Seltjarnarnes

Seltjarnarnes

Mannfjöldi: 4.585 (2025). Flatarmál: 2 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Um­fangs­miklar götulokanir í kringum al­myrkva

Umfangsmiklar götulokanir verða í Vesturbænum og á Seltjarnarnesi á meðan almyrkvi á sólu sést yfir vesturhluta landsins í ágúst. Hátt í 80 þúsund ferðamenn verða á landinu á meðan á almyrkvanum stendur. Einn helsti stjörnuáhugamaður landsins ætlar sjálfur að fylgjast með sólmyrkvanum heima hjá sér í Reykjavík.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Velja Viljandi villt

Bæjaryfirvöld í Seltjarnarnesbæ hafa ákveðið að slást í hóp annarra sveitarfélaga á landinu og taka þátt í verkefninu Viljandi vilt. Verkefnið snýst um að leyfa gróðri að vaxa óáreittur.

Innlent
Fréttamynd

Fram­sýni er besta vörnin fyrir Sel­tjarnar­nes

Loftslagsbreytingar eru nú þegar farnar að hafa áhrif á Seltjarnarnes. Nú þarf sveitarstjórn sem þorir að horfast í augu við stöðuna, grípa til forvarna og verja íbúa, eignir og innviði með markvissum aðgerðum.

Skoðun
Fréttamynd

Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum

Átak Reiðhjólabænda, Gul hjól, hófst í gær og stendur út mánuðinn. Átakið snýr að vitundarvakningu bílstjóra um öryggi gangandi og hjólandi í umferðinni. Hjólum er stillt upp þar sem óhöpp eða slys hafa átt sér stað.

Innlent
Fréttamynd

Sel­tjarnar­nes heldur á­fram að tapa

Seltjarnarnesbær skilaði tapi af A-hluta níunda árið í röð. Miðað við íbúafjölda er rekstrarhalli sveitarfélagsins þrefalt meiri en rekstrarhalli Reykjavíkurborgar, að sögn minnihlutans í bæjarstjórn Seltjarnarness.

Innlent
Fréttamynd

Hnífstunga í heima­húsi í Ár­bæ

Einn maður var fluttur á bráðamóttöku í dag eftir hnífstungu í heimahúsi í Árbæ í Reykjavík. Annar maður var vistaður í fangageymslu og var sá í annarlegu ástandi að sögn lögreglu sem lítur á málið sem alvarlega líkamsárás.

Innlent
Fréttamynd

Engin á­kvörðun tekin eftir upp­sögn dagdvalarsamnings

Eftir að Seltjarnarnesbær sagði upp dagdvalarsamningi við Vigdísarholt, sem sér um dagdvalar- og hjúkrunarrýmisþjónustu á Seltjörn, bíða forsvarsmenn eftir svörum frá bænum um hver taki við í lok árs. Mikil samlegð sé á milli dagdvalarinnar og hjúkrunarheimilisins svo staða þess síðarnefnda verður metin. Bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar ítrekar að ekkert rof verði á þjónustunni.

Innlent
Fréttamynd

Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli

Lögregluþjónar voru kallaðir til verslunar á Seltjarnarnesi í dag þar sem einhver hafði greitt eða reynt að greiða fyrir vörur með fölsuðum peningaseðli. Í dagbók lögreglunnar segir að málið sé í rannsókn en ekki fylgja frekari upplýsingar eins og það hvort viðkomandi hafi tekist að greiða með seðlinum eða ekki eða hvort einhver hafi verið handtekinn.

Innlent
Fréttamynd

Fjár­hags­legt sjálf­stæði Sel­tjarnar­ness í hættu

Tæplega þrír milljarðar hafa tapast á áratug og skuldir fjórfaldast. Nú er kominn tími á breytingar. Seltjarnarnarnes er að mínu mati eitt besta sveitarfélag landsins til að búa í. Hér er sterkt og fjölskylduvænt sveitarfélag umkringt fallegri náttúru.

Skoðun
Fréttamynd

Segir gæði sér­náms heimilis­lækna í hættu

Gunnar Þór Geirsson, formaður félags íslenskra heimilislækna, segir ekki raunsætt að fólk fái tíma hjá heimilislækni innan fimm daga eins og viðmið landlæknis geri ráð fyrir. Hann kallar eftir því að sérnám heimilislækna verði styrkt, gæði námsins sé í hættu.

Innlent
Fréttamynd

„Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“

Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi, Þór Sigurgeirsson, var sérstakur gestur í golfhlaðvarpinu Seinni níu. Þar var farið yfir víðan völl en Þór er með 22 í forgjöf og liðtækur kylfingur. Ekki síst er það vegna þess að hann er með rándýran pútter í höndum sem hann nappaði úr nytjagámi í Sorpu.

Lífið
Fréttamynd

Körfuboltaþjálfari selur á Nesinu

Máté Dalmay, körfuboltaþjálfari og stærsti eigandi Fótbolta.net, og Elísabet Charlotta Ásgeirsdóttir hafa sett 111 fermetra íbúð sína að Grænumýri 20 á Seltjarnarnesi á sölu.

Lífið
Fréttamynd

Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni

Oddviti Framsóknar segir af og frá að aðgerðir vegna mengunar á höfuðborgarsvæðinu hafi strandað á honum. Hann segir Pírata og Samfylkingu með fullkomlega óraunhæfar hugmyndir til að bregðast við. Kjörnir fulltrúar segjast í svörum til fréttastofu í dag líta málið alvarlegum augum, flestir segja í þetta skiptið nagladekk vera meginorsakavaldinn.

Innlent