Allir með Willum Þór Þórsson, Jóhann Steinar Ingimundarson og Þórður Á. Hjaltested skrifa 2. nóvember 2026 13:33 Að fá að vera með skiptir máli. Í íþróttum fá börn tækifæri til að hreyfa sig, eignast vini, takast á við áskoranir og finna sinn stað í hópnum. Þar verða til tengsl og tilfinning fyrir því að tilheyra. Þessi tækifæri eiga öll börn að hafa. Íþróttir eru stærsta fjöldahreyfing landsins og á Íslandi er sterk hefð fyrir þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi. Um allt land bjóða íþróttafélög upp á öflugt og metnaðarfullt starf. Skipulagt íþróttastarf eflir líkamlega, andlega og félagslega heilsu og er þannig öflug forvörn og mikilvægur þáttur í lýðheilsu. Börn fá þar tækifæri til að þroskast, finna styrkleika sína og vera hluti af hópnum. En þessi mikla þátttaka nær ekki jafnt til allra barna. Aðeins eitt af hverjum tíu börnum með fötlun stundar skipulagðar íþróttir. Þessu getum við breytt. Vitundarvakningin Allir með sýnir hvað hægt er að gera þegar ólíkir aðilar taka höndum saman. Með aðkomu ÍSÍ, UMFÍ, ÍF og þriggja ráðuneyta hefur þátttaka barna með fötlun í íþróttum aukist úr 3–4% í rúmlega 10%. Þetta er umtalsverður árangur sem sýnir hverju samstillt átak getur skilað. En við getum gert enn betur og gert fleiri börnum kleift að vera með. Næsta skref er að ná til enn fleiri barna. Til þess þurfum við að auðvelda börnum með fötlun og fjölskyldum þeirra að finna íþróttastarf við hæfi og styðja íþróttafélögin við að taka á móti fleirum. Þannig getum við fjölgað tækifærum til þátttöku og gert íþróttir að raunhæfum kosti fyrir fleiri börn. Markmiðið er skýrt: Enginn standi fyrir utan. Allir með. Höfundar eru Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður Ungmennafélags Íslands, og Þórður Á. Hjaltested, formaður Íþróttasambands fatlaðra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Willum Þór Þórsson ÍSÍ Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Kristný Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar Sjá meira
Að fá að vera með skiptir máli. Í íþróttum fá börn tækifæri til að hreyfa sig, eignast vini, takast á við áskoranir og finna sinn stað í hópnum. Þar verða til tengsl og tilfinning fyrir því að tilheyra. Þessi tækifæri eiga öll börn að hafa. Íþróttir eru stærsta fjöldahreyfing landsins og á Íslandi er sterk hefð fyrir þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi. Um allt land bjóða íþróttafélög upp á öflugt og metnaðarfullt starf. Skipulagt íþróttastarf eflir líkamlega, andlega og félagslega heilsu og er þannig öflug forvörn og mikilvægur þáttur í lýðheilsu. Börn fá þar tækifæri til að þroskast, finna styrkleika sína og vera hluti af hópnum. En þessi mikla þátttaka nær ekki jafnt til allra barna. Aðeins eitt af hverjum tíu börnum með fötlun stundar skipulagðar íþróttir. Þessu getum við breytt. Vitundarvakningin Allir með sýnir hvað hægt er að gera þegar ólíkir aðilar taka höndum saman. Með aðkomu ÍSÍ, UMFÍ, ÍF og þriggja ráðuneyta hefur þátttaka barna með fötlun í íþróttum aukist úr 3–4% í rúmlega 10%. Þetta er umtalsverður árangur sem sýnir hverju samstillt átak getur skilað. En við getum gert enn betur og gert fleiri börnum kleift að vera með. Næsta skref er að ná til enn fleiri barna. Til þess þurfum við að auðvelda börnum með fötlun og fjölskyldum þeirra að finna íþróttastarf við hæfi og styðja íþróttafélögin við að taka á móti fleirum. Þannig getum við fjölgað tækifærum til þátttöku og gert íþróttir að raunhæfum kosti fyrir fleiri börn. Markmiðið er skýrt: Enginn standi fyrir utan. Allir með. Höfundar eru Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður Ungmennafélags Íslands, og Þórður Á. Hjaltested, formaður Íþróttasambands fatlaðra.
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun