
Verkfallið komi á „gríðarlega vondum tíma“
Flugfélögin Play og Icelandair skoða nú viðbrögð sín við fyrirhuguðu verkfalli flugumferðarstjóra á þriðjudags- og fimmtudagsmorgun í næstu viku.
Allt það helsta sem viðkemur flugi.
Flugfélögin Play og Icelandair skoða nú viðbrögð sín við fyrirhuguðu verkfalli flugumferðarstjóra á þriðjudags- og fimmtudagsmorgun í næstu viku.
Flugumferðarstjórar munu að óbreyttu leggja niður störf á þriðjudags- og fimmtudagsmorgun í næstu viku. Samningar milli þeirra og Isavia hafa verið lausir í rúma tvo mánuði og formaður Félags flugumferðarstjóra segir enn töluvert bera í milli.
Pylsuvagnar Bæjarins beztu pylsna eru orðnir þrír á Keflavíkurflugvelli eftir opnun nýs staðar í síðustu viku.
Framkvæmdastjóri Airport Direct segir rútubílstjóra fyrirtækisins, sem keyrði á erlendan ferðamann fyrir utan Leifsstöð í gærmorgun, í áfalli eftir atvikið. Erfiðar aðstæður hafi verið þegar slysið varð í ljósaskiptum.
Rúta ók á ferðamann fyrir utan Leifsstöð í gærmorgun. Að sögn lögreglustjórans á Suðurnesjum er líðan ferðamannsins eftir atvikum góð.
Ferðaþjónusta hérlendis vill hóflegan vöxt eins og tíðkast hefur alþjóðlega, þar sem hann hefur verið á bilinu tvo til þrjú prósent á ári, segir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, aðspurður um hvort horft sé til þess ferðamönnum muni fjölga hratt hérlendis gangi hressileg stækkunaráform flugfélagsins Icelandair eftir.
Flugvél Icelandair á leið til Þýskalands var snúið við vegna veðurs í morgun.
Hvernig á að velja jólagjafir? Þessi árlegu heilabrot eru í fullum gangi á heimilum um allt land. Öll langar okkur að gefa gjafir sem hitta í mark. Eitthvað sem viðtakandinn elskar að fá og nýtur í botn. En hvað á það að vera? Það er stóra aðventuspurningin.
Yfirvöld í Japan hafa beðið Bandaríkjamenn um að stöðva notkun V-22 Osprey flugvéla nærri eyríkinu um tíma. Það er eftir að ein slík flugvél féll í hafið undan ströndum Japan í gær, miðvikudag.
Icelandair mun fljúga daglega til Vestmannaeyja á meðan Herjólfur fer í slipp. Gerður hefur verið samningur við Vegagerðina þess efnis. Gert er ráð fyrir því að Herjólfur sigli að nýju til Eyja um miðja næsta viku.
Bandarísk herflugvél hafnaði í sjónum undan ströndum Japans í morgun. Lík eins úr flugvélinni hefur fundist í sjónum en sex eru sagðir hafa verið um borð. Flugvélin var af gerð sem kallast V-22 Osprey og er nokkurs konar blendingur þyrlu og hefðbundinnar flugvélar.
Flugmenn Virgin Atlantic flugu í gær farþegaþotu yfir Atlantshafið á eingöngu fitu og sykri, ekki hefðbundnu eldsneyti. Er það í fyrsta sinn sem slíkt er gert en flugvélin losar um sjötíu prósent minna af gróðurhúsalofttegundum en hefðbundnar farþegaþotur.
Flugfélagið Play hefur tilkynnt að afkomuspá fyrir árið eigi ekki lengur við. Jarðhræringar á Reykjanesskaga og áhrif þeirra á eftirspurn til skemmri tíma orsaki það.
Alþjóðlega fyrirtækið ChangeGroup átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli og snýr því aftur í flugstöðina í byrjun febrúar 2024. Fyrirtækið verður með tvær gjaldeyrisskiptastöðvar á flugvellinum, eitt rými fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts og gjaldeyrishraðbanka víða um flugstöðina eftir þörfum.
Fyrir nokkrum árum rakst Einar Óskar Sigurðsson fyrir tilviljun á ljósmyndasafn til sölu á Ebay. Hluti myndanna reyndust vera frá Íslandi á árunum eftir seinna stríð og voru teknar af óþekktum bandarískum manni sem gegndi herþjónustu hér á landi á sjötta áratugnum.
