
Stjórnendur farið langt yfir strikið
Formaður Neytendasamtakanna telur samráð Samskipa og Eimskip hafa skilað sér til neytenda með hærra vöruverði. Hann segir það sorglegt að stjórnendur fyrirtækjanna tveggja hafi hagað sér með þessum hætti.
Neytendafréttir af íslenskum markaði.
Formaður Neytendasamtakanna telur samráð Samskipa og Eimskip hafa skilað sér til neytenda með hærra vöruverði. Hann segir það sorglegt að stjórnendur fyrirtækjanna tveggja hafi hagað sér með þessum hætti.
Álfasaga ehf. hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Carbonara kjúklingapasta. Ástæða innköllunar er röng innihaldslýsing og ómerktir ofnæmisvaldar, bæði egg og sellerí.
Bankastjóri Arion banka segir að bankinn fagni skýrslu menningar- og viðskiptaráðherra. Arðsemi stóru bankanna þriggja sé ekki of mikil. Arðsemi eigin fjár Arion banka var 14,5 prósent á fyrri helmingi ársins.
Bankastjóri Landsbankans segir nýútkomna skýrslu menningar- og viðskiptaráðherra um viðskiptabankana koma ágætlega út fyrir íslenskt bankakerfi.
Ýmis atriði gefa vísbendingar um möguleika bankanna til aukinnar arðsemi eða lækkunar álagningar. Þetta segir í niðurstöðu starfshóps menningar- og viðskiptaráðherra í skýrslu um greiningu á gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna.
Menningar- og viðskiptaráðherra hefur til kynningar á skýrslu starfshóps ráðuneytisins um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna. Kynningin hefst klukkan 16:30.
Búist er við að verð á landbúnaðarvörum hækki enn meira í haust. Meginástæðan er léleg afkoma í landbúnaði en stýrivaxtahækkun bætir gráu ofan á svart.
Sölustöðvun heilbrigðiseftirlita á morgunkorninu Cocoa Puffs og Lucky Charms hefur verið aflétt. Úrskurðanefnd matvælaráðuneytisins úrskurðaði þetta þann 18. ágúst síðastliðinn.
Talsvert hefur borið á því að fólk á sextugs og sjötugsaldri leiti til Neytendasamtakanna vegna smálánaskulda sem það hefur neyðst til að taka. Formaður telur að ferðaþjónustan ætti að axla ábyrgð á verðbólgunni en ekki neytendur.
Bílabúð Benna þarf að greiða Ólöfu Finnsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Dómstólasýslunnar, tæplega 700 þúsund krónur vegna gjalda sem Ólöf þurfti að standa skil á þrátt fyrir að kaupum hennar á Porsche hjá bílabúðinni hefði verði rift. Þá þarf Bílabúð Benna að greiða 700 þúsund krónur í málskostnað.
Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir áætlanir stjórnvalda í húsnæðismálum fjölga leiguíbúðum þvert á vilja þjóðarinnar. Innviðaráðherra þurfi að taka forystu í málaflokknum gagnvart sveitarfélögunum.
Neytendastofa hefur sektað verslanir 66°Norður, Hagkaups, Herralagersins og Kulda í Skeifunni vegna verðmerkinga, eða skorti þar á.
Ný rannsókn bendir til þess að framleiðendur fæðubótarefna sem innihalda fiskiolíu séu ófeimnir við að markaðsetja hana sem góða fyrir hjarta- og æðakerfið, jafnvel þótt rannsóknir hafi sýnt fram á að áhrif þeirra séu lítil eða engin.
Samtök iðnaðarins telja stjórnvöld leggja of litla áherslu á uppbyggingu séreignarhúsnæðis. Nú sé skortur á íbúðum og mikil uppbyggingarþörf en samtökin óttast að íbúðauppbygging stefni í öfuga átt. Þetta kemur fram í nýrri greiningu samtakanna.
Kaupsamningum á öðrum ársfjórðungi fækkaði um 31,1 prósent milli ára en þeir voru 1.793 á þessu ári, samanborið við 2.603 á síðasta ári. Kaupsamningum fjölgaði milli mánaða í júní, voru 698 samanborið við 643 í maí.
Tuttugu og sex milljónir taska eða annars konar farangur týndist hjá flugfélögunum árið 2022. Þetta jafngildir átta töskum af hverjum þúsund innrituðum töskum.
