Fjórðungur kennara sér ekki framtíð í kennslu Stór hluti kennara sér ekki fyrir sér að starfa áfram innan skólasamfélagsins eftir fimm ár. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar sem er til umræðu á ráðstefnu Kennarasambandsins í dag. Innlent 9. apríl 2024 13:00
Tækniskólinn kominn í úrslit Framhaldsskólaleikanna Fyrstu undanúrslitin í FRÍS, Framhaldsskólaleikum Rafíþróttasambands Íslands, hófust síðastliðinn miðvikudag kl.19:30 þar sem Tækniskólinn atti kappi við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Keppt var í leikjunum Rocket League, Counter-Strike og Valorant. Rafíþróttir 9. apríl 2024 12:00
Leikskólinn sem foreldrar elska og starfsfólkið vill ekki hætta Leikskólinn Laufásborg þykir einn vinsælasti leikskólinn á landinu. Sindri Sindrason leit við í skólanum á dögunum og reyndi að komast að því af hverju hann væri svona eftirsóttur hjá foreldrum og einnig leikskólakennurum. Lífið 9. apríl 2024 11:31
Raddir skólafólks í fyrirrúmi Umræða um skólamál er mikilvæg. Bæði í íslensku samhengi sem og því alþjóðlega enda menntun undirstöðuatriði farsældar í samfélagi. Hvort sem er á vettvangi fjölmiðla, stjórnmálanna, hagsmunasamtaka eða bara í fermingarveislum og öðrum viðburðum á meðal almennings. Oft og tíðum sprettur umræðan upp sem viðbrögð við einstökum þáttum skólastarfs, eða bara jafnvel einstöku atviki sem upp kann að koma á ákveðnu skólastigi eða í einstökum skóla. Skoðun 9. apríl 2024 09:00
Bein útsending: Skóli nútíðar — vegvísir til framtíðar Áherslur og afstaða kennara, stjórnenda og skólafólks til kennslu og skólastarfs verður í fyrirrúmi á ráðstefnu Kennarasambandsins sem fer fram í Hörpu í dag. Innlent 9. apríl 2024 09:00
Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Emelíana Lillý Guðbrandsdóttir sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna 2024 í kvöld fyrir hönd Framhaldsskóla Norðurlands vestra. Emelíana söng nýja íslenska útgáfu af laginu Never Enough úr kvikmyndinni The Greatest Showman. Tónlist 7. apríl 2024 00:09
Fara beint í frístund eftir leikskólaútskrift í júní Foreldrum fimm og sex ára barna í sautján leikskólum í Reykjavíkur var tilkynnt í gær að þau fái uppsögn á sínu leikskólaplássi fyrir 30. apríl og að uppsögn taki gildi 10. júní. Börnum þeirra verður í staðinn boðið pláss í frístund í þeim grunnskólum sem þau eiga að hefja grunnskólagöngu sína í næsta haust. Innlent 6. apríl 2024 07:01
Vilja létta á leikskólum með því að bjóða börnum í skóla fimm ára Sjálfstæðisflokkurinn vill að börnum sé boðið að hefja skólagöngu sína fimm ára í Reykjavík í stað sex ára. Flokkurinn leggur fram á næsta borgarstjórnarfundi tillögu um tilraunaverkefni. Hildur Björnsdóttir, oddviti flokksins, vonast til þess að fimm skólar í það minnsta geti tekið þátt. Innlent 5. apríl 2024 09:31
Hlíft við tækifærum Áður en einhver misskilur og tekur úr samhengi: Ég held ekki að samræmd próf sem meta nemendur á landsvísu innbyrðis séu allra meina bót. Hins vegar eru kostir samræmdra prófa fleiri en gallar og rökin til að falla alfarið frá notkun þeirra eru ekki nægilega sterk. Skoðun 4. apríl 2024 15:30
Vill stjórnvöld í lið með sér frá fyrsta degi Miðstöð menntunar og skólaþjónustu tekur formlega til starfa í dag en hjá stofnuninni starfa um fjörutíu manns. Forstjóri miðstöðvarinnar segir að nýrri stofnun sé ætlað það lykilhlutverk að vera bakland skólastarfs á Íslandi og að miðlægt í öllu starfinu sé þjónustumiðuð nálgun. Innlent 2. apríl 2024 13:02
40 ára húsmóðir finnur sjálfa sig Helgina fyrir páska lá leið mín til Hólmavíkur á Húmorsþing, en það er partur af námskeiði sem ég sit þessa önnina, að fara á þetta þing. Í þessu námskeiði, Húmor og hæðni er farið ofan í saumana á húmor í okkar daglega lífi, s.s. kvikmyndum, bókmenntum og fólks á milli. Skoðun 2. apríl 2024 11:31
Um 350 nemendur í Tónlistarskóla Akraness Mikill áhugi er á tónlistarnámi á Akranesi því þar eru um 350 nemendur í námi á öllum aldri. Elsti nemandi skólans er tæplega áttræður. Innlent 31. mars 2024 14:30
Hættur Internetsins Ástæðan fyrir þessum vangaveltur er vegna þess að ég las sögu íslenskrar stelpu á unglingsaldri sem var fórnarlamb nethakkara sem tældu stúlkuna í gegnum samskiptaforrit eins og Discord og Telegram, og leikjasíður eins og Roblox. Skoðun 30. mars 2024 13:31
Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Miklar framkvæmdir standa nú yfir á Hellu því þar er verið að byggja við grunnskóla staðarins og þá er ætlunin að byggja líka nýjan leikskóla. Íbúum á staðnum og í sveitarfélaginu öllu, Rangárþingi ytra er líka og fjölga og fjölga og nálgast nú óðfluga að verða tvö þúsund. Innlent 28. mars 2024 13:30
Engin námslán fyrir fátækt fólk Eitt af mikilvægustu verkefnum ríkisins er að stuðla að aukinni menntun og bættum tækifærum allra til að þroskast og virkja krafta sína í samfélaginu. Við misjafnar undirtektir hefur þessu hlutverki meðal annars verið sinnt af Menntasjóði námsmanna, áður LÍN, sem hefur undanfarna áratugi gert námsmönnum kleift að stunda háskólanám þrátt fyrir að vera utan vinnumarkaðar. Skoðun 27. mars 2024 09:00
Fríar máltíðir grunnskólabarna - merkur samfélagslegur áfangi Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að í nýjum kjarapakka er kveðið á um gjaldfrjálsar máltíðir fyrir nemendur í grunnskólum. Sitt sýnist hverjum og rétt að grunnskólinn er á forræði sveitarfélaga svo hvers vegna er ríkið á þáttast um og leggja áherslu á að nemendur á grunnskólaaldri standi til boða hádegismatur þeim að kostnaðarlausu? Skoðun 26. mars 2024 14:00
Börnin nýbúin að taka brunaæfingu Engin grunnskólabörn voru í Húsaskóla í Grafarvogi í dag, þar sem eldur kom upp síðdegis í dag. Um 40 leikskólabörn á leikskólanum Fífuborg og 20 börn á frístundaheimilinu Kastala voru í húsinu. Aðstoðarskólastjóri segir börnin hafa vitað upp á hár hvernig bregðast ætti við, vegna brunaæfingar sem haldin var á dögunum. Innlent 25. mars 2024 17:50
Búið að slökkva eldinn í Húsaskóla Búið er að slökkva eld sem kviknaði í þaki Húsaskóla í Grafarvogi í dag. Skólinn hefur verið tæmdur og öllum börnum komið í skjól í nálægu íþróttahúsi. Innlent 25. mars 2024 15:09
Ekki brennimerkja börn! Það er mikilvægt að öll börn njóti þess að vera í skóla og það sé ekki kvíðvænlegt að mæta öðrum börnum þar. Það er lífsnauðsynlegt fyrir börn að þau öll njóti jafnræðis og góðs atlætis og að skólinn verði ekki jarðsprengjusvæði mismununar og eineltis. Skoðun 23. mars 2024 11:00
Af bókasafnsfræðingum, iðjuþjálfum og öðrum ríkisbubbum Geislafræðingar, þroskaþjálfar, lögfræðingar, kennarar, hjúkrunarfræðingar, fornleifafræðingar, félagsráðgjafar og verkfræðingar eru allt dæmi um ólík starfsheiti háskólamenntaðra og er þá fátt eitt upp talið af þeim sérfræðingum sem samfélagið þarf á að halda. Háskólamenntað fólk er ekki einsleitur hópur á vinnumarkaði og vinnuaðstæður þeirra og launakjör eru ekki alltaf eftirsóknarverð. Stórir hópar búa við ömurleg starfskjör. Skoðun 22. mars 2024 08:01
Við þurfum (sérnáms)lækna! Læknum í sérnámi á Íslandi hefur fjölgað mikið undanfarin ár. Þeir teljast nú í hundruðum og sinna lækningum innan sem utan sjúkrahúsa vítt og breitt um landið. Sérnámslæknar eru því orðnir stór hluti starfandi lækna á landinu. Skoðun 22. mars 2024 07:30
Yngstu börnin innrituð í Garðabæ og Mosfellsbæ Á höfuðborgarsvæðinu er nú unnið að því að innrita börn í leikskóla fyrir bæði næsta haust og sum þetta vorið. Um er að ræða árganga barna sem fæddust árin 2022 og 2023 en misjafnt er eftir sveitarfélögum hversu langt þau ná inn í árið 2023. Innlent 22. mars 2024 06:46
Menntaskólinn við Hamrahlíð vann Gettu betur Lið Menntaskólans við Hamrahlíð tryggði sér Hljóðnemann eftirsótta með sannfærandi sigri á lið Menntaskólans í Reykjavík í úrslitum Gettu betur í kvöld. Lífið 21. mars 2024 21:50
Frumvarpið vonbrigði og hefði viljað metnaðarfyllri aðgerðir Forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta segir frumvarp háskólamálaráðherra um Menntasjóð námsmanna vera vonbrigði. Það þrengi að möguleikum fólks sem flokkað er sem ótryggir lántakar til að stunda nám og þá sé of skammt gengið í breytingum á styrkjafyrirkomulagi. Innlent 21. mars 2024 20:17
Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina”, Bretinn Nick Chambers, var í hópi fólks sem heimsótti 5. bekk Landakotsskóla í Reykjavík í gær þar sem spjallað var um starfstækifæri framtíðarinnar, fjölbreytileika og framtíðardrauma nemenda. Auk Chambers heimsótti breski sendiherrann Bryony Mathew og Sævar Helgi Bragason nemendurna. Viðskipti innlent 21. mars 2024 07:00
Skólaliði grunaður um að mynda börn í búningsklefa Mál starfsmanns Laugarnesskóla í Reykjavík, sem handtekinn var um miðjan október síðastliðinn, er komið á borð ákærusviðs. Hann starfaði sem skólaliði við skólann og er grunaður um kynferðisbrot með því að taka myndir í búningsklefa ungra drengja. Innlent 20. mars 2024 22:06
Ráðist á nemanda Valhúsaskóla í Hagaskóla Lögregla hefur líkamsárás á sameiginlegu skólaballi Valhúsaskóla og Hagaskóla, sem haldið var í síðarnefnda skólanum í gærkvöldi, til rannsóknar. Óttast var að nemandi við Valhúsaskóla hefði handleggsbrotnað eftir árásina en við nánari skoðun reyndist það ekki rétt. Innlent 20. mars 2024 17:30
HÍ mátti reka nemanda í geðrofi sem hótaði samnemanda lífláti Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema úrskurðaði í dag að Háskóla Íslands hafi verið heimilt að víkja nemanda úr skólanum. Nemandinn, sem stundaði nám við Lyfjafræðideild háskólans, krafðist þess að ákvörðun forseta Heilbrigðisvísindasviðs um að víkja honum úr skólanum yrði felld úr gildi, og yrði breytt þannig að honum yrði ekki heimiluð skólavist. Áfrýjunarnefndin féllst ekki á það. Innlent 19. mars 2024 13:39
Meðmælabréf kennaranna ekki nóg fyrir skólastjórann Kennarar og nemendur í Kóraskóla í Kópavogi eru afar ósáttir við að fá ekki skýr svör frá Kópavogsbæ hvers vegna starfandi skólastjóri hafi ekki fengið ráðningu í auglýst starf skólastjóra. Þeim finnst ekki hafa verið hlustað á sig. Innlent 18. mars 2024 15:20
Hvað á ég að gera? Það er ósköp venjulegur miðvikudags eftirmiðdagur. Ég fer í síðdegisgöngutúrinn með níu mánaða gömlum syni mínum eins og við gerum á hverjum degi. Ég er í fæðingarorlofi. Sex mánuði fæ ég sem ég hef teygt í tíu, með sex vikum sem ég stal frá eiginmanni mínum. Skoðun 17. mars 2024 13:00
Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent