
Hamstrar barnið þitt blýanta?
Nýverið fjallaði háskólaráðherra um þá ógn sem hugmyndafræðinni um eignarréttinn og ábyrgð stafaði af því að grunnskólabörn fái námsgögn án endurgjalds í skólanum.
Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.
Nýverið fjallaði háskólaráðherra um þá ógn sem hugmyndafræðinni um eignarréttinn og ábyrgð stafaði af því að grunnskólabörn fái námsgögn án endurgjalds í skólanum.
Brátt fara skólar af stað eftir sumarfrí og þá er mikilvægt að ökumenn fari að öllu með gát og virði hraðatakmarkanir, sér í lagi nálægt skólum og í íbúahverfum. Ávallt er þörf á að halda vakandi athygli í umferðinni en ekki hvað síst í blandaðri umferð þar sem ungir og óvarðir vegfarendur eru líka á ferðinni, ýmist gangandi eða hjólandi á fjölbreyttum farartækjum.
Eigendur Fjölskyldulands gætu þurft að loka náist ekki að snúa erfiðum rekstri við. Eigandinn segir þjónustuna afar mikilvæga, ekki síst fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að ná að aðlagast íslensku samfélagi.
Menntun er ekki einungis samfélagsmál heldur einnig forsenda þróunar og nýsköpunar hverrar þjóðar og þar skipta öll skólastig máli. Menntamál skipa stóran sess þegar kemur að hagsæld og velferð þjóðarinnar.
Að vinna í grunnskóla er skemmtilegasta starf sem ég get hugsað mér en á sama tíma er það mjög vandasamt. Starfsfólk í skólum hefur mikil áhrif á líf barna og fjölskyldna þeirra og við munum öll eftir þeim kennurum sem hjálpuðu okkur að vaxa og við munum líka eftir þeim sem gerðu það ekki.
Viðskiptaráð hefur sent mennta- og barnamálaráðuneytinu upplýsingabeiðni um niðurstöður námsmats í grunnskólum. Í beiðninni er óskað eftir PISA-einkunnum, niðurstöðum samræmdra könnunarprófa og skólaeinkunnum sundurgreindum eftir grunnskólum.
Lára Guðrún Sigurðardóttir læknir segir sárvanta meira fjármagn til að koma í veg fyrir neyslu nikótíns. Neysla á nikótínpúðum og rafsígarettum hafi aukist síðustu ár.
Við sem höfum valið þá leið að sinna menntun einstaklinga allt frá leikskóla og upp í háskóla köllumst kennarar. Við gegnum því lykilhlutverki að mennta og stuðla að alhliða þroska nemenda. Við veitum leiðsögn, deilum okkar þekkingu og styðjum einstaklinga til aukins þroska bæði sem einstaklingar og virkir samfélagsþegnar.
Eyrún Magnúsdóttir fjölmiðlakona og íbúi í Bústaðahverfi segir níkótínsölumenn starfa nær óáreitta í skjóli sofandi stjórnvalda hér á landi. Hún segir Bústaðaveg brátt verða Níkótínstræti vegna opnunar nýrrar verslunar Svens í Grímsbæ. Hún spyr hvort leigutekjur Reita, sem séu að mestu í eigu lífeyrissjóða, séu mikilvægari en áform níkótínsala um að ná fótfestu í skólahverfi.
Freyja Birgisdóttir, sviðsstjóri matssviðs hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, segir matsferilinn töluvert víðara fyrirbæri en samræmd próf. Hún skilji gagnrýni á að það taki tíma að búa hann til en að baki hvers matsferils sé mikil vinna.
Ráðherrar hafa undanfarið tekist á um nytsemi gjaldfrjálsra námsgagna og máltíða í grunnskólum landsins. Háskólaráðherra segir það sóun á almannafé en barnamálaráðherra vill ganga enn lengra. Fyrrverandi borgarstjóri segir að allir eigi að standa saman um fjárfestingar í málefnum barna og jafnrétti til náms.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segir að stefnt sé að því að gera námsgögn gjaldfrjáls í framhaldsskólum fyrir 18 ára og yngri. Hann segist mjög fylgjandi gjaldfrjálsum námsgögnum og skólamáltíðum.
