Tíska og hönnun

Krist­rún valdi Victoriu Beckham

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er glæsileg í kjól frá Victoriu Beckham.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er glæsileg í kjól frá Victoriu Beckham. Vísir

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er þekkt fyrir stílhreinan og glæsilegan klæðaburð og sló ekki slöku við í fatavalinu í morgun. 

Hún valdi dökkgrænan kjól sem er frá tískuhúsi ofurstjörnunnar Victoriu Beckham til að taka á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. 

Kristrún og Marco Rubio.Vísir/Anton

Við kjólinn paraði hún svarta einfalda hæla og svarta ullarkápu en poppaði upp á klæðaburðinn með grænni leðurtösku í stíl við kjólinn. 

Það er stæll á Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra.

Kjóllinn er nánast uppseldur hjá Victoriu Beckham en er eftir í stærð 40 og kostar um 1550 bandaríkjadali eða 188 þúsund íslenskar krónur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.