Ráðamenn Icelandair gera núna ráð fyrir að hætta rekstri hennar endanlega eftir sumarið 2027. Í staðinn hafa þeir valið langdrægar Airbus A321-þotur til að leysa hana af hólmi.

Boeing var um tíma með áform um smíði arftaka 757-þotunnar. Sú flugvél gekk undir heitinu Boeing 797 og var hugsuð sem lítil breiðþota. Hún hefur ekki enn náð lengra en á teikniborðið.
Í þættinum Flugþjóðin á Stöð 2, um 757-þotuna í þjónustu Icelandair, er varpað fram þeim spurningum hvort það hafi verið misráðið hjá Boeing að hætta framleiðslu 757 svo snemma og hvort fyrirtækið hefði fremur átt að endurbæta hana, líkt og gert var með 737-þoturnar, eins og með sparneytnari hreyflum. Hér má sjá tíu mínútna kafla:
Þátturinn um Boeing 757-þotuna er endursýndur á Stöð 2 síðdegis í dag, sunnudag, klukkan 17:45.
Í næsta þætti á þriðjudagskvöld, 1. apríl, verður fjallað um Airbus-þoturnar sem stefna í að verða burðarásinn í farþegaflugi til og frá Íslandi eftir að Icelandair valdi þær sem arftaka 757-vélanna.
Íslendingar höfðu áður kynnst Airbus-þotum í þjónustu Wow Air og Play. Íslandsflug varð þó fyrst íslenskra flugfélaga til að reka þotur frá evrópska flugvélaframleiðandanum.
Áskrifendur Stöðvar 2 og Stöðvar 2+ geta séð þættina um Flugþjóðina í streymisveitu Stöðvar 2 hvar og hvenær sem er.