Skoðun

Er nor­ræna módelið refsi­laust fyrir selj­endur vændis á Ís­landi?

Ari Logn, Renata Arnórsdóttir, Brynhildur Ragnarsdóttir og Guðný Þorsteinsdóttir skrifa

Á Íslandi, undir norræna módelinu, er refsivert fyrir seljendur vændis/kynlífsþjónustu að auglýsa eigin vændi samkvæmt 7. málsgrein í 206. grein almennra hegningarlaga: „Hver sem í opinberri auglýsingu býður fram, miðlar eða óskar eftir kynmökum við annan mann gegn greiðslu skal sæta sektum eða fangelsi allt að 6 mánuðum.” Það þýðir að það er geðþóttaákvörðun hvers lögreglumanns að fylgja eða ekki fylgja lögum og kæra seljenda vændis/kynlífsþjónustu þegar viðkomandi safnar kjarki til þess að leita til lögreglu eftir brot. Nýlega hafa komið upp mál þar sem seljendur kynlífsþjónustu hafa verið kærð fyrir það að auglýsa og í rannsókn Stígamóta 2022 kom fram að lögreglan hefur jafnvel neitað að kæra tilkynnt ofbeldi en kært svo viðkomandi þolenda fyrir að auglýsa eigin vændi. Afleiðingar þess eru þær að fólk sem selur vændi/kynlífsþjónustu veigrar sér við að leita til lögreglu vegna hræðslu við það að vera refsað. Við teljum það óásættanlegt.

Algengustu og stærstu birtingarmyndir mansals á Íslandi hafa verið í veitingageiranum, ferðaiðnaðinum, byggingariðnaðinum og á snyrtistofum. Verklagið sem fylgir vinnumansali gefur þolendum þess réttindi. Mál þeirra njóta aðkomu vinnumálasérfræðinga og raunhæfir möguleikar eru á áframhaldandi dvöl á Íslandi. Í málum sem tengjast mansali í kynferðislegum tilgangi hafa þolendur ekki sömu réttindi eða öryggi því þau eru ekki sett undir sama málaflokk. Þolendur mansals í kynferðislegum tilgangi sem koma til Íslands hafa sárasjaldan möguleika á því að byggja sér upp líf á Íslandi og er þeim oft brottvísað án frekari stuðnings frá ríkinu. Norræna módelið gefur þeim engin réttindi né gerir það léttara fyrir lögreglu að finna og aðstoða þolendur mansals í kynferðislegum tilgangi.

Til Rauðu Regnhlífarinnar, samtaka kynlífsverkafólks og þolenda í vændi, leitar fólk úr öllum hópum samfélagsins. Við erum sjálfboðaliðar sem sáum að það var vöntun fyrir þjónustu og samfélagi fyrir kynlifsverkafólk og þolenda í vændi sem ekki er hætt eða að hætta, svo við gengum í verkið. Allir sem koma að starfi samtakanna hafa sjálf reynslu af einhverskonar kynlífsvinnu, sem þýðir að við skiljum stöðu seljenda afar vel. Til okkar leita á milli 30-50 manns á ári - núverandi og fyrrverandi kynlífsverkafólk, núverandi og fyrrverandi þolendur í vændi og þolendur mansals í kynferðislegum tilgangi. Svo sinna samtökin forvarnarstarfi í málum þar sem það á við.

Að refsa kaupendum vændis/kynlífsþjónustu fyrir það eitt að kaupa, eins og norræna módelið gerir skilur eftir gapandi sár í réttarkerfinu fyrir seljendur sem lenda í ofbeldi eða öðrum glæp af hálfu kaupenda. Norræna módelið setur upp kaupin sem glæpinn, sem þýðir að kaupendur vændis/kynlífsþjónustu sem brjóta á seljendum þess kunna að komast undan rannsókn og þyngri refsingu fyrir ofbeldisbrot í þeim tilvikum sem farið er yfir mörk seljandans. Módelið gerir heldur ekki greinarmun á kaupendum sem virða ekki mörk eða ræna seljandann og þeim kaupendum sem borga, virða mörk seljandans og fara. Okkar skjólstæðingar skilja þó muninn vel.

