

Forstjóri Viðskiptaráðs Danmerkur heitir að sögufræga byggingin Børsen, sem brann í liðinni viku, verði endurreist sama hvað. Brunanum hefur verið líkt við brunann á frönsku dómkirkjunni Notre-Dame í apríl 2019, en einum degi munaði að slétt fimm ár hefðu liðið milli brunanna tveggja.
Flugvöllurinn í Billund í Danmörku hefur verið rýmdur vegna sprengjuhótunar. Talsmaður flugvallarins, Dan Prangsgaard, staðfestir þetta í samtali við Ekstra Bladet.
Kolbeinn Karl Kristinsson fékk tölvupóst klukkan tvö að nóttu og átti von á að fá Nígeríusvindlara inn á gafl til sín þar sem hann býr í Kaupmannahöfn hvað úr hverju að krefjast peninga. Í ljós kom að bróðir hans Magnús Már Kristinsson hafði tekist að blekkja hann svo vikum skipti þannig að Kolbeini var hætt að lítast á blikuna.
Útveggur Børsen, gömlu kauphallarinnar í Kaupmannahöfn, hrundi í dag. Unnið er að því að fjarlægja brak og vinnupalla þrátt fyrir að veruleg hætta sé talin á frekara hruni í byggingunni.
Síðustu skref við uppsetningu hæstu vindmyllu heims sem staðsett er á landi verða tekin í dag við höfnina í Thyborøn á Jótlandi í Danmörku í dag. Vindmyllan er tæpum hundrað metrum hærri en hæst punktur landsins.
Viðbragðsaðilar eru enn við störf við Børsen í Kaupmannahöfn. Rannsókn lögreglu á upptökum brunans er hafin en lögregla hefur enn ekki fengið að fara inn í húsið. Danir eru margir í áfalli yfir brunanum og vilji til að fara í endurbyggingu á því.
Alþjóða handknattleikssambandið hefur ákveðið að heimsmeistaramót karla í handbolta eftir sjö ár fari fram á Norðurlöndunum.
Slökkvilið berst enn við stórbruna í einu helsta kennileiti Kaupmannahafnar; sögufrægu byggingunni Børsen. Sagnfræðingur segir sárt að horfa upp á eldsvoðann en þó ljós í myrkrinu að hluta málverka og menningarverðmæta hafi verið bjargað
Eldur logar enn í Børsen í Kaupmannahöfn. Tekist hefur að bjarga miklu magni verðmæta sem geymd voru í byggingunni. Byggingin hýsti dönsku kauphöllina til ársins 1974, en endurbætur á byggingunni hafa staðið yfir síðustu ár. Ekki er talið að neinn hafi slasast vegna brunans.
Mikill eldur kom upp í hinni sögufrægu byggingu Børsen í Kaupmannahöfn í morgun. Helsta kennileiti byggingarinnar, spíran sem nær 56 metra hæð, hefur orðið eldinum að bráð.
Fyrir rúmum tveimur árum ákváðu Geir Magnússon og Elín Fjóla Jónsdóttir að rífa sig upp með rótum og flytja búferlum til Danmerkur ásamt fimm börnum. Þau voru ekki með neina fasta vinnu í hendi og renndu blint í sjóinn. Í dag reka þau veitingastaðinn Esja Bistro sem er orðinn þekktur sem „íslenski veitingastaðurinn“ í bænum Hobro á Jótlandi.
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi, kvartaði um helgina yfir því að fólk frá „huggulegum“ löndum eins og Danmörku væru ekki að flytja til Bandaríkjanna. Þess í stað sagði hann að fólk úr fangelsum „ótrúlegra“ og „hörmulegra“ landa flæddu til Bandaríkjanna.
Hinu alræmda Pusher-stræti í Kristjáníu í Kaupmannahöfn verður lokað og vonast er til þess að kannabissalan sem hefur einkennt hana í áratugi muni heyra sögunni til.
Landsbanki Íslands hefur hætt kaupum og sölu á norskum krónum og mun frá og með 3. maí 2024 hætta að kaupa og selja sænskar eða danskar krónur.
Flugvallafélag Grænlands, Kalaallit Airports, hefur formlega gefið út opnunardag nýs alþjóðaflugvallar í Nuuk, höfuðstað Grænlands. Stóri dagurinn verður eftir átta mánuði, 28. nóvember 2024. Þetta er fimm árum eftir að flugvallargerðin hófst og meira en árs seinkun frá upphaflegri áætlun.
