Viðskipti innlent

Orð Andra Snæs um apa­heila dæmi sig sjálf

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ragnar segir Andra Snæ reiða hátt til höggs.
Ragnar segir Andra Snæ reiða hátt til höggs. Samsett

Ragnar Sigurður Kristjánsson hagfræðingur Viðskiptaráðs segir orð Andra Snæs Magnasonar, um að Viðskiptaráð séu apaheilar, dæmi sig sjálf en það sagði Andri Snær um nýja skýrslu ráðsins þar sem lagt er til að rammaáætlun verði lögð niður svo hægt verði að tvöfalda orkuframleiðslu. 

Ragnar segir að að mati Viðskiptaráðs séu tryggingar í lögum um náttúruvernd og skipulagi sem eigi að tryggja að þó svo að farið yrði í slíkar framkvæmdir yrði ekki gengið um of á náttúru landsins.

Hann segir að til að tryggja áframhaldandi hagsæld verði að tryggja meiri orkuframleiðslu.

Andri Snær fór hörðum orðum um Viðskiptaráð og nýja skýrslu þess fyrir helgi. Hann sagði hana uppfulla af rangfærslum og hvatti opinber fyrirtæki á borð við Landsvirkjun og Orkuveituna til að hætta að fela sig á bak við ráðið sem hann líkir við hugmyndafræðilegan handrukkara.

Í nýrri greiningu Viðskiptaráðs segir að kortlagðir virkjunarkostir gætu margfaldað raforkuframleiðslu Íslands sem hafi staðið í stað frá 2017.  Í greiningunni, Kraftur í kortunum: leiðin að tvöföldun raforkuframleiðslu, er lagt til að rammaáætlun verði lögð af og að raforkuframleiðsla verði rúmlega tvöfölduð fyrir 2040. Þá er birt kort af mögulegum virkjunarkostum út um allt land.

„Rammaáætlun, margar kæruleiðir og veikt flutningskerfi valda því að það tekur áratugi að koma nýrri virkjun í gagnið. Viðskiptaráð leggur til að rammaáætlun verði lögð af og að raforkuframleiðsla verði rúmlega tvöfölduð fyrir 2040,“ segir í greiningunni sem birt var fyrir helgi.

Langt pólitískt ferli

Ragnar Sigurður, hagfræðingur Viðskiptaráðs, var til viðtals um málið í Bítinu og segir það sem í rauninni er slæmt við rammaáætlun að lögin sem hún byggir á séu sett 2011, en vinnan við þau hafi hafist löngu áður, 1999.

„Þar er sett inn langt pólitískt ferli sem þarf að fara í gegnum frá því að þú færð hugmynd að virkjunarkosti þangað til hún er samþykkt í rammanum. Þetta ferli skapar lítinn fyrirsjáanleika fyrir framkvæmdaaðila og sérstaklega lítinn fyrirsjáanleika með hliðsjón af tíma.“

Mikil pólitísk aðkoma helsti veikleiki

Spurður hvort það séu ekki frekar stjórnmálamennirnir sem hafi brugðist í þessu frekar en verklagið segir Ragnar að það megi vera að einhverju leyti.

„Það hefur tekið mjög langan tíma að samþykkja rammaáætlun. Þriðji áfangi rammaáætlunar, lokaskýrsla hans, var tilbúinn sex árum áður en að það var byrjað að afgreiða þriðja áfangann. Þannig það hefur reynst mjög þungt að fara í gegnum pólitíkina í þessu.“

Hann segir Viðskiptaráð hafa skoðað áætlunina út frá umgjörðinni í stað þess að kenna pólitíkinni um og að þeirra mati sé þessi mikla pólitíska aðkoma helsti veikleiki áætlunarinnar

„Að þurfa að setja alla kosti í gegnum þetta ferli. Í stuttu máli þá er þetta þannig að þú færð virkjunarhugmynd og verkefnastjórn rammaáætlunar þarf að taka hana fyrir. Hún gerir drög að flokkun í ýmist orkunýtingarflokk, biðflokk eða verndarflokk og svo þarf að afgreiða þessa flokkun í gegnum þingið.“

Ragnar segir að orkukostir sem hafi verið lagt til á síðasta þingi að yrðu settir í orkunýtingarflokk sem verkefnastjórn hafi flokkað í þennan nýtingarflokk frá árinu 2015. Sem dæmi hafi verið lagt til að Urriðafossvirkjun yrði sett í nýtingarflokk en hún svo aftur færð í biðflokk.

