Ísrael

Þau sem hunsa helförina
„Gjörðir fólks í dag sýna okkur hvað sama fólk hefði gert á meðan á helförinni stóð.“ Þessi orð tók ég með mér frá fundi dr. Mads Gilbert í Hofi á Akureyri, en Mads er margverðlaunaður norskur læknir sem hefur lengi stutt Palestínumenn í baráttunni gegn þungvopnuðu hersetuliði Ísraels.

Að minnsta kosti 30 látnir og tugir særðir í árásum á skóla
Að minnsta kosti 30 manns, þar af fimm börn, létust í loftárásum Ísraelsmanna á skóla Sameinuðu þjóðanna í al-Nuseirat, þar sem fólk á vergangi er sagt hafa hafist við.

Ísrael tilkynnir um dauða fjögurra gísla
Ísraelski herinn hefur tilkynnt um dauða fjögurra manna sem teknir voru í gíslingu í árásum Hamas á Ísrael sjöunda október. Talið er að um áttatíu gíslar séu enn í haldi.

Netanyahu fastur milli steins og sleggju
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, er nú sagður standa frammi fyrir því að þurfa mögulega að velja á milli þess að ganga að vopnahléstillögum sem nú liggja fyrir og þess að halda lífi í ríkisstjórn sinni.

Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn
Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti nýja friðaráætlun Ísraela sem felur í sér vopnahlé gegn því að Hamas-samtökin frelsi alla gísla í haldi þeirra. Hamas-liðar eru sagðir hafa tekið vel í tillögurnar.

Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi
Ísraelsmenn hafa nú stjórn á öllum landamærum Gasa eftir að þeir tóku yfir þann kafla sem liggur að Egyptalandi. Hætta er á að þetta muni flækja samskipti stjórnvalda í Ísrael og Egyptalandi.

Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“
Bandaríkjastjórn er ekki á því að full innrás Ísraelsmanna sé hafin í Rafah í suðurhluta Gasa og því hafi Ísraelsmenn ekki farið yfir svokallaðar „rauðar línur“ sem Bandaríkjamenn hafa dregið.

Ísrael verður að hætta að drepa saklausa borgara á Gaza
Þann 7. maí birti ég grein hér á Vísi þar sem ég sagði að innrás Ísraela á Rafah stríddi gegn allri mannúð. Síðan þá hefur Ísrael staðið fyrir landhernaði í hlutum borgarinnar og haldið áfram grimmilegum loftárásum.

„Við höfum ekkert“
Ísraelskir hermenn óku í dag skriðdrekum inn í Rafah á Gasaströndinni. Þá voru skriðdrekar notaðir til að skjóta að tjaldbúðum vestur af borginni þar sem fólk á vergangi hafði komið sér fyrir. Minnst 21 féll í skothríðinni, samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á Gasa.

Vill sjá leiðtoga á Norðurlöndunum en ekki aumingja og gungur
Dr. Mads Gilbert, heimsþekktur norskur læknir sem hefur unnið í fleiri áratugi á Gasa, á þá von í brjósti að stjórnvöld á Íslandi og í Noregi taki höndum saman og þrýsti með þýðingarmiklum hætti á stjórnvöld í Ísrael.

Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins
Fyrrverandi yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar, Yossi Cohen, reyndi á nokkrum leynilegum fundum að þrýsta á aðalsaksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins, Fatou Bensouda, að falla frá því að rannsaka Ísrael fyrir stríðsglæpi.

Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, segir að árásir á Rafah í gær, sem sagðar eru hafa banað að minnsta kosti 45 manns í tjaldbúðum í borginni, hafi verið „hræðileg mistök“. Þær séu til rannsóknar hjá yfirvöldum.

Töldu að enginn ætti að deyja í árásunum
Loftárásir Ísraelsmanna í Rafah á Gasaströndinni eru nú sagðar hafa leitt til dauða 45 manna í tjaldbúðum. Árásirnar hafa verið harðlega gagnrýndar í dag en Ísraelar hafa sakað Hamas-liða um að kveikja eld sem dró fólkið til dauða.

Segir róðurinn vera að þyngjast fyrir Ísraelsmenn
Þórdís Ingadóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í alþjóðamálum segir róður Ísraelsmanna þyngjast. Ísraelsk stjórnvöld séu að einangrast á alþjóðavettvangi og nýútgefin beiðni um handtökuskipun af hálfu aðalsaksóknara alþjóðasakamáladómstólsins geri þeim ekki hægar um vik.

Hamas skaut eldflaugum í átt að Tel Aviv
Hamas-samtökin skutu fyrir skemmstu eldlfaugum að Tel Aviv, höfuðborg Ísrael.

Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom
Vöruflutningabílar með hjálpargögn fengu í dag að fara inn á Gasa í gegnum Kerem Shalom landamærin samkvæmt nýju samkomulagi við Egyptaland. Óljóst er hvort mannúðarsamtök fái aðgang að hjálpargögnunum inn á Gasasvæðinu vegna áframhaldandi árása á staðnum.

