Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Bandarísku fyrirtækin American Express og Blackbird hafa hætt við að styrkja pop-up viðburði danska veitingastaðarins Noma í Los Angeles, sem hefjast í dag. Ástæðan eru ásakanir um ofbeldi á hendur yfirmatreiðslumeistaranum René Redzepi. Erlent 11.3.2026 07:41
Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Þegar hinn rómaði flatbökustaður La Colina í Borgarnesi hætti sáu vinkonurnar Rannveig Rögn Leifsdóttir og Agnes Hjaltalín Andradóttir sér leik á borði og hafa opnað veitingastaðinn Þúfuna í húsinu við Hrafnaklett. Undirtektirnar eru svo góðar að þangað streymir fólk þótt ekki hafi einu sinni gefist ráðrúm til að hengja upp skilti staðarins. Viðskipti innlent 11.3.2026 06:47
Eigendur Ítalíu í þriggja ára atvinnurekstrarbann Elvar Ingimarsson og Björgvin Narfi Ásgeirsson, fyrrum eigendur Ítalgest ehf., rekstrarfélags veitingastaðarins Ítalíu, hafa verið úrskurðaðir í atvinnurekstrarbann til þriggja ára. Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms frá því í janúar. Innlent 4.3.2026 10:36
Loka Duck & Rose á sunnudaginn Veitingastaðurinn Duck & Rose mun ljúka starfsemi næsta sunnudag. Í stað hans verður opnaður staðurinn Gamla Reykjavík. Sömu rekstraraðilar standa að breytingunni. Í tilkynningu segir að um sé að ræða stefnubreytingu. Viðskipti innlent 17. febrúar 2026 09:09
„Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Helgi Guðnason, forstöðumaður í Fíladelfíu í Reykjavík, segir samstarfið við Samhjálp hafa gengið vonum framar eftir að kaffistofan fékk tímabundið skjól í húsnæði kirkjunnar. Hann viðurkennir að það hafi verið töluverð óvissa en hafi alltaf verið sannfærður um að það rétta í stöðunni væri að hjálpa. Innlent 17. febrúar 2026 06:30
Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Það er mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar, klukkan er tíu og það er nýbúið að opna. Það er matarlykt og kliður í loftinu. Það er verið að bera fram morgunmat og setið við flest borð. Kaffistofan er tímabundið staðsett í sal Fíladelfíusöfnuðarins, á neðri hæð í Hátúni. Það er bjart inni og líklega um 40 til 50 manns í salnum. Innlent 16. febrúar 2026 06:30
Úr verslunarrekstri á „fínni útgáfuna“ af ítalskri knæpu Hjónin Einar Guðmundsson og Aron Freyr Heimisson hafa síðustu fimm ár rekið saman verslunina Mikado samhliða því að sinna hönnunarverkefnum. Þeir hafa nú bætt við sig hönnun og rekstri veitingastaðar í Hafnarstræti, , Osteria Bari, ásamt þremur öðrum Lífið 15. febrúar 2026 13:00
Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna Lögregla vísaði manni út af veitingastað í dag þar sem hann hafði lagst þar til hvílu. Innlent 13. febrúar 2026 17:22
Gera Wolt-sendla starfsmenn en á óhefðbundnum kjörum Heimsendingarfyrirtækið Wolt hefur í fyrsta skipti ráðið sendla sem starfsmenn í Finnlandi eftir að dómstóll skikkaði það til þess. Sendlarnir fá þó hvorki greitt á milli sendinga né fyrir að sendast á eigin bílum. Viðskipti erlent 13. febrúar 2026 14:48
Með allt undir í rauðri viðvörun Um áramótin hækkuðu laun á veitingastöðum um rúm 3,5% skv. kjarasamningi Eflingar og SA – kjarasamningi sem annar aðilinn sem raunverulega að málinu kemur hafði ekkert um að segja. Skoðun 12. febrúar 2026 14:31
Fjörugt Food and fun framundan Matarhátíðin Food and fun verður haldin í 23. skipti hér í Reykjavík í lok febrúar þar sem sjóðheitir matreiðslumeistarar hvaðan af úr heiminum koma sem gestakokkar inn á okkar vinsælustu veitingastaði. Lífið 10. febrúar 2026 14:00
Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Íbúar í hverfi 108 í Reykjavík eru uggandi yfir flutningi kaffistofu Samhjálpar í hverfið. Þeir segjast óttast að börn verði fyrir aðkasti eða vitni að ofbeldi eða vímuefnaneyslu sem þau gætu tekið inn á sig. Þeir óttast einnig að innbrotum muni fjölga samhliða flutningi kaffistofunnar. Þeir, ásamt fleirum, standa fyrir opnum íbúafundi um flutninginn í kvöld. Innlent 4. febrúar 2026 15:30
Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Ekkert fékkst upp í 119 milljóna króna lýstar kröfur í þrotabú Taco Taco ehf., sem rak mexíkóska veitingastaðinn Culiacan að Suðurlandsbraut. Viðskipti innlent 28. janúar 2026 16:05
Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Eigendur veitingastaðarins BK Kjúklings og verslunarinnar Istanbul Market hafa átt í harðvítugum deilum um bílastæði en fyrirtækin eru staðsett sitt hvorum megin við Grensásveg í Reykjavík. Leitað hefur verið til lögfræðinga og saka eigendurnir hvorn annan ýmist um að reyna að keyra á sig eða fara ófögrum orðum um fjölskyldumeðlimi. Einnig greinir þá á um hvernig deilurnar hófust. Innlent 24. janúar 2026 01:10
Kviknaði í Svarta sauðnum í Þorlákshöfn Nokkuð tjón varð af völdum reyks og hita þegar eldur kviknaði í veitingastaðnum Svarta sauðnum í dag. Staðurinn var mannlaus þegar eldurinn kom upp. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Innlent 16. janúar 2026 15:53
Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Veitingastaðnum Grillhúsinu á Sprengisandi í Reykjavík hefur verið lokað. Einungis eitt Grillhús er eftir á höfuðborgarsvæðinu og er það rekið á bensínstöð að Hagasmára við verslunarmiðstöðina Smáralind í Kópavogi. Viðskipti innlent 15. janúar 2026 11:25
Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Veitingastaðnum American Style í Skipholti í Reykjavík hefur verið lokað. Staðurinn opnaði í júní 1985 og fagnaði staðurinn því fjörutíu ára afmæli á síðasta ári. Áfram verða þó reknir þrír staðir á höfuðborgarsvæðinu. Viðskipti innlent 8. janúar 2026 11:24
Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal og konan hans Rakel Þormarsdóttir hafa valið nafn fyrir veitingastaðinn sem þau opna á næstunni á neðri hæð verslunarkjarnans Grímsbæjar í Reykjavík. Staðurinn heitir Fossinn, væntanlega með vísan í Fossvoginn, og þau eru nú í leit að starfsfólki til að taka á móti gestum og til starfa í eldhúsi staðarins. Viðskipti innlent 8. janúar 2026 09:50
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Árið sem líður var, eins og nánast öll ár, viðburðaríkt hvað varðar viðskiptin. Árið einkenndist af langþráðum stýrivaxtalækkunum, dramatísku gjaldþroti flugfélags og væringum á alþjóðamarkaði vegna tolla. Viðskipti innlent 29. desember 2025 07:00
Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Árleg Þorláksmessuveisla fór fram á Ölver í Laugardal í dag þar sem gestir streymdu að til þess að gæða sér á kæstri skötu, þó álitamál væri hve kæst hún ætti að vera. Fréttamaður fetaði í fótspor annarra fréttamanna fréttastofunnar í gegnum árin og gæddi sér á þeirri kæstu í fyrsta sinn. Lífið 23. desember 2025 21:00
Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Áhugakona um smurbrauð og tölfræði rýndi í opna reikninga ríkisins til að sjá hve mikið ríkisstofnanir hafa eytt á Jómfrúnni síðastliðin tvö ár. Háskóli Íslands er smurbrauðsóðasta stofnunin bæði árin en svo voru nokkur ráðuneyti ansi öflug í fyrra. Lífið 23. desember 2025 13:54
Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Karlmaður á þrítugsaldri sem sótti skemmtistaðinn Auto í miðborg Reykjavíkur var fluttur á sjúkrahús á laugardagsnótt. Hann sakar hóp dyravarða sem störfuðu á næturklúbbunum um líkamsárás. Innlent 22. desember 2025 20:17
Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Það voru fáklæddir barþjónar sem tóku á móti gestum í Bíó Paradís síðustu helgi þegar spánýr kokteilabar opnaði í bíóinu. Nafnið hringir eflaust bjöllum hjá mörgum en barinn heitir Regnboginn líkt og kvikmyndahúsið á Hverfisgötu hét um árabil. Lífið 19. desember 2025 17:03
Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Hjalti Vignisson, eigandi veitingastaðarins 2Guys við Hlemm, segist alltaf standa með þeirra ákvörðun starfsfólks síns að neita einstaklingi um þjónustu með hakakross á andlitinu. Innlent 13. desember 2025 20:18