Upphaf Akraborgarinnar má rekja til þess að árið 1932 var hlutafélagið Skallagrímur stofnað í þeim tilgangi að annast fólks- og vöruflutninga á milli Reykjavíkur og Borgarness. Það var þó ekki fyrr en árið 1956 sem að félagið lét smíða sérstaklega fyrir sig skip sem hlaut nafnið Akraborgin.

Skipið var notað næstu átján árin en þá leysti nýtt og stærra skip það eldra af hólmi en hélt nafninu. Með tilkomu nýja skipsins hófust einnig flutningar á bifreiðum fyrir alvöru. Þriðja Akraborgarskipið kom síðan til sögunnar og var tekið í notkun árið 1982.
Fyrst um sinn voru áætlunarsiglingar alla daga vikunnar, að jafnaði fjórar ferðir fram og til baka, og tók siglingin klukkutíma. Síðar var ferðunum breytt þannig að fyrsta ferð frá Akranesi var klukkan átta að morgni og síðasta ferð frá Reykjavík klukkan hálf sjö að kvöldi.

Tommi og Jenni í sjónvarpinu og reykt inni
Í pistli á Deiglunni rifjar Borgar Þór Einarsson upp þegar hann var ungur drengur á níunda áratugnum og ferðaðist reglulega með Akraborginni.
„Á þessum árum fór ég að jafnaði 1-2 í mánuði til Reykjavíkur, einsamall frá á að giska 8 ára aldri. Daginn fyrir brottför var veðurfregna beðið átekta og ef það spáði suðvestanátt var ekki von á góðu. Stundum féllu ferðir einfaldlega niður en það kom þó fyrir að lagt var í hann í haugasjó. Þá var farin dýpri leiðin, sem svo var kölluð, utar í flóann. Fyrir okkur krakkana þýddi dýpri leiðin bara lengri leiðin og það þýddi líka lengri tíma um borð bullandi sjóveikur,“ segir Borgar og minnist þess einnig að í Akraborginni voru engir ælupokar til staðar fyrir þá sem urðu sjóveikir á leiðinni, heldur var notast við sérútbúna æludalla.

Í nýju Akraborginni voru tveir aðalveitingasalir, en sá þriðji var undir þiljum.
„Sá fremri var innréttaður grænum leðurstólum og viðarborðum og þar var einnig veitingasalan. Skipið hafði augljóslega ekki verið byggt fyrir samfélag þar sem áfengisneysla var tabú og því fór veitingasalan fram yfir barborð og var setið við barstóla. Aftari salurinn var dekkaður appelsínugulum lit, leðurstólar og borð í stíl. Þar mátti reykja. Og þar hafði jafnframt verið komið fyrir sjónvarpi og VHS-vídeótæki með Tomma & Jenna spólu.
Á meðan fullorðna fólkið fékk sér að borða í fremri salnum í fersku lofti sátu börnin yfir eilífum endurtekningum af Tomma & Jenna umlukin blágráu reykjarmistri frá þeim úr hópi fullorðinna sem ekki höfðu neina lyst á mat eða öllu heldur meiri lyst á nikótíni.
Breytt í skólaskip
Þann 10. júlí árið 1998 sigldi Akraborgin sína hinstu ferð og lauk þar með stórum kafla í sögu samgöngumála á Íslandi. Daginn eftir voru síðan Hvalfjarðargöngin opnuð.

Eftir að siglingum var hætt gaf íslenska ríkið Slysavarnafélaginu Landsbjörgu skipið til nota fyrir starfsemi Slysavarnaskóla sjómanna. Akraborgin fékk þar af leiðandi nýtt hlutverk og sömuleiðis nýtt nafn og heitir í dag Sæbjörg.
Meðfylgjandi myndir eru í eigu Ljósmyndasafns Akraness.















Um Ljósmyndasafn Akraness
Ljósmyndasafn Akraness var stofnað 28. desember 2002 og starfar það sem deild innan Héraðsskjalasafns Akraness.
Í kjölfar stofnunar ljósmyndasafnsins var var vefurinn Ljósmyndasafn Akraness formlega opnaðar en þar eru ljósmyndir gerðar aðgengilegar almenningi.
Ljósmyndasafn Akraness hefur það að markmiði að safna, varðveita og miðla ljósmyndum sem tengjast svæðinu.
Nýja heimasíða héraðsskjalasafnsins er www.herakranes.is og þar er hægt að sjá ljósmyndirnar líka.