Bæjarstjóri Þórshafnar í Færeyjum, Heðin Mortensen, vill hefja undirbúning að gerð nýs alþjóðaflugvallar í Færeyjum. Ummælin féllu í viðtali við Kringvarpið í vikunni í framhaldi af vandræðum sem fraktflugfélagið FarCargo glímir við að nýta Vogaflugvöll til fiskflutninga með Eysturoy, Boeing 757-þotu félagsins.
Lögreglan í Murrieta, í suðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum, hefur verið skömmuð af danska leikfangafyrirtækinu Lego. Það er fyrir að nota myndir af legohöfðum til að dulbúa sakborninga í ljósmyndum sem embættið birtir á samfélagsmiðlum.
Daníel Már Pálsson atvinnupókerspilari vakti athygli á dögunum eftir að hann vann 26 milljónir íslenskra króna á stórmóti á Jeju Island í Suður-Kóreu á dögunum. Þetta er stærsti sigur Daníels á pókermóti hingað til. Hann segir baráttuna við gigtina hafa mótað sig mest í lífinu.
Við Vedbæk Strandvej, í einu auðugasta úthverfi norður af Kaupmannahöfn í Danmörku, er að finna stórbrotna villu við strandlengjuna frá árinu 1945. Húsið var endurnýjað árið 2022 á fágaðan og nýstárlegan máta.
Mollý Jökulsdóttir var tvítug þegar hún flutti ein út til Danmerkur, með tvær ferðatöskur og óljóst framtíðarplan. Í dag er hún í stjórnunarstöðu hjá einni stærstu verslunarkeðju í Evrópu og er á sama tíma á uppleið innan tónlistargeirans, en á dögunum undirritaði hún samning við Quattro Music sem er undirfyrirtæki Warner Brothers í Kaupmannahöfn.
Þrír menn hafa verið handteknir í Sorø á Sjálandi í Danmörku fyrir að hafa fellt tré sem hafnaði á bíl 55 ára manns með þeim afleiðingum að hann lést.
Danska ríkisstjórnin hyggst lengja herskyldu í landinu úr fjórum mánuðum í ellefu, koma á herskyldu fyrir konur og stórauka framlög til varnarmála.
Yfirvöld í Bandaríkjunum eru sögð ætla að tilkynna í dag nýjan fjögur hundruð milljóna dala pakka af hernaðaraðstoð til Úkraínu. Þetta yrði fyrsti pakkinn af þessu tagi frá Bandaríkjunum í nokkra mánuði en fjárveitingar til hernaðaraðstoðar situr fastur í bandaríska þinginu.
Sautján ára piltur sem var handtekinn í kjölfar morðs á þrettán ára stúlku í smábænum Hjallerup á Norður-Jótlandi í Danmörku í gærkvöldi, er grunaður um að hafa orðið henni að bana.
Þrettán ára gömul stúlka var myrt í smábænum Hjallerup á Norður-Jótlandi í Danmörku í gærkvöldi. Lögreglan hefur handtekið jafnöldru hennar og sautján ára gamlan dreng sem grunuð eru um morðið.
Aqqalu C. Jerimiassen, formaður grænlenska stjórnarandstöðuflokksins Atassut, segir tímabært að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Grænlands frá Danmörku.
Áform færeyska fiskeldisfyrirtækisins Bakkafrosts um reglubundið flug með ferskan lax frá Færeyjum eru í uppnámi þar sem Boeing 757-fraktflutningaþota dótturfélagsins FarCargo fær ekki að lenda á flugvellinum í Vogum. Ástæðan er sú að 41 metra vænghaf hennar telst of breitt fyrir þennan eina flugvöll Færeyinga sem skilgreindur er fyrir allt að 36 metra vænghaf flugvéla.
Björg Kristjánsdóttir segist ekki geta hugsað sér að sofa öðruvísi en í fjölskyldurúmi. Hún og eiginmaður hennar sofa í 270 sentímetra rúmi með fjögurra ára dóttur sinni og hafa gert allt frá því dóttir þeirra fæddist.
Danska utanríkisráðuneytið hefur varað danska ríkisborgara búsetta í Moskvu við að sækja fjöldasamkomur í borginni um helgina. Í varúðartilkynningu til þeirra kemur fram að aukin hætta sé á árásum á fjöldasamkomur í Moskvu. Ekki liggur þó fyrir hvað býr á baki þessum viðvörunum.
Í byrjun árs gaf danska demantadrottningin Katerina Pitzner sjálfri sér frí frá samfélagsmiðlum í 54 ára afmælisgjöf. Hún hefur nú ákveðið að logga sig aftur inn á Instagram eftir nauðsynlegt hlé með öðrum áherslum. Pitzner er ein vinsælasta samfélagsmiðlastjarna Danmerkur og keppast dönsku slúðurmiðlarnir við að flytja af henni fréttir.