
Birtist í Fréttablaðinu

Sjö ákærðir vegna innbrota í gagnaver
Sex eru ákærðir auk Sindra Þórs Stefánssonar fyrir aðild að þjófnaði á 600 tölvum úr þremur gagnaverum um síðustu áramót. Málið verður þingfest 11. september í Héraðsdómi Reykjaness.

Of mikið rask og kostnaður við að leita að asbesti í skólum
Tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um úttekt á asbesti í stofnunum borgarinnar, sérstaklega leik- og grunnskólum, var felld af fulltrúum meirihlutans á síðasta fundi borgarráðs.

Vildi láta reka fulltrúann
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (ÚUA) vísaði í liðinni viku kæru eiganda gistiheimilisins Blöndubóls frá nefndinni þar sem kærufrestur var liðinn.

Linnulaus innanflokksátök í Ástralíu
Ástralar skipt sex sinnum um forsætisráðherra á rúmum áratug. Samflokksmenn ráðherra gefa þeim ítrekað reisupassann. Hinn íhaldssami Morrison tók í gær við forsætisráðuneytinu af Ross Turnbull.

Vaka til heiðurs Jakobínu
Jakobínuvaka verður haldin í Iðnó í dag. Þar verður þess minnst í tali og tónum að skáldkonan Jakobína Sigurðardóttir (1918–1994) hefði orðið hundrað ára á þessu sumri.

Keyptu á KFC fyrir 3 milljarða
Alls nam vörusala keðjunnar tæpum 3,1 milljarði króna í fyrra og jókst hún um sex prósent á milli ára.

Sumar senur tóku á
Elín Sif Halldórsdóttir sýnir afbragðstakta í kvikmyndinni Lof mér að falla. Hún stefnir að frekari frama í tónlist en ekki á hvíta tjaldinu.

Stefnir á toppinn með hjálp fjölskyldunnar
Íslendingar eignuðust nýtt silfurlið um síðustu helgi þegar karlalandsliðið í handbolta endaði í 2. sæti á EM U-18 ára. Ísland átti besta leikmann mótsins; Hauk Þrastarson. Hann kemur úr mikilli handboltafjölskyldu á Selfossi.

Vit og strit
Fjölmiðlanefnd fer með heilmikið opinbert vald, sem hún beitir gegn þeim sem síst skyldi.

Íslensk klisja í afmælisgjöf
Dóttir mín á afmæli í dag. Hún er fimm ára. Þrátt fyrir að vera ung að árum er langt síðan hún uppgötvaði neysluhyggjuna.

Hreyfðir fletir Sigurðar Árna
Listamaðurinn sýnir ný verk í Listasafni Akureyrar. Málverk og laserskorin álverk. Þrjár aðrar sýningar fram undan.

Þekkir helling af fuglum
Sigurður Stefán Ólafsson er fróður um fugla, bíla og fótbolta. Í þessu viðtali komast þó bara fuglarnir að. Líka nýju heimkynnin hans og nýju vinirnir þar.


Vopnaðist 296 sinnum í fyrra
Af verkefnunum 447 voru sérsveitarmenn vopnaðir skotvopnum í 296 tilfellum.

Borgarstjórakosning 1920
Íslensk stjórnmálasaga hefur að geyma ótal dæmi um grimmúðlegar kosningabaráttur. Þótt í seinni tíð sé oft kvartað yfir illmælgi og dómhörku á samfélagsmiðlum í aðdraganda kosninga, má telja það barnaleik samanborið við margt af því sem tíðkaðist í stjórnmálaátökum tuttugustu aldar.

Segist talsmaður barna í ráðuneytinu
Jón Pétur Zimsen, fyrrverandi skólastjóri Réttarholtsskóla, er nýráðinn aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og menntamálaráðherra. Hann vill tryggja lágmarksþekkingu barna eftir tíu ára skólagöngu.

Fornleifadagur í Arnarfirði
Kynning verður á fornleifarannsóknum á Hrafnseyri og Auðkúlu í Arnarfirði í dag. Margrét Hrönn Hallmundsdóttir fornleifafræðingur, stjórnandi þeirra, sér um leiðsögnina.

Erfið vika Trumps
Tvö dómsmál valda Bandaríkjaforseta miklum vanda. Fyrrverandi kosningastjóri sakfelldur og fyrrverandi lögmaður bendlar hann við glæp. Gætu snúist gegn honum og aðstoðað við Rússarannsóknina.

Líklegt að Hvalur hf. hafi slátrað öðrum fágætum hvalblendingi
Bráðabirgðaniðurstaða er að þetta sé blendingur.

Vill hærri gjaldtöku að norskri fyrirmynd auk auðlindagjalds
Kolbeinn Óttarsson Proppé vill bæði innheimta leyfi að norskri fyrirmynd og auðlindagjald í sjókvíaeldi. Norska leiðin gæti skilað ríkissjóði tugum milljarða á hverju ári.

Nú eru dópistarnir úti um allt og bara á djamminu
Baldvin Z kvikmyndaleikstjóri og ung kona í bata frá fíkniefnaneyslu lýsa ferlinu við gerð kvikmyndarinnar Lof mér að falla. Raunverulegar sögur ungra stelpna í neyslu eru uppistaða myndarinnar.

Líður eins og barni á jólunum
Þjálfarateymi íslenska karlalandsliðsins kynnti í gær leikmannahópinn fyrir fyrsta leikinn undir stjórn Eriks Hamrén. Sá sænski gat ekki beðið eftir því að koma til móts við liðið og hefja vegferðina saman.

Stefnir ríkinu vegna Vafningsmálsins
Fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis krefst skaða- og miskabóta frá ríkinu vegna málsmeðferðar hjá sérstökum saksóknara. Lögmaður hans segir málið meðal annars snúast um hve langt sé hægt að ganga gegn einstaklingum


Segir þurfa að taka markvisst á misskiptingunni í samfélaginu
Formaður Eflingar stéttarfélags segir hópi fólks markvisst haldið niðri efnahagslega og að taka þurfi markvisst á misskiptingunni í samfélaginu.

Hamrén tilkynnir fyrsta landsliðshópinn sinn
Svíinn tilkynnir hópinn klukkan 13.15 í höfuðstöðvum KSÍ.

Sjúkur í súkkulaði
Arnar Grant, einn þekktasti einkaþjálfari landsins, vakti ómælda athygli í þáttunum Allir geta dansað sem sýndir voru á Stöð 2 í vetur. Hann þótti einna sístur til afreka en sýndi ómælda þrautseigju sem landaði honum sæti í úrslitaþættinum. Þessi einbeiting og seigla er einkennandi fyrir allt sem Arnar tekur sér fyrir hendur.

Undanþágan sem Höllin er á fellur úr gildi á endanum
Færeyingar fá ekki að spila heimaleiki sína í undankeppni EM 2020 í handbolta í íþróttahöllinni á Hálsi því hún stenst ekki kröfur EHF.

Nágrannar kæra húsaþyrpingu og hótelbyggingu í Heysholti
Ósáttir landeigendur í nágrenni jarðarinnar Heysholts í Rangárþingi ytra hafa kært breytt skipulag sem leyfir byggingu 90 herbergja hótels og 40 frístundahúsa á jörðinni.

Umhverfisógn eyris?
Rafeyrir verður til með því að láta öflugar tölvur leysa flóknar stærðfræðiþrautir á sem skemmstum tíma.