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, segist ekki eiga von á að fleiri færi sig um set eftir að þrenn félagasamtök hafa tekið ákvörðun um að slíta viðskiptum við Íslandsbanka. Bankinn vinni nú að því að öðlast traust viðskiptavina á ný.
Þrenn stór félagasamtök hafa hætt viðskiptum sínum við Íslandsbanka í sumar með samtals milljarða viðskipti við bankann. Fyrsti varaforseti ASÍ segir að ákvörðun samtakana um að hætta viðskiptum verði ekki haggað.
Neytendasamtökin hafa bæst í hóp þeirra aðila sem hafa hætt viðskiptum við Íslandsbanka í kjölfar brota sem framin voru þegar hlutur ríkisins í bankanum var seldur í mars síðastliðnum.
Full áskrift að Morgunblaðinu kostar nú 9.490 krónur á mánuði en kostaði 8.880 krónur í júlí. Þetta er hækkun um 610 krónur, eða tæplega 7 prósent.
Samkvæmt nýjum reglum viðskiptabankanna þriggja þurfa viðskiptavinir nú að vera búnir að svara áreiðanleikakönnun og vera í viðskiptum við bankanna áður en þeir skipta gjaldeyri hjá bönkunum. Viðskiptavinir sem hafa fært sig annað, til að mynda til sparisjóðsins Indó hafa lent í vandræðum vegna þessa. Framkvæmdastjóri Indó segir vert að athugað sé hvort nýjar reglur samrýmist sátt bankanna við Samkeppniseftirlitið frá 2017.
Domino‘s selur í dag átta tegundir af pizzum á sama verði og pizzurnar kostuðu fyrir þrjátíu árum. Ástæðan er sú að staðurinn opnaði hér á landi þann 16. ágúst 1993.
Almennt fargjald verður rukkað í strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu á Menningarnótt, sem haldin verður í miðbæ Reykjavíkur á laugardaginn. Undanfarin ár hefur verið frítt í Strætó.
Heilbrigðisráðuneyti hefur fellt úr gildi ákvörðun Lyfjastofnunar sem gerði umboðsmanni lyfsins Septabene að fjarlægja mynd af roða í hálsi og ljósan borða á umbúðum lyfsins. Taldi ráðuneytið ákvörðunina ekki samræmast jafnræðisreglu þar sem fjöldi annarra lyfja væru áletruð með sambærilegum myndum.
Vegan búðinni í Skeifunni í Reykjavík verður lokað á næstunni. Eigandi matvöruverslunarinnar segir ástæðuna vera hátt leiguverð og krefjandi aðstæður til innflutnings. Hann trúi þó á kraftaverk.
Stjórnendur Samkaupa, sem rekur Kjörbúðina og þrjár aðrar verslanakeðjur á Íslandi, segja útsöluverð á kattamat ekki hafa hækkað þrátt fyrir verðhækkanir frá birgjum. Þá séu nauðsynjavörur á verði sem er samkeppnishæft við aðrar verslanir.
Nýtt uppskriftasmáforrit matvöruverslanakeðju á Nýja-Sjálandi sem byggir á gervigreind hefur stungið upp á heldur nýstárlegum uppskriftum við neytendur, til að mynda drykk sem er í raun klórgas og eitraðar samlokur.
Elín Dögg Arnarsdóttir, íbúi í nágrenni við Hellu, lýsir verðlagi í Kjörbúðinni á Hellu sem sturlun en 637 krónum munar á verði á kattanammi þar og í Fjarðarkaupum. Hún segir íbúa Hellu gagngert sneiða framhjá því að versla í búðinni meðan vonir eru bundnar við opnun annarrar ódýrari matvöruverslunar í bæjarfélaginu.
Örtröð myndaðist í verslun Krónunnar á Granda í dag þar sem rýmingarsala fór fram. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sagðist verslunarstjóri eiga von á því að allar hillur verði tómar í kvöld.
Eigandi veitingahússins Legendary Nordic Restaurant á Hellu hefur ákveðið að hætta að rukka fimmtán prósent þjónustugjald. Hann hafði sagt gjaldið ætlað að mæta þeim mikla kostnaði sem fylgi veitingahúsarekstri á Íslandi.