Innlent

Veitinga­maður sektaður um tvö hundruð milljónir

Árni Sæberg skrifar
Gourmet rak veitingastaðinn Sjáland í Garðabæ.
Gourmet rak veitingastaðinn Sjáland í Garðabæ. Vísir/Vilhelm

Stefán Magnússon veitingamaður hefur verið dæmdur til 15 mánaða fangelsisvistar og greiðslu 200,7 milljóna króna sektar í Landsrétti, fyrir að hafa svikið undan skatti á árunum 2020 til 2023 þegar hann var framkvæmdastjóri og stjórnarmaður tveggja félaga, annars vegar Steikar ehf. og hins vegar Gourmet ehf. Félögin ráku veitingastaðina Reykjavík Meat og Sjáland, sem báðum hefur verið lokað.

Landsréttur kvað upp dóm þess efnis klukkan 15 en hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir. Í héraði var Stefán sömuleiðis dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar og greiðslu 200,7 milljóna króna.

Í ákæru var Stefáni gefið að sök að hafa ekki staðið í skilum á opinberum gjöldum sem haldið var eftir af launum starfsmanna hjá Steik frá 2020 til 2022, en þau hljóðuðu upp á samtals 32,7 milljónir króna. Hjá Gourmet var hann sagður hafa vanrækt skil á opinberum gjöldum upp á 68,3 milljónir króna. Alls námu skattsvikin því 101 milljón króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×