Viðskipti innlent

Loka kaffi­húsinu Örnu á Eiðis­torgi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Það virðist eiga að breyta staðnum.
Það virðist eiga að breyta staðnum. Vísir/Anton Brink

Búið er að loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi. Á vef kaffihússins segir að því hafi verið lokað og er gestum þökkuð samfylgdin.

„Arna ís og kaffibar hefur lokað. Við þökkum gestum okkar kærlega fyrir samfylgdina,“ segir á vefsíðu þeirra.

Á Facebook-síðu staðarins má sjá að kaffihúsið lokaði í sumar vegna breytinga. Lokunin hefur verið rædd í Facebook-hópi Seltirninga. Þar er rætt um framhaldið og hvort að það eigi að opna pizzastaður.

Kaffihúsið opnaði fyrst árið 2016. Vísir/Anton Brink

Kaffihúsið hefur verið rekið í rýminu við Eiðistorg 15 frá árinu 2016. Í viðtali við mbl.is kom fram að aðeins yrðu í boði laktósafríar mjólkurvörur frá Örnu og að þar yrði hægt að fá bakkelsi, kökur og ís. Arna María Hálfdánardóttir var þá rekstarstjóri kaffihússins en hún er dóttir Hálfdáns Óskarssonar, eins eigenda mjólkurvinnslunnar Örnu.

Í rýminu var lengi áður rekin blómabúð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×