„Einkaeignin kennir virðingu og kemur í veg fyrir sóun. Eða hvað?“ spyr Ragnar Þór Pétursson kennari. Hann segir að einkaeign upp á tugi- eða hundruði milljóna á ári verði eftir í skólum ár hvert.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir engan stjórnmálamann í samtímasögu Íslands hafa komið fjölskyldufólki í jafnmikil vandræði og Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, segir að ákvörðun sem kom til framkvæmda 2018 um ókeypis námsgögn í skólum hafi verið í alla staði jákvætt mál og þýtt aukinn jöfnuð og jafnræði meðal barna. Það komi á óvart að einhver vilji tala þetta niður, „jafnvel frá Sjálftæðisflokknum.“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, segir að frí námsgögn og skólamáltíðir sé eitthvað sem ætti að mega ræða án þess að fara í upphrópanir. Það sé ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segir að framundan séu einhverjar umfangsmestu breytingar á íslensku menntakerfi sem hafa orðið. Nýtt og betra samræmt námsmat, Matsferill, muni leysa gömlu samræmdu prófin af hólmi.
Borgarstjóri segist finna fyrir miklum skilningi foreldra barna á leikskólanum Brákarborg. Hann gefur lítið fyrir orð borgarfulltrúa um gettóumhverfi í Ármúla þar sem börnin fá inni til bráðabirgða. Borgin hafi til skoðunar að leita réttar síns.
Það er ekki boðlegt að börn séu í leikskóla í „gettó-umhverfi“ að sögn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Verkefnisstjóri segir aftur á móti að gengið hafi vonum framar að umbreyta skrifstofuhúsnæði í leikskóla áður en skólastarf hefst í næstu viku.
Árið 1979 þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn var ekki í boði að fá leikskólapláss þar sem ég var gift kona, nema ef eiginmaðurinn færi í nám og ég yrði fyrirvinna heimilisins.
Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að um góðlátlegt grín hafi verið að ræða, þegar hann sagðist vilja „alvöru úttekt“ á „alvöru úttektum borgarinnar“ í gær. Friðjón var þar að vísa í viðtal við Einar, sem kvaðst hafa óskað eftir alvöru úttekt á Brákarborgarmálinu.
Björn Bjarnason segir óvissu ríkja í málaflokki grunnskólanna undir stjórn Ásmundar Einars Daðasonar. Á einföldu máli megi segja að hann sé að „redda grunnskólastarfi fyrir horn.“ Það sé sorglegt og alvarlegt að málum sé þannig komið í málaflokknum.
Greiðslubyrði námslána hefur aukist og bera þau nú allt að níu prósent vexti. Alþingi samþykkti nýverið breytingar á námslánakerfinu. Stúdentar segja þær skref í rétta átt en stjórnvöld séu langt frá því að uppfylla markmið um félagslegt jöfnunarkerfi. Greiða þurfi meira af lánum í dag en fyrir upptöku styrkjakerfis þrátt fyrir niðurfellingu höfuðstóls.
Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, gagnrýnir orð Einars Þorsteinassonar borgarstjóra um að ráðist verði í „alvöru úttekt“ á máli leikskólans Brákarborgar.
Einar Þorsteinsson borgarstjóri segist hafa óskað eftir því að óháð úttekt verði gerð á málefnum leikskólans Brákarborgar og komist að því hvar ábyrgðin liggi.
Tveir ungir piltar reyndust á bak við umfangsmikil skemmdarverk sem unnin voru á Húnaskóla á Blönduósi í gærnótt. Vilhjálmur Stefánsson, lögreglufulltrúi á Norðurlandi vestra segir að piltarnir séu ljúfir, og þeir hafi ekki endilega ætlað sér að vinna skemmdarverk. Þeir séu mjög ungir.
Mikilvægt er að sjávarútvegur, ein helsta atvinnugrein þjóðarinnar, eigi sitt menntasetur. Sjómannaskólinn er eign sjómannastéttarinnar.
Umfangsmikil eignaspjöll voru unnin á Húnaskóla á Blönduósi í nótt. Allar rúður voru brotnar í eldhúsi og smíðastofu grunnskólans og þar framin töluverð skemmdarverk. Lögregla rannsakar nú málið.
Um fjórðungur landsmanna á aldrinum 25 til 64 ára sótti símenntun í fyrra, eða rúmlega 51 þúsund manns.
Skólastjóri Rimaskóla segist í áfalli eftir að skólinn var lagður í rúst í nótt. Hún hvetur foreldra til að velta fyrir sér hvort barn þeirra sé á góðum stað. Sumarið sé viðkvæmur tími og mikil lausung á börnum.