Rannsóknir sýna að glæpavæðing seljenda og glæpavæðing kaupenda eru bæði skaðleg seljendum vændis/kynlífsþjónustu. Rannsókn frá Johns Hopkins háskóla í Bandaríkjunum frá 2018, sem fól í sér samgreiningu á meira en 130 rannsóknum á áhrifum mismunandi lagaramma, sýndi að undirokandi eftirlit lögreglu og glæpavæðing tengist aukinni áhættu á ofbeldi, HIV smitum og öðrum kynsjúkdómum, hrakandi andlegri heilsu og aukningu á því að seljendur neyðist til að selja vændi/kynlífsþjónustu án smokks. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að full afglæpavæðing (ekki lögleiðing) á sölu og kaupum getur aukið getu seljenda til þess að semja um öruggari aðstæður, fá aðgang að þjónustu og leita réttlætis þegar þau verða fyrir ofbeldi og arðráni. Full afglæpavæðing er eina stefnan sem rannsóknir sýna að dragi úr skaða og efli lýðheilsu og öryggi.

Þessi umfangsmikla samgreining á rannsóknum stangast á við alhæfingu talskonu Stígamóta sem nýlega sagði að ekkert bendi til þess að refsing fyrir kaup á vændi geri stöðu fólks í vændi verri. Ef norræna módelið væri góð leið fyrir seljendur vændis/kynlífsþjónustu og þolendur mansals í kynferðislegum tilgangi þá myndum við í Rauðu regnhlífinni styðja það heilshugar. En þetta módel gerir ekkert til þess að minnka neyð og fátækt þeirra sem selja vændi í neyð, né verndar það seljendur frá ofbeldi. Við í Rauðu regnhlífinni sjáum afleiðingarnar sem fylgja módelinu á hverjum degi því við erum í reglulegum samskiptum við núverandi kynlífsverkafólk/seljendur vændis.

Við styðjum því ekki 1. málsgrein í frumvarpi dómsmálaráðherra sem varðar herta refsingu fyrir kaup á vændi milli fullorðinna aðila. Hér má finna umsögn Rauðu Regnhlífarinnar sem fer dýpra í hvers vegna, en við viljum frekar sjá dómsmálaráðherra afnema refsingu fyrir fólk sem auglýsir eigin vændi svo að seljendur þess hafi greiðari aðgang að réttarkerfinu. Við viljum sjá skýr og sterk réttindi fyrir alla seljendur og að yfirsýn verði hjá vinnueftirlitinu, stéttarfélagi og félagsþjónustunni, frekar en hjá lögreglu. Við viljum sjá fulla afglæpavæðingu eins og í Belgíu, Nýja Sjálandi og Ástralíu svo að lögreglan geti sett orku sína og fjármagn í það að rannsaka mansalsmál og glæpi. Það þýðir að kynlífsverkafólk og vændisseljendur í neyð geta þá tilkynnt slíka glæpi án þess að eiga hættu á refsingu. Við viljum að gerendur sem beita seljendur ofbeldi sæti ábyrgð, ekki að þeir fái dóm út af tæknilegu atriði.

10 ára reynsla okkar í sjálfboðastarfi með kynlífsverkafólki, þolendum í vændi og þolendum mansals í kynferðislegum tilgangi hefur sýnt okkur að glæpavæðing eykur einangrun og skömm og berskjaldar seljendur fyrir ofbeldi og arðráni. Reynsla okkar er studd af ofantöldum rannsóknum, framkvæmdar yfir síðustu 25 ár, sem sýna skýrt fram á það sama.

Það er ekki hægt að glæpavæða eða skamma vændi í burtu. Ef það væri hægt væri vændi/kynlífsþjónusta ekki að gerast í Bandaríkjunum, Serbíu, Brasilíu og fleiri löndum sem hafa harðar refsingar fyrir kaup og/eða sölu þess. Við getum eingöngu glæpavætt í burtu öruggari aðstæður fyrir kynlífsverkafólk og vændisseljendur. Við viljum sjá framtíð þar sem enginn þarf að gera eitthvað sem þau ekki vilja gera vegna neyðar, en til þess að komast þangað þurfum við að efla skóla-, heilbrigðis- og velferðarkerfin okkar og mæta fólki þar sem það er, ekki glæpavæða þau og gera umhverfi þeirra hættulegra.

Samtökin frumsýna heimildarmyndina ‘Er þetta femínismi?’ um ráðstefnu okkar sem haldin var í Norræna húsinu s.l Nóvember. Ráðstefnan fjallaði um skaðsemi Norræna módelsins á seljendur. Sýningin er á laugardaginn 14. November n.k í sal 2 í Bíó Paradís og hægt er að tryggja sér miða hér.

Höfundar eru í stjórn Rauðu Regnhlífarinnar.




Skoðun

Skoðun

Allir með

Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar

Sjá meira


×