Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lovísa Arnardóttir skrifar 17. október 2026 11:00 Sean Combs eða P Diddy, Puff Daddy eins og margir þekkja hann, var dæmdur í fyrra vændisbrot. Vísir/EPA Rapparinn Sean „Diddy“ Combs hefur verið fluttur í alríkisfangelsi í Pennsylvaníu eftir að fréttir bárust af því að hann hefði lifað lúxuslífi í fangelsi í New Jersey og slasast í átökum. Rapparinn hefur afplánað í fangelsi í New Jersey frá því að hann var dæmdur í fyrra fyrir brot gegn vændi.
Combs var dæmdur í fjögurra ára og tveggja mánaða fangelsi eftir að hann var sakfelldur 2. júlí 2025 fyrir brot tengd vændi. Brotin vörðuðu flutning fólks milli ríkja Bandaríkjanna í þeim tilgangi að það tæki þátt í kynferðislegum athöfnum. Í réttarhöldunum komu fram átakanlegar frásagnir af ofbeldi og kynlífspartíum sem Combs kallaði „freak-offs“. Samkvæmt frétt Guardian var hann fluttur í lágmarksöryggisfangelsi sunnan við Williamsport og um 250 kílómetra vestur af New York-borg. Í fréttinni er haft eftir talsmanni Bomcs, Juda Engelmayer, að ákvarðanir um vistun fanga væru teknar af fangelsismálastofnuninni og hann gæti ekki tjáð sig um aðdraganda eða ástæðu flutninganna. „Sean einbeitir sér áfram að því að horfa fram á veginn og við vonum að dvöl hans á nýja staðnum verði uppbyggileg og raskist ekki að óþörfu,“ sagði Engelmayer. Smyglaði inn síma og áfengi Í september greindi NBC News frá því að Combs lifði áfram lúxuslífi innan veggja fangelsisins. Hann hefði meðal annars smyglað inn Hennessy-koníaki, fengið aðra fanga til að elda fyrir sig, þrífa, búa um rúmið hans og veita honum nudd. Þá hefði hann notað smyglfarsíma til að skoða samfélagsmiðla og nektarmyndir af fyrrverandi kærustu sinni sem hún hafði tekið af sér. Fyrr í vikunni greindi bandaríska slúðurfréttaveitan TMZ síðan frá því að Combs hefði slasast í átökum við annan fanga í Fort Dix og þurft að fara út fyrir fangelsið til að fá meðferð. Fangelsismálayfirvöld vísuðu fréttinni á bug en greint var frá því í sumar að vista hefði Combs í einangrun eftir slagsmál við fanga. Í frétt Guardian segir að samkvæmt heimildum AP hafi hann verið sviptur 41 dags afslætti af fangelsisvist sinni sem hann hafði hlotið vegna góðrar hegðunar. Hann losni því ekki úr fangelsi fyrr en 2. mars 2028 en átti að losna í janúar með afslættinum. Í apríl tók áfrýjunardómstóll fyrir kröfu Combs um að sakfellingu hans og fangelsisdómi yrði hnekkt. Lögmenn hans hafa haldið því fram að refsingin sé of þung. Dómstóllinn hefur enn ekki kveðið upp úrskurð.
Bandaríkin Erlend sakamál Mál Sean „Diddy“ Combs Tengdar fréttir Diddy selur svörtu einkaþotuna Tónlistar- og athafnamaðurinn Sean „Diddy“ Combs hefur selt mattsvarta Gulfstream G550-einkaþotu sína. Þotan var framleidd árið 2015 og hefur verið í leiguflugi á meðan Combs hefur setið í fangelsi. 13. janúar 2026 12:33 Maduro, Diddy og Mangione í sama fangelsi Stuttu eftir að bandarísk herþota með Nicolás Maduro forseta Venesúela og eiginkonu hans Ciliu Flores lenti á flugvelli skammt frá New York-borg voru hjónin flogin með þyrlu í eitt alræmdasta fangelsi Bandaríkjanna: Metropolitan detention center. Þar dvelur einnig Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa myrt forstjóra UnitedHealthcare, og þangað til nýlega Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy. 7. janúar 2026 18:10 Refsidómi Diddy verði áfrýjað Bandaríski tónlistar- og athafnamaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy, hyggst áfrýja fangelsisdómnum sem hann hlaut í byrjun október fyrir vændisstarfsemi. Diddy hlaut fimmtíu mánaða fangelsisdóm og gert að greiða 500 þúsund Bandaríkjadala sektargreiðslu fyrir brot í tveimur ákæruliðum er tengjast flutningi fólks í tengslum við vændisstarfsemi. Hann var sýknaður af öðrum ákæruliðum í sumar. 21. október 2025 07:50 Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Fleiri fréttir Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors Sjá meira
Diddy selur svörtu einkaþotuna Tónlistar- og athafnamaðurinn Sean „Diddy“ Combs hefur selt mattsvarta Gulfstream G550-einkaþotu sína. Þotan var framleidd árið 2015 og hefur verið í leiguflugi á meðan Combs hefur setið í fangelsi. 13. janúar 2026 12:33
Maduro, Diddy og Mangione í sama fangelsi Stuttu eftir að bandarísk herþota með Nicolás Maduro forseta Venesúela og eiginkonu hans Ciliu Flores lenti á flugvelli skammt frá New York-borg voru hjónin flogin með þyrlu í eitt alræmdasta fangelsi Bandaríkjanna: Metropolitan detention center. Þar dvelur einnig Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa myrt forstjóra UnitedHealthcare, og þangað til nýlega Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy. 7. janúar 2026 18:10
Refsidómi Diddy verði áfrýjað Bandaríski tónlistar- og athafnamaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy, hyggst áfrýja fangelsisdómnum sem hann hlaut í byrjun október fyrir vændisstarfsemi. Diddy hlaut fimmtíu mánaða fangelsisdóm og gert að greiða 500 þúsund Bandaríkjadala sektargreiðslu fyrir brot í tveimur ákæruliðum er tengjast flutningi fólks í tengslum við vændisstarfsemi. Hann var sýknaður af öðrum ákæruliðum í sumar. 21. október 2025 07:50