Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar 3. nóvember 2026 14:31 Fyrir ekki svo löngu síðan var mikið rætt um upplýsingaóreiðu í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna um viðræður við Evrópusambandið. Stjórnmálamenn lögðu áherslu á mikilvægi þess að almenningur hefði aðgang að réttum upplýsingum og gæti tekið afstöðu á upplýstum forsendum. Það er auðvitað sjálfsögð krafa. En hún hlýtur þá líka að gilda um stjórnmálamennina sjálfa. Á ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga sem haldið var í síðustu viku héldu tveir þingmenn stjórnarflokkanna því fram að Samtök ferðaþjónustunnar hefðu átt hugmyndina að þeirri útfærslu náttúru- og innviðagjalds sem stjórnvöld hafa kynnt. Það er að Gullni hringurinn verði fyrir valinu fyrir skatta- og gjaldagleði ríkisstjórnarinnar. Þessari staðhæfingu var síðan fylgt eftir í útvarpsþáttum um helgina og á viðburði Viðreisnar á Selfossi síðastliðinn sunnudag þar sem fjármálaráðherra kom inn á þetta í sínu máli. Þetta er vissulega ekki í fyrsta skipið sem við heyrum þessu hent fram. Ráðherra ferðaþjónustu reið um uppsveitir Árnessýslu á dögunum og ítrekaði boðskapinn. Þetta er því orðin nýja mantran hjá bakvarðarsveit ríkisstjórnarinnar. Þessi orðræða hefur komið mér á óvart enda sat ég við borðið í samráðsferli ráðuneytisins við undirbúning á frumvarpsdrögunum, skipaður af ráðherra. Á þeim fáu fundum sem starfshópurinn hittist var farið um víðan völl og ýmsu velt upp m.a. hvaða vandamál væri verið að reyna leysa, hvort að skynsamlegt væri að byrja smærra en að setja alla staði í umsjón ríkisins beint inn í frumvarpið og hver áhrif svona gjalds gætu orðið á t.d. dagsferðir, svo eitthvað sé nefnt. Oftar en ekki lýkur vinnu svona starfshópa með einhvers konar skýrslu eða minnisblaði til ráðherra þar sem allir fara frá borði missáttir eða misósáttir. En í þetta skiptið fjaraði vinna starfshópsins einfaldlega út án neinnar niðurstöðu. Það að umræða um fjölda staða eða um framkvæmd einhverskonar gjaldtöku hafi átt sér stað fundi starfshóps er engan vegin það sama og að Samtök ferðaþjónustunnar hafi lagt til eða samþykkt Bláskógarbyggðarskattinn né þá útfærslu á fyrirhuguðu náttúru- og innviðagjaldi sem liggur fyrir núna. Raunar höfum við ítrekað talað um að ef eigi að ræða einhverskonar auðlindargjöld þurfi að horfa á alla núverandi gjaldtöku af greininni heildstætt og meta þau vandamál sem stjórnvöld telji sig þurfa leysa út frá hvernig núverandi tekjur hafa nýst. Lausninn er ekki bara að halda áfram að henda út nýjum og nýjum sköttum og gjöldum. Ferðaþjónusta greiðir nú þegar skatta og gjöld til hins opinbera árlega á við áætlaðan kostnað við byggingu nýja Landspítalans. Hérna er ekki um einhvern smávægilegan orðalagsmun að ræða heldur er beinlínis verið að eigna Samtökum ferðaþjónustunnar hugmyndir ríkisstjórnarinnar. Ef það er einhverskonar ný stefna hjá stjórnvöldum að gefa eftir ákvörðunartöku til hagsmunasamtaka þá erum við með lista af öðrum hugmyndum sem raunverulega gera rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar og í rauninni alls atvinnulífsins mun betra. Við erum klár, þið eruð með númerið hjá okkur. En hvernig verður þessi túlkun til? Og hvernig stendur á því að þingmenn stjórnarflokkanna lýsa aðkomu samtakanna með þessum hætti? Ég man ekki eftir að hafa séð Fjármálaráðherra eða áðurnefnda þingmenn á fundum starfshópsins en þegar vísað er sérstaklega til ummæla Atvinnuvegaráðherra er eðlilegt að spyrja hvort þessi skilningur sé þá til staðar innan hennar ráðuneytisins og orðræðan komi þaðan. Ef hagsmunasamtök og aðrir hagaðilar eiga að verja tíma og fjármunum í að koma sjónarmiðum sínum á framfæri hjá stjórnvöldum verða þau að geta treyst því að þeim séu ekki gerðar upp skoðanir, ályktanir eða ákvarðanir. Samráð er ekki samþykki. Umræða á vinnufundum er ekki tillaga að tiltekinni útfærslu. Og ákvörðun stjórnvalda verður ekki að ákvörðun hagsmunaaðila þótt þau hafi tekið þátt í samtali um málið. Upplýsingaóreiða verður nefnilega ekki aðeins til þegar einhver birtir beinlínis rangar upplýsingar. Hún getur líka orðið til þegar sjónarmið eru tekin úr samhengi, ábendingar og umræður kynntar sem einhvers konar staðreyndir og samþykki eða ábyrgð á ákvörðunum færð yfir á aðra. Kristrún Frostadóttir Forsætisráðherra orðaði þetta ágætlega sjálf þegar hún lýsti því yfir að það sé „bannað að plata í þessu starfi“. Held að flestir geti tekið undir þá grundvallarreglu. En hún hlýtur líka að ná til þess hvernig stjórnmálamenn fara með upplýsingar um aðra. Það er vissulega munur á því að fara rangt með staðreyndir og að gera það óvísvitandi. En ábyrgðin á að leiðrétta rangar upplýsingar hverfur ekki þótt enginn hafi ætlað sér að villa um fyrir fólki. Þetta snýr að virðingu og trausti. Virðingu fyrir þeim sem taka þátt í opinberri umræðu, virðingu fyrir samráði og virðingu fyrir því fólki sem á að geta treyst upplýsingum frá kjörnum fulltrúum sínum. Stjórnvöld geta ekki gert kröfu um upplýsta umræðu þegar þeirra eigin mál eru til umræðu en slakað á sömu kröfu þegar þau fjalla um sjónarmið annarra. Það er ekki nóg að vara við upplýsingaóreiðu. Stjórnvöld verða sjálf að gæta þess að bæta ekki í hana. Höfundur er verkefnastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun