Skulda annarri konu fleiri milljónir vegna launamismunar Árni Sæberg skrifar 7. nóvember 2025 14:02 Jón Ingvar Pálsson var forstjóri stofnunarinnar þegar konurnar voru snuðaðar um laun. Vísir IHS, sem gekk þar til nýlega undir heitinu Innheimtustofnun sveitarfélaga, hefur verið dæmd til að greiða konu rúmlega 16 milljónir króna í skaða- og miskabætur vegna kynbundinnar mismununar í formi lægri laun en karlkyns samstarfsmenn hennar nutu. Yfir tæplega þriggja ára tímabil á árunum 2019 til 2022 fékk hún fimmtán milljónum króna minna greitt en karlmaður í sömu stöðu lögfræðings hjá stofnuninni.Svo virðist sem kynbundinn launamunur hafi verið lenskan hjá stofnuninni enda var hún dæmd til að greiða annarri konu 19 milljónir af sömu sökum árið 2023.
Þetta segir í dómi Landsréttar, sem kveðinn var upp í gær. Í dóminum hefur nafn stofnunarinnar verið afmáð en á dagskrá Landsréttar í gær hafði það ekki verið gert. Allt að 813 þúsund krónur á mánuði Í dómi héraðsdóms, sem kveðinn var upp í júlí í fyrra og staðfestur af Landsrétti, var rakið að óumdeilt væri að verulegur munur hefði verið á launum og öðrum starfskjörum konunnar og tiltekins karlkyns lögfræðings hjá IHS. Héraðsdómur féllst á með konunni að í ákvörðun stofnunarinnar um laun hennar hefði falist mismunun, sem hefði farið í bága við þágildandi lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og síðar núgildandi sömu lög. Í dómnum var því jafnframt slegið föstu að á þeirri saknæmu og ólögmætu háttsemi bæri IHS bótaábyrgð, enda hefði konan orðið fyrir fjártjóni af völdum háttseminnar, sem talið var nema þeim mun sem verið hafði á launum hennar og tiltekins karlskyns lögfræðings hjá stofnuninni. Samkvæmt töflu í dómi héraðsdóms nam launamunurinn frá 363.936 krónum á mánuði upp í 812.974 krónur. Samtals nam munurinn 15.214.731 krónu á tveimur árum og 10 mánuðum. Stofnunin var dæmd til þess að greiða konunni téðan mismun ásamt dráttarvöxtum og eina milljón króna í miskabætur. Loks ber stofnuninni að greiða konunni alls 3,15 milljónir króna í málskostnað. Nítján milljónir árið 2023 Málið er ekki það fyrsta sinnar tegundar hjá IHS en árið 2023 var stofnunin dæmd til að greiða konu 19 milljónir króna vegna kynbundins launamunar milli launa hennar og karla í stöðu lögmanna hjá stofnuninni. Í þeim dómi kom fram að svokallaðir „skúffusamningar“ hefðu verið gerðir við karlkyns starfsmenn stofnunarinnar um hærri laun þeim til handa. Mörg hneykslismál Hneykslismál hafa plagað Innheimtustofnunina undanfarin ár. En í apríl 2022 voru Jón Ingvar Pálsson forstjóri og Bragi Axel Rúnarsson forstöðumaður reknir úr starfi. Ástæðan sem gefin var upp voru alvarleg broti í starfi og vanefndir á samningi vegna trúnaðarbrots. Þeir höfðu verið sendir í leyfi í desember árið 2021 í kjölfar úttektar Ríkisendurskoðunar á verkefnum stofnunarinnar. Í umfjöllun DV um stofnunina árið 2019 kom fram að fyrrverandi starfsmenn Innheimtustofnunar hefðu vitnað til um andlegt ofbeldi, einelti, ógnarstjórnun, yfirgang gegn konum, margföld trúnaðarbrot og furðuleg afskipti af einkalífi starfsfólks.
Jafnréttismál Rannsókn á Innheimtustofnun sveitarfélaga Kjaramál Vinnumarkaður Dómsmál Mest lesið Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira