyndin frá 1921 leikur lykilhlutverk í hönnuninni. Í aftari röð frá vinstri eru: Helgi Eiríksson, Gunnar Bjarnason, Sverrir Forberg, Halldór Halldórsson, Óskar Norðmann, Sigurður Waage, Axel Andrésson (einn stofnenda Víkings) og Þórður Albertsson. Í fremri röð frá vinstri eru: Indriði Waage, Páll Andrésson, Haraldur Aspelund, Ágúst Jónsson og Einar Baldvin Guðmundsson. Vefsala á treyjunni hefst á fimmtudagskvöldið 22. október næskomandi klukkan 23. Daginn eftir, föstudaginn 23. október, verður blásið til veislu í verslun 66°Norður í Faxafeni 17 klukkan 17 þar sem treyjan verður til sölu, en þó í enn takmarkaðra magni en í vefsölu. Auk þess verður tuttugu prósenta afsláttur í versluninni á öðrum vörum 66°Norður. Treyjan á appelsínugulum gúmmíbát.Sigríður Margrét Ágústsdóttir Á treyjunni er merkjum Víkings og 66° Norður blandað saman.Sigríður Margrét Ágústsdóttir Merki 66° Norður prýðir bakhliðina auk landakorts af ferðalagi Víkinga árið 1921.Sigríður Margrét Ágústsdóttir
Víkingur Reykjavík Tíska og hönnun Besta deild karla Fótbolti Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Tímamót hjá Árna Má Menning Tólf barna móðir selur sveitadraum á Selfossi Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Fleiri fréttir Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Verður að geta hent sér í hnébeygju Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað „Það er smá töffari í mér“ Barnaspítalabindi Billy stal senunni Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Kristrún valdi Victoriu Beckham Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Staðráðnar í að koma sterkari til baka Minningar um mömmu það allra verðmætasta Sól sló í gegn á tískuviku í London Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Sjá meira