Ragnar segir að Viðskiptaráð leggi til að lög um rammaáætlun verði afnumin og í staðinn sett opinber orkuöflunarmarkmið.

„Við leggjum til að það verði sett það markmið að orkuframleiðsla verði rúmlega tvöfölduð fyrir árið 2040.“

Í greiningu þeirra eru svo settar upp þrjár sviðsmyndir um hvernig sé hægt að ná þessu markmiði en Viðskiptaráð mælir með því sem það kallar „almenna leið“ sem gerir ráð fyrir að virkjanir fari í gegnum sömu leyfisveitingaferli, sömu umhverfismöt og skipulagsferli og önnur atvinnustarfsemi. Það eina sem þurfi að fara í gegnum afgreiðslu þingsins sé þá svokölluð risaverkefni og þar getum við hugsað okkur verkefni eins og Kárahnjúka og annað slíkt.“

Ragnar segir að í greiningu þeirra séu þessi ferli útskýrð nánar en um sé að ræða sjö skref.

„Við leggjum til að þessi sjö skref rammaáætlunar verði tekin út úr ferlinu og þú farir í gegnum umhverfismatið, matsáætlunina og síðan skipulagsferlið hjá sveitarfélögunum, virkjunarleyfið og framkvæmdaleyfið.“

Ráðherra vill ekki leggja rammaáætlun af

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að hans mati ætti ekki að leggja rammaáætlun af en það væri æskilegt að virkja meira, einfalda leyfisferla og styrkja flutningskerfi raforku.

„Það væri klárlega skref í rétta átt. Hann hefur verið að taka nokkur jákvæð skref í þessu, að setja bindandi hérna tímafresti inn í ferlið og einfalda leyfisveitingaferlið og setja það meira á hendur eins aðila heldur en margra mismunandi aðila. En við teljum einfaldlega svo vera að þetta ferli rammaáætlunar sé bara í heild sinni of þungt til þess að þú náir markmiðunum að auka orkuframleiðslu. Þessi tala um að tvöfalda framleiðsluna, hún er ekki dregin upp úr hatti hjá okkur.“

Jóhann Páll Jóhannsson er umhverfis- og loftslagsráðherra. Vísir/Anton Brink

Hann segir að í grænbók stjórnvalda sem kom út fyrir nokkrum árum hafi komið fram að ef Íslendingum ætti að takast að komast í gegnum full orkuskipti og eiga eitthvað umframafl fyrir frekari stórnotendur þá sé lagt til að það þurfi að tvöfalda orkuframleiðsluna.

Spurður um orð Andra Snæs um að Viðskiptaráð sé „apaheilar“ og að greining þeirra væri „hugmyndafræðilegt hatur í garð náttúruverndar“ segir Ragnar að „það sé reitt hátt til höggs“.

„Ég veit eiginlega ekki hverju ég á að svara þessu. Mér finnst þessi orð um að einstaklingar sem eru honum ósammála séu apaheilar finnst mér nú svolítið dæma sig sjálf.“

Lög sem verndi náttúruna

En ertu ekkert stressaður yfir því að ef við myndum leggja rammaáætlun af og einfalda þetta ferli myndi það koma niður á náttúru landsins?

„Við teljum svo vera að sem sagt það séu lög sem gilda um náttúruvernd og síðan eru þessi skipulagsferli sem eiga að tryggja það að allt sé gert í sátt og samlyndi við nærsamfélögin. Við teljum að þessi rammi í kringum framkvæmdir í heild sinni tryggi í rauninni náttúruvernd og tryggi þetta jafnvægi í nýtingu og vernd náttúru á Íslandi.“

Í greiningunni er einnig bent á að vegna kyrrstöðu í orkumálum og mannfjölgunar á Íslandi hafi í raun raforka á mann minnkað.

„Ein af ástæðunum fyrir því að við fórum að skoða þetta er einmitt þetta skýra samhengi sem er á milli hagsældar og orkunotkunar á mann. Það er nánast línulegt samband þarna á milli, að allar ríkar þjóðir nota mikla orku, þannig að ef við ætlum að halda áfram að sækja fram og reyna að tryggja hér hagvöxt og betri lífskjör, þá er mjög mikilvægt að við höfum augun á þessum bolta, að tryggja það að orkuöflunin staðni ekki algjörlega.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×