Þjóðarmorðið á Gasa í tölum og hlutverk Íslands
Í nýlegri yfirlýsingu komst Alþjóðadómstóllinn í Haag að þeirri niðurstöðu að sennileg rök væru fyrir þjóðarmorði af hálfu Ísraels gegn palestínsku þjóðinni.

Halda áfram árásum á Rafah
Í það minnsta þrjátíu manns hafa látið lífið í árásum Ísraelsmanna á Gasasvæðinu síðan alþjóðadómstóllinn í Haag skipaði Ísrael að stöðva innrás sína á Rafah á sunnanverðri Gasaströndinni.

Ganga 111 kílómetra til styrktar börnum í Gasa
Sex drengir, þeir Benjamín, Erik, Felix, Markús, Stefán og Óðinn lögðu af stað snemma í morgun í 111 kílómetra gönguferð til styrktar börnum á stríðshrjáðu Gasasvæðinu. Gangan mun taka þrjá daga.

Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah
Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði í dag að Ísraelsher ætti að láta af öllum hernaðarðageðrum í Rafah í suðurhluta Gasaborgar. Í úrskurðinum er ekki kveðið á um vopnahlé eins og óskað hafði verið eftir af Suður-Afríku sem kom með máli til dómstólsins.

Hvar er sómakenndin? Blakleikur Ísraels og Íslands
Helgina 17. – 19. maí fór fram mót í CEV Silver League deildinni í blaki í íþróttahúsinu í Digranesi í Kópavogi. Leikurinn vakti nokkuð umtal, m.a. í Facebook hópnum Sniðganga fyrir Palestínu, af því að í þetta sinn tók karlalandsliðið á móti landsliði Ísraels.

Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur
Þrátt fyrir umfangsmikinn hernað á Gasaströndinni berjast vígamenn Hamas-samtakanna enn af krafti gegn ísraelska hernum. Þá skjóta Hamas-liðar enn eldflaugum að Ísrael en ráðamenn í Ísrael og í Bandaríkjunum hafa áhyggjur af því að Ísraelar geti ekki náð markmiðum ríkisstjórnar Benjamíns Netanjahú um algeran sigur gegn hryðjuverkasamtökunum.

Fjölskyldur birta myndskeið af blóðugum gíslum Hamas-liða
Fjölskyldur kvenna sem teknar voru fanga þegar Hamas-liðar réðust á byggðir Ísraelsmanna 7. október síðastliðinn hafa birt myndskeið af atburðarásinni sem sýnir konurnar blóðugar og óttaslegnar.

Saka Ísraela um að misbeita lögum til þess að stöðva streymi frá Gasa
Ísraelsk stjórnvöld slökktu á vefmyndavél AP-fréttastofunnar sem hefur sýnt Gasa í beinu streymi og lagði hald á hana í gær. AP sakar Ísraela um að misnota ný fjölmiðlalög sem voru nýlega notuð til þess að banna katörsku fréttastofuna al-Jazeera.

Ísraelar kalla sendiherrana heim frá Noregi, Írlandi og Spáni
Utanríkisráðherra Ísraels hefur ákveðið að kalla ísraelska diplómata í Noregi, Spáni og Írlandi heim til skrafs og ráðagerða eftir að stjórnvöld þar tilkynntu í morgun að þau viðurkenndu sjálfstætt ríki Palestínu.

Clooney mælti með handtöku Netanyahu
Amal Clooney er ein þeirra sérfræðinga sem mælti með því við sérstakan saksóknara á vegum Alþjóðaglæpadómstólsins að gefin yrði út handtökuskipun á hendur Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels auk leiðtoga Hamas samtakanna.

Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð
Joe Biden Bandaríkjaforseti var ómyrkur í máli í gær þegar hann tjáði sig um ákvörðun Alþjóðaglæpadómstólsins (ICC) um að gefa út handtökuskipanir á hendur leiðtogum Ísrael vegna átakanna á Gasa.

Netanjahú hafnar handtökuskipuninni
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hafnar alfarið handtökuskipun á hendur sér sem aðalsaksóknari hins Alþjóðlega sakamáladómstóls hefur farið fram á. Aðalsaksóknarinn sakar Netanjahú, Yoav Gallant varnarmálaráðherra og þrjá leiðtoga Hamas um aðild að stríðsglæpum í mannskæðum átökum Hamas og Ísraels sem staðið hafa yfir í um sjö mánuði.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar
Prófessor í stjórnmálafræði segir það stórfréttir að alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi farið fram á handtökuskipun á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Stærstu fréttirnar séu þó þær að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi reynst algjörlega vanhæft til að takast á við aðstæðurnar.

Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða
Aðalsaksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins hefur farið fram á handtökuskipun á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, Yoav Gallant, varnarmálaráðherra landsins og þriggja leiðtoga Hamas. Allir eru sakaðir um aðild að stríðsglæpum í mannskæðum átökum Hamas og Ísrael sem hafa staðið yfir í um sjö mánuði.