Samningar hafa náðst milli Flugfélagsins Ernis og Vegagerðarinnar um áframhaldandi flug til Húsavíkur næstu þrjá mánuði og verður í kjölfarið ákveðið með framhaldið.
Stjórnendur Icelandair stefna á að flugfélagið vaxi úr 39 flugvélum í 70 til 100 árið 2037, á 100 ári afmæli þess. Framkvæmdastjóri hjá félaginu sagði að markmiðið væri raunhæft en hvort það gangi eftir muni ráðast af markaðsaðstæðum. Forstjóri Icelandair telur hins vegar að of háir umhverfisskattar gætu orðið Þrándur í Götu.
Áætlunarflug til Vestmannaeyja í sinni hefðbundnu mynd hefur legið niðri frá því að Ernir hætti að fljúga til Vestmannaeyja haustið 2020 ef frá eru taldir þeir samningar sem samgönguráðuneytið gerði á sínum tíma annars vegar við Icelandair og hins vegar Erni um lágmarksflug til Eyja í örfáa daga á viku. Ekkert reglulegt flug hefur verið til eða frá Eyjum frá því um miðjan apríl síðastliðinn.
Isavia ohf. var í gær sýknað af öllum kröfum Airport Direct ehf. og Hópbíla ehf. í máli sem sneri að deilum um rútustæði við Keflavíkurflugvöll. Airport Direct krafðist greiðslu upp á tæplega milljarð króna og Hópbílar 170 milljóna króna og helmingunar á gjaldi sem fyrirtækið greiðir fyrir notkun svokallaðra nærstæða.
Franskur flugmaður hefur verið sakfelldur fyrir að afhöfða fallhlífarstökkvara með flugvélarvæng árið 2018. Flugmaðurinn flaug á fallhlífarstökkvarann, sem hafði skömmu áður stokkið úr þessari sömu flugvél, í um fjögur þúsund metra hæð.
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að neðansjávargos undan Reykjanesi í líkingu við Surtseyjargosið gæti lokað Keflavíkurflugvelli.
Veður hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu og víðar grátt í dag. Ferðamenn hafa ekki heldur farið varhluta af veðrinu, og einhverjir þeirra orðið fyrir því að flugferðum þeirra var frestað eða þær felldar niður. Þeir eru misánægðir með gang mála.
Verulega hefur hægst á sölu á flugferðum Icelandair til Íslands næstu vikurnar miðað við það sem áður var áætlað vegna jarðhræringa á Reykjanesi. Þær hafa ekki haft áhrif á flugsamgöngur um Keflavíkurflugvöll og flugáætlun Icelandair er óbreytt.
Afturhluti vélar Icelandair straukst við flugbraut í lendingu á Lal Bahadur Shastri flugvellinum á Indlandi fyrr í mánuðinum. Gert er ráð fyrir því að hægt verði að fljúga vélinni aftur heim fljótlega. Flugvirkjar voru með í fluginu sem hófu strax vinnu við að meta tjónið.
Miklum fjölda flugferða sem var á áætlun til og frá Keflavíkurflugvelli í dag hefur verið aflýst vegna veðurs.
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í sautján mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla 800 grömmum af kókaíni og hálfu kílói af hassi til landsins.
Í ljósi eldsumbrotanna á Reykjanesi sést enn betur en áður að fjárfesting í nýjum flugvelli í Hvassahrauni er hæpin í meira lagi. Ofan á aðrar efasemdir bætist að Reykjanesið verður að mati vísindamanna virkt eldsumbrota svæði næstu áratugi og jafnvel árhundruð og ekki er gott að hafa báða aðal flugvelli landsmanna á eldvirku nesi, sömu megin við Höfuðborgarsvæðið.
Í áratugi var það þannig að karlar réðu lögum og lofum hér við viðhald flugvéla hjá Icelandair. Það er nú svosem þannig enn þá í dag en nú eru þeir að minnsta kosti ekki aleinir um hituna. Konur eru í auknum mæli að sækja inn á svið flugvirkjunar og nú er svo komið að aldrei hafa fleiri kvenkyns flugvirkjar verið starfandi hjá félaginu.
Stjórn Isavia hefur tekið ákvörðun um að íslenskan verði á undan öðrum tungumálum á öllum leiðbeiningarskiltum fyrir árslok 2024. Í tilefni af Degi íslensrar tungu hefur verið hleypt af stokkunum átakinu Höldum íslenskunni á lofti.
Flugvél Air Atlanta Icelandic þurfti að snúa við í loftinu þegar að hestur, sem verið var að flytja í lest vélarinnar losnaði og olli vandræðum.