Lífið

Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxus­lífi og slags­málum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Sean Combs eða P Diddy, Puff Daddy eins og margir þekkja hann, var dæmdur í fyrra vændisbrot.
Sean Combs eða P Diddy, Puff Daddy eins og margir þekkja hann, var dæmdur í fyrra vændisbrot. Vísir/EPA

Rapparinn Sean „Diddy“ Combs hefur verið fluttur í alríkisfangelsi í Pennsylvaníu eftir að fréttir bárust af því að hann hefði lifað lúxuslífi í fangelsi í New Jersey og slasast í átökum. Rapparinn hefur afplánað í fangelsi í New Jersey frá því að hann var dæmdur í fyrra fyrir brot gegn vændi. 

Combs var dæmdur í fjögurra ára og tveggja mánaða fangelsi eftir að hann var sakfelldur 2. júlí 2025 fyrir brot tengd vændi. Brotin vörðuðu flutning fólks milli ríkja Bandaríkjanna í þeim tilgangi að það tæki þátt í kynferðislegum athöfnum. Í réttarhöldunum komu fram átakanlegar frásagnir af ofbeldi og kynlífspartíum sem Combs kallaði „freak-offs“.

Samkvæmt frétt Guardian var hann fluttur í lágmarksöryggisfangelsi sunnan við Williamsport og um 250 kílómetra vestur af New York-borg. Í fréttinni er haft eftir talsmanni Bomcs, Juda Engelmayer, að ákvarðanir um vistun fanga væru teknar af fangelsismálastofnuninni og hann gæti ekki tjáð sig um aðdraganda eða ástæðu flutninganna.

„Sean einbeitir sér áfram að því að horfa fram á veginn og við vonum að dvöl hans á nýja staðnum verði uppbyggileg og raskist ekki að óþörfu,“ sagði Engelmayer.

Smyglaði inn síma og áfengi

Í september greindi NBC News frá því að Combs lifði áfram lúxuslífi innan veggja fangelsisins. Hann hefði meðal annars smyglað inn Hennessy-koníaki, fengið aðra fanga til að elda fyrir sig, þrífa, búa um rúmið hans og veita honum nudd. Þá hefði hann notað smyglfarsíma til að skoða samfélagsmiðla og nektarmyndir af fyrrverandi kærustu sinni sem hún hafði tekið af sér.

Fyrr í vikunni greindi bandaríska slúðurfréttaveitan TMZ síðan frá því að Combs hefði slasast í átökum við annan fanga í Fort Dix og þurft að fara út fyrir fangelsið til að fá meðferð. Fangelsismálayfirvöld vísuðu fréttinni á bug en greint var frá því í sumar að vista hefði Combs í einangrun eftir slagsmál við fanga.

Í frétt Guardian segir að samkvæmt heimildum AP hafi hann verið sviptur 41 dags afslætti af fangelsisvist sinni sem hann hafði hlotið vegna góðrar hegðunar. Hann losni því ekki úr fangelsi fyrr en 2. mars 2028 en átti að losna í janúar með afslættinum.

Í apríl tók áfrýjunardómstóll fyrir kröfu Combs um að sakfellingu hans og fangelsisdómi yrði hnekkt. Lögmenn hans hafa haldið því fram að refsingin sé of þung. Dómstóllinn hefur enn ekki kveðið upp úrskurð.


Tengdar fréttir

Diddy selur svörtu einkaþotuna

Tónlistar- og athafnamaðurinn Sean „Diddy“ Combs hefur selt mattsvarta Gulfstream G550-einkaþotu sína. Þotan var framleidd árið 2015 og hefur verið í leiguflugi á meðan Combs hefur setið í fangelsi.

Maduro, Diddy og Mangione í sama fangelsi

Stuttu eftir að bandarísk herþota með Nicolás Maduro forseta Venesúela og eiginkonu hans Ciliu Flores lenti á flugvelli skammt frá New York-borg voru hjónin flogin með þyrlu í eitt alræmdasta fangelsi Bandaríkjanna: Metropolitan detention center. Þar dvelur einnig Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa myrt forstjóra UnitedHealthcare, og þangað til nýlega Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy.

Refsidómi Diddy verði áfrýjað

Bandaríski tónlistar- og athafnamaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy, hyggst áfrýja fangelsisdómnum sem hann hlaut í byrjun október fyrir vændisstarfsemi. Diddy hlaut fimmtíu mánaða fangelsisdóm og gert að greiða 500 þúsund Bandaríkjadala sektargreiðslu fyrir brot í tveimur ákæruliðum er tengjast flutningi fólks í tengslum við vændisstarfsemi. Hann var sýknaður af öðrum ákæruliðum í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.