Eyjar í óvissu á meðan ráðherra bíður eftir haustinu Jóhann Ingi óskarsson skrifar 18. maí 2026 17:30 Samgöngur til Vestmannaeyja eru ekki munaður. Þær eru lífæð samfélagsins. Þess vegna olli opinn fundur um stöðu Landeyjahafnar og Herjólfs miklum vonbrigðum hjá okkur Eyjamönnum. Það sem átti að vera fundur um lausnir, framtíðarsýn og ábyrgð varð að stórum hluta upptalning á „náttúruöflum“ og ástæðum fyrir því af hverju hlutirnir séu erfiðir. Auðvitað skilja allir Eyjamenn að náttúran spilar stórt hlutverk. Það er ekkert nýtt. Vandinn er hins vegar sá að stjórnvöld virðast enn nálgast stöðuna eins og hún hafi komið þeim á óvart. Hún hefur ekki gert það. Þetta eru áskoranir sem hafa verið þekktar árum saman. Sandburður í Landeyjahöfn, óstöðugleiki í siglingum, skortur á varaskipi og veikleikar í samgöngukerfinu eru ekki ný vandamál heldur viðvarandi staða sem hefði átt að bregðast við fyrir löngu síðan. Það sem stóð sérstaklega upp úr á fundinum var skortur á tilfinningu fyrir alvarleika málsins. Þegar aðeins brot af áætluðum ferðum hefur verið siglt frá áramótum er ekki nóg að segja einfaldlega að „þetta lagist með haustinu“. Fyrir fyrirtæki, fjölskyldur og atvinnulíf í Eyjum er þetta ekki tímabundið óþægindi, þetta er bein ógn við rekstur, tekjur, öryggi og lífsgæði fólks. Eitt dæmi sem sýnir kannski best hversu lítið stjórnvöld virðast átta sig á stöðunni kom fram þegar rætt var um mótorabilun Herjólfs. Þar var bent á að ekki þyrfti að eiga mótor til taks eða á lager þar sem það tæki aðeins einn dag að fjarlægja mótor úr skipinu. Það sem virtist hins vegar gleymast í því svari er að það tekur marga mánuði að smíða nýjan mótor. Ef hægt væri einfaldlega að „panta nýjan“ með skömmum fyrirvara væri Herjólfur ekki enn að sigla á einni skrúfu í dag. Þetta vekur líka upp spurningar um hagsmunagæslu bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Ef stjórnvöld og ráðherra virðast ekki gera sér grein fyrir jafn grundvallaratriðum og því hversu langan tíma tekur að útvega og smíða sérhæfðan mótor fyrir Herjólf, hefur þá verið nægilega fast gengið á eftir upplýsingum og þrýstingi frá bæjarstjórninni sjálfri? Hlutverk bæjarstjórnar í svona stöðu er ekki bara að fylgjast með heldur að þrýsta stöðugt á ríkisvaldið, upplýsa ráðherra um raunverulegar afleiðingar og tryggja að hagsmunir Eyjamanna gleymist ekki í kerfinu. Þegar samfélag eins og Vestmannaeyjar er háð einni samgöngulínu þarf hagsmunagæslan að vera bæði sýnileg og ákveðin. Á fundinum komu einnig fram áhyggjur af því að enn sé engin raunveruleg neyðaráætlun til staðar. Baldur er sagður vera varaskip, þrátt fyrir að margir hafi bent á að hann ráði illa við aðstæður og sé ekki fullnægjandi lausn fyrir Vestmannaeyjar. Um leið virðist standa til að selja Herjólf III þegar Baldur verður uppfærður. Það vekur eðlilega spurningar um hvort stjórnvöld skilji raunverulega mikilvægi þess að tryggja öflugar og öruggar varasamgöngur allt árið um kring. Það sem þarf núna er ekki fleiri skýringar heldur aðgerðir. Það þarf: skýra og tímasetta samgönguáætlun fyrir Vestmannaeyjar, raunhæft og haffært varaskip, varanlegri lausnir í flugsamgöngum þegar Landeyjahöfn lokast, hraðari uppbyggingu og endurbætur á höfninni, langtímahugsun um nýjar ferjur og öryggi samfélagsins, öflugri og sýnilegri hagsmunagæslu fyrir Vestmannaeyjar, og viðbúnað sem tekur mið af því að bilanir og lokanir eru ekki undantekning heldur raunveruleiki sem þarf að vera undirbúinn fyrir. Vestmannaeyjar geta ekki byggt framtíð sína á óvissu frá viku til viku. Atvinnulíf getur ekki skipulagt sig án fyrirsjáanleika og íbúar eiga ekki að þurfa að velta því fyrir sér hvort þeir komist til eða frá heimili sínu eftir veðri, sandburði eða bilunum. Eyjamenn eru vanir því að takast á við erfiðar aðstæður. En það er ekki ásættanlegt að ríkið geri það sama og hingað til: að bregðast alltaf við of seint. Samgöngur til Vestmannaeyja þurfa að vera meðhöndlaðar sem grunninnviður landsins, ekki tímabundið vandamál sem má fresta þar til næsta haust kemur. Höfundur er stjórnarformaður Miðflokksins í Vestmannaeyjum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vestmannaeyjar Samgöngumál Miðflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar